Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2012, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 14.07.2012, Qupperneq 48
14. júlí 2012 LAUGARDAGUR28 krakkar@frettabladid.is 28 Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is SPILASTOKKINN MEÐ Spilastokkur á heima í ferðalagi jafnt sumar sem vetur. Taktu spil með í ferðalagið og taktu slaginn við pabba og mömmu, í tjaldinu, sumarbústaðnum eða á ströndinni. Kennarinn: „Hvaða dýr kallast rándýr?“ Nonni: „Það eru dýr sem kosta mikið.“ Óli: „Það eru til hundar sem eru vitrari en eigendur þeirra.“ Kári: „Já, ég veit það, ég á einn.“ Kennarinn: „Hvernig stendur á því, Nonni, að jörðin er flatari við pólana en annars staðar eins og sést á hnattlíkaninu.“ Nonni: „Það veit ég ekki, ég hef ekki komið nálægt hnett- inum og hann var líka svona í fyrra.“ Amma: „Bjarni minn, góður drengur er aldrei óþægur við foreldra sína.“ Bjarni: „Við hverja þá?“ Hvað heitir þú fullu nafni? Ingunn Ragnarsdóttir. Hvað ertu gömul? Ég er 8 ára. Ertu mikill lestrarhestur? Já. Hvenær lærðir þú að lesa? Þegar ég var 6 ára. Hvað er skemmtilegt við að lesa bækur? Þær eru svo spennandi. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Það var Búddi bangsabarn – óttalegt kjánaprik. Hvers lags bækur þykja þér skemmtilegastar? Disney- bækur. Hvaða bók lastu síðast og hvernig var hún? Risinn eigin- gjarni. Hún var skemmtileg. Hún er um risa sem vill ekki að börnin leiki í garðinum, en þá kemur ekki vorið í garðinn. Þegar börnin koma í garðinn þá kemur vorið í garðinn hjá honum og þá vill risinn að þau leiki sér í garðinum. Í hvaða hverfi býrð þú? Lang- holtshverfi. Í hvaða skóla gengur þú? Langholtsskóla. Hvaða námsgrein er skemmtilegust? Textíll, heim- ilisfræði og smíðar. Hver eru þín helstu áhuga- mál? Fimleikar, sund, hjólreið- ar, línuskautar og að leika með vinunum mínum. Bókaormur vikunnar Hvað ertu gömul? „Ég verð þrettán ára í ágúst.“ Eftirlætisnámsgreinar? „Íslenska, náttúrufræði og saga.“ Hvernig kom áhugi þinn á fugl- um til? „Ég var heima hjá ömmu minni og afa á Höfn í Hornafirði fyrir tveimur árum þegar eitt- hvað small í hausnum á mér og síðan hefur bara allt snúist um fugla.“ Hvaða fuglar vöktu fyrst athygli þína? „Allir sem ekki var auð- velt að finna og það er þann- ig enn. Það er svo rosalega skemmtilegt að rekast á fugl sem maður hefur aldrei séð áður.“ Hvað er skemmtilegast að við fuglana? „Bara lífshættir þeirra og fjölbreytileiki.“ Hverjir eru flottastir? „Margir, til dæmis flórgoði, straumönd og himbrimi.“ Er einhver sérstakur flokkur í uppáhaldi? „Pottþétt mófuglar – þeir gefa frá sér svo yndisleg hljóð.“ En tegund? „Já, óðinshanarnir, þeir eru ótrúlega merkilegir og skemmtilegir. Hjá þeim verpa kvenfuglarnir til dæmis eggj- unum en yfirgefa hreiðrið stuttu seinna og karlfuglarnir sjá um útungun og að koma ungunum á legg. Það er sjaldgæft meðal fugla.“ Þekkir þú fuglahljóðin? „Já, nokkurn veginn en samt er ég miklu betri í að þekkja fuglana sjálfa.“ Hefur þú fundið mörg hreið- ur? „Já, hrossagauks, maríu- erlu, óðinshana, starra, þrastar, stuttnefju, langvíu, ritu og mörg fleiri.“ Hafa kríur, kjóar eða skúmar ásótt þig? „Nei, sem betur fer hef ég verið laus við það.“ Hefur þekking þín á fuglum nýst í skólanum? „Já, í fimmta bekk vorum við að læra um fuglana og það var bara mjög gaman.“ Áttu þér fleiri áhugamál? „Já, til dæmis hesta og Harry Potter. Ég er einmitt að lesa Harry Potter- bækurnar í fimmta skipti núna.“ Ertu farin að spá í hvað þig langar að gera í framtíðinni? „Jábbs, ég ætla að fara á nátt- úrufræðibraut og verða fugla- fræðingur.“ gun@frettabladid.is SÍÐAN HEFUR BARA ALLT SNÚIST UM FUGLA Fuglar himinsins eru fjölbreytilegir og spennandi. Það uppgötvaði Berglind Pét- ursdóttir þegar hún dvaldi hjá ömmu sinni og afa á Hornafirði fyrir tveimur árum. Á ÚTKIKKI EFTIR FUGLUM Berglind býr í Kópavogi og segir ótrúlega fjölbreytt fuglalíf þar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Bragi Halldórsson 24 „Síðasta þrautin í ratleiknum er völundarhús,“ sagði Lísaloppa. „Og við erum fyrstar,“ bætti hún við og spennan leyndi sér ekki. „Þá er eins gott að drífa sig“ sagði Kata ákveðin. „Ekki viljum við tapa á lokametrunum.“ Getur þú hjálpað Kötu og Lísuloppu að rata í gegnum völundarhúsið? Á Vísi er hægt að horfa á mynd skreyttan upp lestur úr þessum sígildu ævintýrum. Hlustaðu á Dísu ljósálf og Alfinn álfakóng á Vísi Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.