Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 80
2. júní 2012 LAUGARDAGUR44 S eint í janúar 1952 lést Sveinn Björnsson, forseti Íslands frá lýðveldisstofn- un átta árum fyrr. Kosn- ingar yrðu um sumarið og fljótt kom á daginn að þrír flokkanna á Alþingi vildu hlutast til um hver fengi embættið. Manna á meðal var einnig skegg- rætt um möguleg forsetaefni. Eink- um staldraði fólk við nafn Ásgeirs Ásgeirssonar, hins þjóðkunna þing- manns Alþýðuflokksins. Hann hafði setið á Alþingi frá 1923, verið fjár- málaráðherra og forsætisráðherra um skeið en hæst hafði frægðarsól hans líklega risið sumarið 1930. Þá var hann forseti sameinaðs þings og stýrði með miklum sóma hátíðar- fundum á Þingvöllum út af þúsund ára afmæli Alþingis. Sjálfur vildi Ásgeir Ásgeirsson gjarnan verða forseti, sitjandi í friði á Bessastöð- um. Hann var hins vegar fulltrúi eins stjórnmálaflokks, þess smæsta á Alþingi. Gæti hann fengið fylgi fjöldans? Um þessar mundir var við völd ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Ólafi Thors hafði þótt Sveinn Björnsson óþægur ljár í þúfu, talsmaður þess minni- hlutasjónarmiðs að beðið yrði með lýðveldisstofnun uns stríði lyki og íhlutunarsamur við stjórnarmynd- anir. Ólafur og flestir aðrir í for- ystusveit Sjálfstæðisflokksins vildu fá þægilegri mann í stöðu þjóðhöfð- ingja. Lengi vel virtust þeir þó ekki afhuga Ásgeiri og munaði þá miklu um afstöðu Gunnars Thoroddssens, borgarstjórans vinsæla sem var tengdasonur hans. Gunnar benti á að Ásgeir hefði ætíð stutt brýnustu hagsmunamál sjálfstæðismanna og þar að auki væri ekki gert ráð fyrir því að forseti hefði „pólitísk völd“ heldur ætti hann að vera „eining- arafl þjóðarinnar, óháður stjórn- málaflokkunum“. Að vísu gæti hann þurft að skerast í leikinn við stjórnarmyndanir en þá myndi víð- sýni Ásgeirs og reynsla koma að góðum notum. Vandinn var hins vegar sá að Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, og flestir aðrir í forystusveit þar á bæ gátu ekki hugsað sér að styðja Ásgeir Ásgeirsson. Hinar miklu vegtyll- ur sínar í stjórnmálum hafði hann hlotið þegar hann var í flokki þeirra en síðan urðu vinslit. Þeir sögðu fráleitt að Ásgeir yrði óvilhallur og bættu við að forsetinn mætti ekki hafa verið í eldlínu stjórnmálanna því „pólitískur“ þjóðhöfðingi gæti misbeitt freklega hinu formlega valdi sínu. Leiðtogar Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks sam- mæltust því um að finna forsetaefni sem myndi ekki freistast til þess. Fólkið velur forsetann Í byrjun maí varð ljóst að þrír yrðu í framboði til forseta. Ásgeir Ásgeirsson lét slag standa og það gerði einnig sjálfstæðismaðurinn Gísli Sveinsson sem hafði lengi setið á þingi og var meðal annars þingforseti þegar lýðveldi var stofn- að á Þingvöllum 1944. En hann naut hvorki alþýðuhylli né stuðnings í eigin flokki. Og svo var það séra Bjarni Jónsson vígslubiskup, hinn útvaldi kostur Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Um síðir hafði séra Bjarni orðið við óskum um framboð enda sannfærðu full- trúar stjórnarflokkanna hann um að þar sem hann hefði fylgi þeirra væri sigurinn