Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2012, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 14.07.2012, Qupperneq 62
14. júlí 2012 LAUGARDAGUR42 PERSÓNAN Jón Kaldal Aldur: 44 ára. Starf: Blaðamaður og ritstjóri. Foreldrar: Jón Kaldal bygginga- fræðingur (látinn) og Steinunn K. Kristinsdóttir, heil- brigðisritari á Landakoti. Fjölskylda: Giftur Rögnu Sæmundsdóttur. Saman eiga þau tvö börn, Jón Kaldal IV., 16 ára, og Örnu Kaldal, 13 ára. Búseta: Njálsgata Stjörnumerki: Krabbi Jón er ritstjóri nýs blaðs, Iceland Review Street Edition, sem kemur út í fyrsta skipti þann 20.júlí næstkomandi. „Ég verð á sviðinu í um klukkustund og fer svo og skemmti mér með öðrum á hátíðinni eftir það,“ segir söngvarinn heimsþekkti Ronan Keating sem treður upp á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina. Aðspurður hvort hann þekki til Þjóðhátíðar svarar hann því neit- andi. „Ég hef ekki hugmynd um hvað ég er búinn að koma mér út í,“ segir hann smeykri röddu en fyllist spenningi þegar blaðamaður segir honum frá hátíðinni í grófum drátt- um. „Vúhú! Ég get ekki beðið,“ segir popparinn sem stígur á svið á sunnu- dagskvöldinu. Keating segist ætla að bjóða upp á bland í poka á tónleikunum. „Ég tek þessa helstu slagara sem fólk þekk- ir, eins og Life Is a Rollercoaster og When You Say Nothing at All,“ segir hann og tekur fram að tónleikarnir verði í rokk og ról stíl. „Ég ætla ekki að fara að taka nein Boyzone-spor á sviðinu,“ bætir hann við en hann er þekktastur fyrir að hafa farið fyrir strákasveitinni á tíunda áratug síð- ustu aldar. Það voru ófáar stelpur með her- bergisveggi sína þakta af myndum af kauða á árum áður og eflaust bíða margar þeirra spenntar eftir tæki- færi til að hitta hann í eigin pers- ónu. Ekki skemmir fyrir að hinn 35 ára gamli hjartaknúsari er nýlega orðinn einhleypur, en hann skildi við konu sína til fjórtán ára í apríl síðastliðnum. En er hann tilbúinn að hleypa ástinni inn í líf sitt á ný? „Ef ég hitti réttu stelpuna er aldrei að vita,“ segir hann daðurslega og segist meðvitaður um að íslenskt kvenfólk sé talið með því fallegasta í heiminum. Það er því aldrei að vita nema heppin íslensk stúlka í appel- sínugulum pollagalla fangi hjarta Írans í brekkunni. Þetta verður í þriðja skipti sem Keating kemur á íslenska grund og spurður hinnar klassísku spurning- ar How do you like Iceland? svarar hann með nokkrum góðum lýsingar- orðum, þar á meðal brilliant, great og fantastic. Heimsóknin verður þó stutt að þessu sinni því hann flýg- ur til landsins 4. ágúst og burt aftur þann sjötta. „Ég verð bara að koma aftur fljótlega,“ segir hann kíminn. Söngvarinn hefur í nógu að snúast þessa dagana og gefur út sína fyrstu sólóplötu frá árinu 2006, Fires, nú í september. „Fyrsta lagið af plötunni fer í spilun í næstu viku svo það er brjálað að gera við að undirbúa það,“ segir Keating sem var í miðri myndatöku þegar blaðamaður náði af honum tali. Í febrúar er svo kvik- myndin Goddess væntanleg í kvik- myndahús, en þar reynir Keating fyrir sér í leiklistinni í fyrsta skipti. „Það er nýr heimur að opnast fyrir mér og ég er rosalega spenntur að sjá hvort ég geti leikið,“ segir hann hlæjandi og lofar að hann muni þó alltaf halda áfram að syngja með- fram leiknum. tinnaros@frettabladid.is RONAN KEATING: EF ÉG HITTI RÉTTU STELPUNA ER ALDREI AÐ VITA Einhleypur Ronan Keating mun djamma á Þjóðhátíð STUTT HEIMSÓKN Söngvarinn stoppar aðeins á landinu í tvær nætur en hlakkar þó mikið til komunnar, sérstaklega eftir að blaðamaður sagði honum í grófum dráttum hverju hann mætti eiga von á í Eyjum. NORDICPHOTOS/GETTY „Þetta verða átta þættir og fjallað um eitt til tvö mál í hverjum þeirra,“ segir Sigrún Ósk Krist- jánsdóttir fréttakona sem mun stjórna íslenskum þáttum um Neyðarlínuna sem verða sýndir á Stöð 2 í haust. Þættirnir segja fjölbreyttar sögur af fólki sem hefur þurft á aðstoð Neyðarlínunnar að halda. „Ég læt mér ekki detta í hug að biðja fólk um að fara út í nein leik- ræn tilþrif, en að öðru leyti er þetta svipuð hugmynd og amer- ísku 911-þættirnir því við notum upptökur af símtölum og svoleið- is,“ segir Sigrún Ósk og á þar við þættina Rescue 911 sem sýnd- ir voru á árunum 1989 til 1996. Þættirnir eru ekki fræðsluþættir en að sögn Sigrúnar fela þeir þó í sér óbeina fræðslu. „Í símtölun- um heyrast ráðleggingar neyðar- varða og í sumum þáttum býður fagfólk upp á góð ráð,“ segir hún. Hugmyndin kviknaði fyrst fyrir þremur árum þegar Sigrún vann frétt um Skyndihjálparmann árs- ins. „Það var ung kona sem var valin það árið og við gerðum mjög veigamikla frétt um hana,“ segir hún en fréttin fékk mikil viðbrögð og sá Sigrún strax að þarna væri komið efni sem hægt væri að gera meira úr. Enn er pláss fyrir fleiri sögur í þættina og hvetur Sigrún Ósk alla til að senda sér ábendingar á póst- fangið sigrunosk@stod2.is. „Mig langar til dæmis að gera einn þátt um mikilvægi þess að kenna börn- um númerið, svo ef einhver þekk- ir dæmi þar sem börn hafa bjarg- að málunum þá væri sérstaklega gaman að heyra af því,“ segir hún. Helst er hún að leita að málum sem gerst hafa á síðustu tveimur árum þar sem erfitt er að nálgast neyð- arlínusímtöl fyrir þann tíma. - trs Sigrún Ósk gerir þátt um Neyðarlínuna NÝR WILLIAM SHATNER Neyðarlínan byggir á fyrirmynd amerísku þáttanna Rescue 911 sem stjórnað var af William Shatner. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÚTSALA ÚTSALA nú 20% aukaafsláttur af útsöluvörum. Hvaða Spirulina ert þú að taka? Árangur fer eftir gæðum Lífrænt ofur fjölvítamín náttúrunnar Næringarupptaka úr Lifestream Spírulína er meira og nýtist betur en úr nokkru öðru fæði. Fullkomið jafnvægi næringarefnanna gefur einbeitingu, langvarandi náttúrlega orku og er gott gegn streitu. Dregur úr ofvirkni, sykurlöngun og sleni. Styrkir ónæmikerfið, hentar börnum og fullorðnum. 13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Fríhöfninni og Hagkaup Hraust og hress Árangur strax! www.celsus.is Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringaefnin. Vottað lífrænt Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12 Sprengisandur kraftmikill þjóðmálaþáttur „Við tökum öll vinsælustu lögin eins og Í Reykjavíkurborg, Dans dans dans og Þú og ég,“ segir Helga Möller. Hún stígur á svið Innipúkans með Jóhanni Helgasyni en holdgervingur diskótímabilsins, Þú og ég, snýr aftur ásamt Moses Hightower á tíu ára afmæli tónlistarhátíðarinnar um verslunarmannahelgina. „Ég er svo ung í anda að ég tek þessum krökkum sem jafnöldrum mínum en kannski geta þau lært eitthvað af okkur, reynsluboltunum,“ segir Helga og Jóhann tekur í sama streng. „Þetta eru ungir krakkar að gera skemmti- lega hluti og það er gaman að smella saman þessu eldra og yngra.“ Síðasta plata tvíeykisins kom út árið 1982. „Þá var diskóbylgjan sem er orðin sígild núna í rénun,“ segir hann. Afmælishátíðin verður haldin, líkt og fyrsti Innipúkinn, í Iðnó og er hljómsveita- val ekki af verri endanum en Ojba Rasta, Tilbury, Borko, Prinspóló, Oculus, Úlfur Úlfur, Mammút, Jónas Sigurðsson, Just Another Snake Cult, Anna Svava, Lay Low, Ásgeir Trausti og Kiriyama Family koma fram. Hátíðin nær yfir þrjá daga og hefst miðasala á mánudaginn á Midi.is. - hþt Þú og ég snýr aftur á Innipúkanum REYNSLUBOLT- AR Helga og Jóhann ætla að sýna krökkunum hvernig á að gera þetta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.