Fréttablaðið - 14.07.2012, Síða 24

Fréttablaðið - 14.07.2012, Síða 24
KYNNING − AUGLÝSINGEldvarnir & öryggisbúnaður LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 20122 SÆKTU UM LEYFI FYRIR VARÐELDINUM Það er ekki margir sem að vita að sækja þarf um leyfi hjá lögreglunni áður en kveiktur er varðeldur. Uppfylla þarf skilyrði fyrir að mega kveikja varðeld en þau eru lykilatriði fyrir öruggt bál. Skilyrðin eru þau að eldstæðið skal varið með óbrennanlegu efni svo tryggt sé að eldur breiðist ekki út og það þarf að vera einn ábyrgðarmaður sem passar upp á að það stafi ekki hætta af varðeldinum. Hann þarf einnig að ganga frá að brennu lokinni. Ábyrgðarmaðurinn þarf auk þess að passa upp á að það sé einungis brennt efni sem leyfilegt er að brenna samkvæmt reglugerð. Fleiri skilyrði eru fyrir því að mega kveikja varðeld sem vert er að kynna sér. Sjá nánar á Logreglan.is. Guðmundur Gunnarsson hjá Mannvirkjastofnun hefur starfað við eldvarnamál frá 1982 og veit því meira en margur um brunavarnir fyrir ýmsar gerð- ir húsa. Sumarhús Hvað reglur snertir segir Guð- mundur sumarhús lúta sömu kröf- um og hefðbundin íbúðarhús þó ólík séu. „Gas er almennt notað í sumarhúsum og af því getur stafað hætta. Því er mikilvægt að vera með gasskynjara og tryggja að lagnir séu í lagi. Góð loftun er mikilvæg þar sem logandi gas brennir súrefn- inu í rýminu sem getur verið lífs- hættulegt. Þetta hefur gerst í litlum fjallaskálum og minni húsum þar sem gas hefur verið notað til upp- hitunar.“ Nauðsynlegt er að huga vel að reykskynjurum í húsum sem eru óupphituð þar sem frost getur vald- ið skemmdum á skynjaranum. Best er að athuga þá að vori ár hvert. Ef frost er í húsunum er nauðsynlegt að hafa dufttæki þar sem þau þola frost, önnur tæki eiga á hættu að skemmast við slíkar aðstæður. Á svefnlofti þarf að vera neyðar- útgangur. „Í nýrri húsum er skylda að hafa neyðarútganga, til dæmis stóran opnanlegan glugga, en mörg eldri hús eru án þeirra. Oft eru börn látin sofa á slíkum loftum. Gott er að leyfa þeim að leika sér að fara inn og út um gluggann, svo þau kunni á hann komi upp hættu- ástand. Ef þeim hefur til dæmis verið bannað að opna slíka glugga gætu þau litið fram hjá honum þegar á þarf að halda.“ Ferðahýsi Ferðahýsi eru f lest gerð úr auð- brennanlegum efnum sem brenna á örskotsstundu komi upp eldur. Opinn eld ber því að umgangast af sérstakri varúð og virðingu. „Mik- ilvægt er að gaslagnir séu í lagi og yfirfarnar reglulega. Auðvelt er að athuga leka á samskeytum og lögn- um. Sérstöku efni eða sápuvatni er sprautað á lagnir þegar þrýsting- ur er á kerfinu. Ef leki er til stað- ar þá koma loftbólur í ljós. Nefið nemur líka gaslykt mjög auðveld- lega.“ Nauðsynlegt er að hafa gas- skynjara í hýsum sem nota gas inn- andyra. Slökkvitæki og eldvarnar- teppi ættu líka að vera meðferðis í slíkum húsum. Spurður um hvað almennt ætti að hafa í huga við eldvarnir ferða- hýsa segir Guðmundur að fólk ætti að fara varlega, bera ábyrgð á sjálfu sér og bera virðingu fyrir eldinum. „Mun auðveldara er að koma í veg fyrir að eldur kvikni en að slökkva hann.“ Eldvarnir í fríinu Guðmundur Gunnarsson, sviðsstjóri eldvarnasviðs Mannvirkjastofnunar, segir að mörgu að hyggja þegar kemur að eldvörnum sumarhúsa og ferðahýsa. Guðmundur Gunnarsson hefur starfað við eldvarnamál frá árinu 1982 og veit því ýmis- legt um brunavarnir í sumarhúsum og ferðahýsum. MYND/VALLI Eldvarnarpakki 1 Tilboðsverð í netverslun 14.668 kr. Sími 570 2400 · oryggi.is Stöndum vaktina allan sólarhringinn Eldvarnarpakkar í miklu úrvali fyrir heimili og fyrirtæki Þú færð öryggis- og velferðarvörurnar á oryggi.is Tilvalið í bílinn eða ferðavagninn Eldvarnarpakki 2 Tilboðsverð í netverslun 20.937 kr. Eldvarnarpakki 3 Tilboðsverð í netverslun 13.398 kr. Eldvarnarpakki 4 Tilboðsverð í netverslun 7.205 kr. Eldvarnarpakki 5 Tilboðsverð í netverslun 14.177 kr. ÁRMÚLA 42, 108 REYKJAVÍK, SÍMAR 553 4236 & 553 5336, glofaxi@simnet.is, www.glofaxi.is Eldvörn er nauðsyn ELDVARNARHURÐIR Rennihurðir - gönguhurðir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.