vís. Vígslubiskupinn sá auðvitað fyrir sér að sitja á frið- arstóli, rétt eins og Ásgeir. Ekki myndi hann skipta sér af störfum alþingis eða ríkisstjórnar og við stjórnarmyndanir þæði hann ráð Ólafs Thors og Hermanns Jónas- sonar. En úrslitin voru fráleitt ráðin. Miklu skipti að Gunnar Thorodd- sen studdi tengdaföður sinn frek- ar en frambjóðanda eigin flokks og Framsóknar. Jafnframt var séra Bjarni kominn á gamals aldur þótt ern væri og hann var minna þekkt- ur til sveita en í höfuðborginni. Aftur á móti var Ásgeir Ásgeirsson í fullu fjöri og svaraði betur þeim kröfum sem margir gerðu til for- seta. Hann hafði fas og útlit með sér. Hann yrði virtur fulltrúi lands- ins, jafningi annarra þjóðhöfðingja og sannkallað sameiningartákn. Mest fylgi fékk Ásgeir þó vegna þess að kjósendum mislíkaði að stjórnmálaforingjarnir hugðust segja þeim fyrir verkum í forseta- kjöri. „Fólkið velur forsetann,“ sögðu Ásgeirsliðar. Fá kjörorð hafa náð eins vel hugum og hjört- um landsmanna og þessi yfirlýs- ing sumarið 1952. Að hinu verður þó líka að gæta að stuðningsmenn Ásgeirs hömpuðu lítt stuðningi Alþýðuflokksins og striki var slegið yfir þá staðreynd að lengi vel hafði hann vonast eftir því að fá form- legan stuðning Sjálfstæðisflokks- ins við framboð sitt. Þversögnin varð því sú að „ópólitíski“ fram- bjóðandinn hafði setið á þingi frá 1923 og verið fjármálaráðherra, forsætisráðherra, þingforseti og áhrifamaður í tveimur stjórnmála- flokkum. „Pólitíski“ frambjóðand- inn var grandvar guðsmaður sem hafði aldrei á þingi setið. Þótt forsetaefnin segðu ekki styggðaryrði hvert um annað á opinberum vettvangi var barátt- an æsileg. Tíminn og Morgunblað- ið fóru hamförum. Þessi málgögn stjórnarflokkanna líktu því nán- ast við drottinssvik ef sjálfstæðis- menn eða framsóknarmenn styddu Ásgeir, „frambjóðanda Alþýðu- flokksins“. Þannig áróður hreif þó ekki. Forsetaefnið átti sér sína póli- tísku fortíð en fólkið horfði fram á veg. Fjarri hinu pólitíska valdi Mjótt varð á munum í forsetakjör- inu 29. júní 1952. Ásgeir Ásgeirsson hlaut 32.924 atkvæði, séra Bjarni Jónsson 31.042. Gísli Sveinsson fékk 4.225 atkvæði og töldu sjálf- stæðismenn að með sínu vonlausa framboði hefði hann tryggt Ásgeiri sigur. Það þarf ekki endilega að vera rétt en samt má hafa í huga að séra Bjarni hefði hæglega getað haft betur. Þá hefði gangur sögunn- ar orðið allur annar en við verðum að horfa til þess sem gerðist, ekki þess sem hefði getað gerst. Með sigri Ásgeirs Ásgeirssonar feng- ust þau sannindi fyrst staðfest að í forsetakjöri á Íslandi hefur sá eða sú alltaf sigrað sem þykir standa fjærst hinu pólitíska valdi. Lykill- inn að sigri Ásgeirs lá í því að segj- ast vera forseti fólksins, ofar arga- þrasi stjórnmálanna. Hinn „ópólitíski“ forseti ítrekaði svo valdaleysi sitt við innsetningar- athöfn 1. ágúst 1952. Þótt stjórnar- skráin færði þjóðhöfðingja mikið vald í orði kveðnu kvað Ásgeir það takmarkast „við vilja Alþing- is og ríkisstjórnar“. Forystumenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks voru þó ekki í rónni og Her- mann Jónasson velti fyrir sér hvort stjórnin ætti ekki