Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 113

Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 113
LAUGARDAGUR 2. júní 2012 77 FÓTBOLTI Brendan Rodgers var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Liverpool en hann tekur við starf- inu af Kenny Dalglish sem var rekinn í lok leiktíðar. Hinn 39 ára gamli Rodgers lofar því að skila árangri og loks Eng- landsmeistaratitlinum á Anfield. „Ég lofa því að ég mun berjast fyrir lífi mínu og fyrir allt fólkið í borginni. Liðið er ekki í stakk búið til þess að vinna titilinn núna en undirbúningur að því að vinna titilinn hefst í dag,“ sagði Rodgers sem ku hafa skrifað undir þriggja ára samning. Forráðamenn Liver- pool hafa augljóslega mikla trú á Rodgers enda greiddu þeir Swan- sea 7 milljónir punda til þess að fá hann. „Ef menn ná árangri hjá félag- inu þá verða þeir lengi hérna. Það er mitt markmið. Auðvitað snýst allt á endanum um úrslit og þróun liðsins. Ég er mjög stoltur og er lánsamur að fá tækifæri til þess að stýra þessu félagi.“ Rodgers vildi ekki að félagið myndi ráða yfirmann knatt- spyrnumála. Þess í stað var sett á fót nefnd sem mun í samráði við Rodgers taka ákvarðanir um leik- mannamál og annað slíkt. „Ég veit að sumir stuðnings- mannanna efast um mig en ég von- ast til þess að ávinna mér virðingu þeirra með tíð og tíma.“ Samkvæmt heimildum BBC var líka samkomulag á milli Liverpool og Swansea að Liverpool myndi ekki kaupa leikmenn af Swansea næsta árið. Það útilokar þó ekki Gylfa Þór Sigurðsson sem er leik- maður Hoffenheim. - hbg Hinn 39 ára gamli Brendan Rodgers á að rétta Liverpool-skútuna við: Ég mun berjast fyrir lífi mínu MÆTTUR Á ANFIELD Rodgers var kynntur til leiks á hefðbundinn hátt í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur lengt leik- bann Johns Terry, fyrirliða Chel- sea, í Meistaradeildinni og hann mun því missa af fyrstu tveim leikjum liðsins í deildinni næsta vetur. Terry var í banni í úrslita- leiknum eftir að hafa fengið rautt spjald í seinni undanúrslitaleikn- um á móti Barcelona. Samkvæmt aganefnd UEFA gerðist Terry sekur um ofbeldisfulla hegðun þegar hann setti hnéð í bak Alex- is Sanchez. Terry má áfrýja úrskurðinum en ekki liggur fyrir hvort hann geri það. - hbg Knattspyrnusamband Evrópu: Terry dæmdur í lengra bann FÓTBOLTI Það búast flestir fótbolta spekingar við því að Þýskaland vinni Evrópumeist- aratitilinn í sumar en það vita kannski færri að Þýskaland verð- ur með yngsta hópinn í keppn- inni. Þjálfarar liðanna sextán hafa nú allir tilkynnt inn EM- hópa sína og þá kemur í ljós að Þjóðverjar hafa aldrei farið með yngra lið í úrslitakeppni EM. Meðalaldur þýska hópsins er 24,5 ár en hann var 25,0 á HM í Suður-Afríku fyrir tveimur árum. Joachim Löw tók að þessu sinni inn unglinga eins og Mario Götze, Andre Schurrle og Ilkay Gundogan og valdi þá í stað eldri manna. Pólverjar eiga næst- yngsta liðið (25,1) og Englend- ingar, sem voru með elsta liðið á HM 2010, eru nú í þriðja sæti en meðalaldur enska liðsins er 26,04 ár. Írar eru aftur á móti með elsta hópinn en meðalaldur hans er 28,35 ár eða pínulítið eldri en hópur Rússa (28,34) og Svía (28,30). Hollendingurinn Jetro Willems (18 ára síðan í mars) er yngst- ur allra leikmanna en sá elsti er gríski markvörðurinn Kostas Chalkias sem er 38 ára. - óój Yngstu hóparnir á EM : 1. Þýskaland 24,52 2. Pólland 25,13 3. England 26,04 4. Danmörk 26.57 4. Frakkland 26.65 6. Spánn 26.78 Elstu hóparnir á EM: 16. Írland 28,35 15. Rússland 28.34 14. Svíþjóð 28,30 13. Ítalía 27,91 12. Úkraína 27,30 11. Tékkland 27,26 EM í fótbolta í sumar: Þjóðverjar með yngsta liðið MARIO GÖTZE Verður 20 ára á morgun og er yngstur í þýska liðinu. NORDICPHOTOS/GETTY Ágætu vinir! Ég er uppseldur og því staddur í Búðardal þessa dagana en kem aftur í næstu viku. Ég þakka ykkur fyrir frábærar viðtökur. Hefði aldrei trúað því að svona ljótur ostur yrði svona vinsæll. Ég er meyr og mjúkur. Þakka ykkur. LjóturYkkar Aðdáendur nær og fjær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.