Fréttablaðið - 14.07.2012, Side 18

Fréttablaðið - 14.07.2012, Side 18
14. júlí 2012 LAUGARDAGUR18 Ég tók enga opinbera styrki og var ekkert í sambandi við Húsafriðunarnefnd en ég gæti fengið styrki ef ég bryti allt utan af húsinu, klæddi það innan með gifsi og tæki kvistinn af. Þetta er eins og ljótur fótboltaleikur, hrindingar og spark í bakið og ef maður kallar á dómarann þá er manni vísað af velli. E rlendur Magnússon er að koma úr sundi á hjólinu sínu þegar blaðamaður og ljós- myndari renna í hlað. Húsið hans er elsta íbúðarhús Blönduóss og útskorinn gluggaumbúnaður og skúlptúrar í garðinum eru til vitnis um áhugamál húsbónd- ans. Það eru einmitt áhugamál hans og iðja sem okkur langar að mynda og segja frá. En honum liggur mikið á hjarta. Burt með 25 tonn af brunnu efni „Þetta hús brann árið 1999 og var búið að standa brunnið í fjögur ár þegar ég keypti það 2003. Ég var að leita mér að lóð undir högg- myndagarð og leist vel á þessa en þá fylgdi henni brunarúst. Ég keyrði burt 25 tonn af brunnu efni innan úr húsinu og hreinsaði upp þá burðarviði sem eftir stóðu en húsið hékk uppi á þeim og góðri múrhúð sem hafði verið sett utan á það 1940. Áður en ég keypti var mér sagt að ég mætti byggja hér vinnustofu en þegar ég var búinn að byggja upp var ég svikinn. Ég má ekki hafa vinnustofu á lóðinni, ekki heitan pott, ekki fuglaskoð- unarhús, ekki neitt. Nú snýst allt um að ná lóðinni af mér en hún er búin að fylgja þessu elsta íbúðar- húsi bæjarins í 130 ár. Eftir að ég var búinn að endurbyggja húsið vildu bæjaryfirvöld viðhalda því eins og það hafði verið. Ég tók enga opinbera styrki og var ekk- ert í sambandi við Húsafriðun- arnefnd en ég gæti fengið styrki ef ég bryti allt utan af húsinu, klæddi það innan með gifsi og tæki kvistinn af. Þetta er eins og ljótur fótboltaleikur, hrindingar og spark í bakið og ef maður kall- ar á dómarann þá er manni vísað af velli.“ Allt útskorið Að svo mæltu býður Erlendur í bæinn. Þar er margt að skoða. Inn eftir ganginum tekur hvert útskorna listaverkið við af öðru. „Ég kalla þetta ekki listaverk og signera þau aldrei. Þetta eru bara Byggt upp úr brunarústum Erlendur Finnbogi Magnússon er einn reyndasti hönnuður og handverksmaður landsins og verk hans má sjá víða. Gunnþóra Gunnarsdóttir og Gunnar V. Andrésson ljósmyndari heimsóttu þennan hagleiksmann á vesturbakka Blöndu. 1. Borðstofan Á neðri hæðinni er þessi huggulega stofa en eldhúsið er ekki bara notað fyrir eldamennsku heldur líka smíðar. 2. Hurð í Mjölni Einn af nýlegum smíðisgripum Erlends er hurð í líkamsræktarstöðinni Mjölni sem dóttir hans og tengdasonur eiga. 3. Kósýhorn Þetta hlýlega horn er í holinu á efri hæð. 4. Við Valþjófsstaðaborðið „Ég fór í Iðnskólann og Hand- íðaskólann, sýndi verk með Súmurum, ungum myndlistar- mönnum á Skólavörðuholti.“ 5. Sjónvarpshægindi Öll húsgögn bera hagleik húsbóndans vitni. BRIMSLÓÐ Erlendur vinnur ekki bara úr tré heldur líka járni eins og ýmsir skúlptúrar á lóðinni bera vott um. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.