Fréttablaðið - 02.06.2012, Page 92

Fréttablaðið - 02.06.2012, Page 92
2. júní 2012 LAUGARDAGUR56 Hvað heitir þú fullu nafni og hvað ertu gömul? Ég heiti Chloe Lang og ég er 10 ára gömul. Hvaðan ertu? Ég á heima í Connecticut í Bandaríkjunum. Áttu einhver systkini? Já, ég á eina systur og einn bróður. Þau eru bæði eldri en ég. Hvenær komstu til Íslands og hvernig líður þér hér? Ég kom til Íslands snemma í apríl. Mér finnst Ísland fallegt. Kom einhver með þér að heiman? Já, ég er hérna með mömmu minni og svo á ég von á gestum. Gengur þú í skóla á Íslandi, á meðan þú býrð hér? Nei, ég geng ekki í íslenskan skóla. Ég er með einkakennara sem kemur og kennir mér hérna á „settinu“. Hlakkar þú til að sjá þig í sjónvarpinu í hlutverki Sollu stirðu? Já, ég er mjög spennt. Ég get ekki beðið eftir að sjá fyrsta þáttinn. Hefur þú lengi verið leik- kona? Ég hef verið að leika und- anfarin tvö ár. Ætlar þú að verða leikkona í framtíðinni líka? Ég vonast eftir því að geta haldið áfram að leika þegar ég verð eldri. Ég elska það, það er ótrúlega gaman. Hvaða önnur framtíðarplön hefur þú? Mér þætti gaman að læra meira um listir. Svo lang- ar mig líka til að halda áfram að dansa. Hvaða íþróttir eru í upp- áhaldi hjá þér? Mér finnst mjög gaman í fótbolta, körfubolta og hafnabolta. Hvað fleira þykir þér gaman að gera? Mér finnst gaman að syngja, dansa, leika og mála. Horfir þú sjálf á Latabæ? Já, ég horfði á Latabæ þegar ég var yngri og geri það enn. Hver af Latabæjarkarakter- unum þykir þér skemmtilegast- ur? Ég held ég segi Siggi sæti, vegna þess að hann er alltaf glaður, alltaf spenntur og er allt- af samkvæmur sjálfum sér. En mér finnast allar persónurnar frábærar. krakkar@frettabladid.is 56 Ég vonast eftir því að geta haldið áfram að leika þegar ég verð eldri. Ég elska það, það er ótrúlega gaman. Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is Það ætti að teljast til sjálfsagðra mannréttinda að fá svalandi ís á heitum sumardögum. Stundum má maður það samt ekki og oftast má heldur ekki fá fleiri en einn. Þetta er frekar fúlt, þegar mann langar helst til að borða tíu stykki á einu bretti. Eitt gott ráð til að snúa á þessi boð og bönn er að búa til sinn eigin ís úr meinhollum ávöxtum. Hér er ofur einföld uppskrift að kíví- klaka sem svalar, hressir, kætir og bætir. 1. Takið nokkur kíví, flysjið þau og skerið í um það bil eins sentímetra þykka bita. 2. Bræðið nokkra bita af suðu- súkkulaði (þessu má líka alveg sleppa). 3. Takið tréprik og stingið í kívíið. Tréspýtur á borð við þessa á myndinni fást í apótekum. 4. Dýfið kívíinu ofan í súkku- laðið. 5. Leggið á flatan disk og skellið í frysti. 6. Takið út um það bil einni klukkustund síðar. 7. Borðið og njótið! Svo má skipta út ávöxtunum til að hafa úrvalið fjölbreytt- ara. Það er til dæmis sniðugt að nota vínber. Þau eru lygilega góð þegar þau eru frosin og svo er líka skemmtilegt að borða dúkkufrostpinna. Frostpinni fyrir alla, börn, konur og kalla NÝ SOLLA Í LATABÆ Chloe Lang heitir hin tíu ára bandaríska leikkona sem leikur Sollu stirðu í næstu seríu sjónvarpsþáttanna um Latabæ, sem nú er verið að taka upp. Chloe er mikil íþrótta- kona sem elskar að syngja og dansa. Hún er spennt að sjá sjálfa sig á skjánum. Chloe Lang er stödd hér á landi til að taka upp næstu seríu af sjónvarpsþáttunum um Latabæ, þar sem hún er í hlutverki Sollu stirðu, sem heitir reyndar Stephanie á ensku. MYND/LAZY TOWN Á VEFSÍÐUNNI WWW.EMMA.IS má nú sækja tvær nýjar barnabækur eftir Arnheiði Borg, Tobba töffara og Töfra tilverunnar. Á sama stað er að finna nokkrar eldri bækur eftir sama höfund. Bækurnar er að finna undir flokknum Léttlestrarefni og þeim má hlaða niður endurgjaldslaust, fyrst um sinn. Fróðleiksmolar úr prófum: Spurning: Hverjar eru fjór- ar helstu atvinnugreinar manna? Svar: Samlagning, frádráttur, margföldun og deiling. Spurning: Hvar eru Breta- konungar krýndir? Svar: Á höfuðið. Af hverju er nauðsynlegt að læra sögu? Svar: Svo maður viti eitthvað um afkomendur sína. Segðu frá því sem þú veist um hina síðustu kvöldmál- tíð. Svar: Ég var ekki þar, ég lá í flensu. Á Vísi er hægt að horfa myndskreyttan upplest úr þessum sígildu ævintýrum. Hlustaðu á Dísu ljósálf og Alfinn álfakóng á Vísi á ur Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.