að biðjast lausn- ar fyrst kjósendur hefðu hafnað for- setaefni hennar. Svo lægði öldur um sinn. Ásgeir Ásgeirsson hélt í opinberar heim- sóknir til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar 1954 og þremur árum seinna til Finnlands. Þjóðhöfðingj- ar þessara landa komu hingað til lands og síðar fylgdu fleiri ferð- ir. Ásgeir stóðst væntingar þeirra sem kusu hann og ávann sér fylgi alls almennings. Hann þótti koma virðulega fram og bera hróður landsins víða með forsetafrúna, Dóru Þórhallsdóttur, sér við hlið. Mikilvægi þessa þáttar má ekki vanmeta fyrstu áratugi hins unga lýðveldis. Enga sósíalista í stjórn Á hátíðarstundum var forsetinn með sanni sameiningartákn. Ekki fór þó svo að hann hætti afskiptum af stjórnmálum. Sumarið 1956 sett- ist að völdum vinstri stjórn Fram- sóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags, undir forsæti Hermanns Jónassonar. Í stjórn- arsáttmála var stefnt að brottför bandarísks herliðs frá Íslandi en um það voru þó deildar meiningar meðal alþýðuflokksmanna. And- stæðingarnir réðu því að helsti málsvari þeirra, Guðmundur Í. Guðmundsson, varð utanríkisráð- herra. Þau áform studdi Ásgeir á laun. Í samtölum við vestræna sendimenn lýsti hann einnig andúð sinni á áformum ríkisstjórnarinn- ar. Þá ítrekaði hann í hátíðarræðum stuðning sinn við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Því reidd- ust sósíalistar en forseti gat hæg- lega bent á að ríkisstjórnin stefndi ekki að úrsögn úr því bandalagi. Ásgeir gætti sín á að tala ekki opin- berlega gegn stefnu hennar. Svo fór að hætt var við að reka herinn úr landi og síðla árs 1958 varð Hermann Jónasson að biðjast lausnar fyrir ráðuneyti sitt eftir hatrammar deilur um efnahags- mál. Ólafur Thors fékk þá umboð til stjórnarmyndunar, enda formaður stærsta flokksins á þingi, en komst ekki áleiðis. Beinast lá við að Her- mann fengi næst að spreyta sig og vitað var að hann vildi blása lífi í hina föllnu stjórn. Ásgeir sneri sér hins vegar til Emils Jónssonar, for- manns Alþýðuflokksins. Forseti ætlaði sér að koma í veg fyrir að sósíalistarnir í Alþýðubandalaginu yrðu áfram í stjórn. Fyrr myndi hann meira að segja skipa utan- þingsstjórn en á það reyndi að vísu ekki; við völdum tók minnihluta- stjórn Alþýðuflokksins sem síðan gekk til samstarfs við Sjálfstæðis- flokkinn í Viðreisnarstjórninni svo- kölluðu. Líkast til hefði reynst erfitt að endurvekja stjórn Hermanns Jón- assonar. Sífellt fleiri alþýðuflokks- menn töldu að landið myndi aðeins losna úr viðjum hafta í samvinnu þeirra og Sjálfstæðisflokksins. Ásgeir Ásgeirsson hafði því sín áhrif en skipti ekki sköpum um myndun Viðreisnarstjórnarinnar. Viljann sem þurfti var að finna meðal stjórnmálaflokkanna og for- ystumanna þeirra. Þrátt fyrir það er þetta ljóst: Á bak við tjöldin lagði Ásgeir sameiningartáknið frá sér. Þótt Alþingi hefði samþykkt brott- för Bandaríkjahers vann forseti gegn því og fengi hann nokkru um ráðið skyldu sósíalistar ekki vera í ríkisstjórn. Í hita kalda stríðsins gat íhlutunarsemi af þessu tagi talist til kosta. Varla er hún þó verðugt við- mið um okkar daga. Freistaðu ekki þjóðarinnar með þrásetu Viðreisnarstjórnin var við völd það sem eftir lifði embættistíð- ar Ásgeirs Ásgeirssonar. Frið- ur og ró færðist yfir Bessastaði og aðeins einu sinni lenti forseti í eldlínu stjórnmálanna. Vorið 1966 skoruðu þingmenn Alþýðubanda- lagsins á hann að synja lögum um álverið í Straumsvík staðfestingar enda væru þjóðarhagsmunir í húfi. Því sinnti Ásgeir ekki og þeirri afstöðu fagnaði höfundur „Reykja- víkurbréfs“ Morgunblaðsins. Sá var líklega Bjarni Benediktsson for- sætisráðherra og sagði hann synj- unarvaldið þess eðlis að því mætti forseti aðeins beita eftir eigin sam- visku en ekki ábendingu annarra. Hvorki Ásgeir né Bjarni sögðu hins vegar að valdið væri ekki fyrir hendi. Snemma í september 1964, rúmum mánuði eftir að fjórða kjör- tímabil Ásgeirs Ásgeirssonar hófst, lést Dóra Þórhallsdóttir. Sjálfur var Ásgeir kominn á áttræðisaldur og hafði frekar hægt um sig. Í nýársá- varpi 1. janúar 1968 tilkynnti hann, „svo ekki verði um villst“ eins og hann komst að orði, að hann yrði ekki í kjöri við forsetakosningar síðar um árið. Bætti forseti svo við: „Ekki skaltu freista Drottins Guðs þíns og þá ekki heldur þjóðar þinn- ar með þrásetu.“ Þegar Ásgeir Ásgeirsson hvarf úr forsetastóli sumarið 1968 hafði hann mótað embættið eftir sínu höfði, rétt eins og Sveinn Björns- son á undan honum. Ásgeir virti að sjálfsögðu þann grundvöll stjórnar- skipunarinnar að Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn. Á hinn bóginn gætti hann ekki ítrustu hlut- lægni við stjórnarmyndanir eins og þjóðhöfðingja bar; því réð andúð hans á sósíalistum og eindreginn stuðningur við vestræna varnar- samvinnu sem hann lét í ljós svo að ekki varð um villst. Að þessu leyti var Ásgeir „pólitískur“ forseti. Úrslitin 1952 ollu því að flokks- framboð voru úr sögunni við for- setakjör. Árið 1968 fór nú samt svo að stjórnmálamennirnir reyndu að véla um það hver næði kjöri. Tveir buðu sig fram, Gunnar Thoroddsen og Kristján Eldjárn. Báðir vildu forðast flokksleg tengsl en Gunnari reyndist það ómögulegt og fram- boð Kristjáns var í raun rammpóli- tískt. Sitthvað fleira var þó í hugum landsmanna þegar þeir veltu fyrir sér kostum og köllum frambjóðend- anna tveggja. Baráttan 1968 varð um margt ljót og leiðinleg. Forseti fólksins eða flokkanna? Sumarið 1952 gengu Íslendingar í fyrsta sinn til forsetakjörs. Kosningabaráttan var geysilega hörð og þegar upp var staðið gat munurinn vart verið minni. Guðni Th. Jóhannesson segir frá kjöri annars forseta lýðveldisins. Á LEIÐ TIL ENGLANDS Ásgeir Ásgeirsson og Dóra Þórhallsdóttir á Reykjavíkurflugvelli 18 nóvember 1963. Förinni var heitið til Englands og Ingimundur Magnússon ljósmyndari Vísis mætti á staðinn til að festa viðburðinn á filmu. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Þversögnin varð því sú að „ópólitíski“ frambjóðandinn hafði setið á þingi á frá 1923 og verið fjármálaráðherra, forsætisráðherra, þingforseti og áhrifamaður í tveimur stjórnmálaflokkum. „Pólitíski“ frambjóðandinn var grandvar guðsmaður sem hafði aldrei á þingi setið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.