Fréttablaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 1
ÖRYGGISMÁL Flugmálastjórn segir
að þegar tveir hælisleitendur
komust óséðir um borð í far-
þegaþotu aðfaranótt 8. júlí síðast-
liðins hafi eftirliti með aðgangs-
stýringu, eftirliti með flughlaði
og vernd loftfars verið ábóta-
vant. Þetta kemur fram í minnis-
blaði Flugmálastjórnar (FMS) til
innan ríkisráðuneytisins.
Um atvikið segir að mennirnir
tveir „hafi komist yfir girðingu
þar sem framkvæmdir stóðu yfir,
óséðir yfir hlað og sáust ekki á
eftirlitsmyndavélum, upp stiga-
bíl og um borð í flugvél sem var
opin og óvöktuð“. Einnig mun
koma fram í minnisblaði FMS að
ákvæði laga um flugvernd hafi
brugðist. Gripið hafi verið til
skammtímaráðstafana en fara
þurfi yfir verklag eftirlitsmanna,
myndavélavöktun, vernd flugvéla
og fleira. Áætlun verði tilbúin í
lok ágúst.
Isavia, sem annast rekstur flug-
valla á Íslandi, sagði hins vegar
í yfirlýsingu daginn eftir atvikið
að „öryggiskerfið hafi virkað
þar sem að áhöfn Icelandair
hafi fylgt forskrifuðum verk-
lagsreglum í hvívetna og fundið
mennina áður en vélin fór í
loftið.“ Jafnframt að við skoðun
á verklagi öryggisstarfsmanna
Isavia hafi „ekkert athugavert“
komið í ljós. „Í ljósi alvarleika
málsins mun Isavia yfirfara
öryggiseftirlit með starfssemi á
svæðinu, þrátt fyrir að öryggis-
kerfið hafi virkað í þessu tilviki,“
sagði Isavia þó.
Spurður um ósamræmi sem
virðist vera í mati FMS og Isavia
á öryggismálunum á Keflavíkur-
flugvelli þessa umræddu nótt
segir Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra skiljanlegt að
menn velti vöngum yfir því.
„Það er alveg rétt sem Isavia
benti á sínum tíma á að menn-
irnir hefðu ekki komið ásetningi
sínum fram en hins vegar er aug-
ljóst að þarna var alvarleg brota-
löm í öryggiskerfinu. Það er þess
vegna sem menn eru að setjast
yfir þetta núna og munu grípa
til þeirra ráðstafana sem talin
er vera þörf á. Menn taka þetta
alvarlegum tökum vegna þess að
málið er litið alvarlegum augum,“
segir innanríkisráðherra. - gar
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
skoðun 20
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
veðrið í dag
2. ágúst 2012
180. tölublað 12. árgangur
FULLKOMINN FERÐAFÉLAGI!
Opið
til
21
í kvö
ld
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
19
5 30. júlí - 4. ágúst
SJÓNVARP Jóhannes Haukur
Jóhannesson leikur Egil Skalla-
grímsson í stjörnum prýddri sjón-
varpsþáttaröð um Íslendingasög-
urnar sem Vesturport framleiðir.
Þættirnir kallast Ferðalok.
Tökur fara meðal annars fram
erlendis þar sem viðtöl verða tekin
við „leikstjóra, leikara, rithöfunda
og alls kyns stórstjörnur sem hafa
sótt innblástur í Íslendingasögurn-
ar,“ segir Rakel Garðarsdóttir, sem
sér um framleiðslu þáttanna, án
þess þó að gefa upp um hvaða stór-
stjörnur ræðir. - hþt / sjá síðu 62
Vesturport á fornum slóðum:
Íslendingasögur
í nýrri þáttaröð
HYLLT Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff eiginkona hans komu fram á svalir þinghússins eftir að Ólafur undirritaði
embættiseið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
R ebekka Rut Marinósdóttir er 19 ára stúlka sem er í Fjölbraut í Garðabæ. Hún heldur úti tísku-blogginu Vanadisin.blogspot.com ásamt Hönnu Margréti Arnardóttur og Kol-finnu Kristínardóttur, vinkonum sínum. Bloggið byrjaði sem verkefni hjá skap-andi sumarstarfi og hafa þær haldið því úti í heilt ár. Á síðunni er sýnt hvernig breyta má fötum á einfaldan hátt. Þar er umfjöllun um tísku og einnig eru ljós-myndir og myndbönd eftir þær sjálfar. Rebekka segir að hún hafi allt f háhuga á tí
skipti sem það er eitthvað flott á Íslandi
þá kostar það yfir 20.000 krónur,“ segir
Rebekka, þó hún viðurkenni að hún eigi
oft erfitt með að bíða eftir utanferðum
og kíki þá í búðir hér heima. Þegar Rebekka er spurð út í haust-tískuna þá segir hún að líklegast munu
gallajakkar halda áfram út í haustið, sérstaklega stórir, ásamt stórum og víðum fötum sem svipa til tíunda ára-tugarins. Henni þykir einnig líklegt aðhipphopp eð
GERA MYNDBÖND OG MYNDAÞÆTTISKAPANDI TÍSKUBLOGG Rebekka Rut heldur úti tískublogginu Vanadís ásamt vinkonum sínum. Verkefnið byrjaði sem skapandi sumarstarf fyrir ári.
HIPP OG KÚLJakkinn sem Rebekka klæðist er úr Primark. Buxurnar og bolurinn úr American Apparel og skórnir úr Bianco.MYND/VILHELM
GADDAR Á HVERRI FLÍKGaddar hafa verið mikið í tísku síðustu tvö ár og
virðist ekkert lát vera á því. Auðvelt er að bæta
göddum á fötin sín og skó, en gaddana er hægt að
nálgast í helstu vefnaðarvöruverslunum.
Hnéhlífar
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
Teg 42027 - fæst í C,D,E skálum á kr. 5.800,- buxur í stíl á kr. 1.995,-
ÆÐISLEGUR í nýjum lit
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Lokað á laugardögum í sumar
Kjólaganga
Gönguhópurinn Franskir
kossar stendur fyrir kjólagöngu
á Skjaldbreið á þriðjudag.
Drullan vinsæl
Metþátttaka verður í
Mýrarboltanum um helgina
og mikil fjölgun stelpuliða.
popp 62
Augljósar brotalamir
á Keflavíkurflugvelli
Flugmálastjórn segir eftirliti hafa verið ábótavant þegar hælisleitendur komust
um borð í þotu á Keflavíkurflugvelli. Alvarleg brotalöm í öryggiskerfinu segir
innanríkisráðherra. Eðlilegt sé að velta fyrir sér misvísandi mati Isavia og FMS.
SÓL OG BLÍÐA Í dag verður hæg
norðlæg átt eða hafgola. Léttskýjað
víðast hvar og hitinn á bilinu 10-20
stig, mildast SV-lands.
VEÐUR 4
14
15
13
13
10
Það er alveg rétt sem
Isavia benti á sínum
tíma á að mennirnir hefðu
ekki komið ásetningi sínum
fram en hins vegar er aug-
ljóst að þarna var alvarleg
brotalöm í öryggiskerfinu.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
INNANRÍKISRÁÐHERRA
Læra í leik
Hildur Lilja Jónsdóttir
stýrir fyrsta íslenska
leiklistarleikskólanum.
tímamót 32
STJÓRNSÝSLA Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands,
hvatti í gær kjörna fulltrúa
þjóðarinnar til að láta af
átökum og sameinast um stór
mál, í erindi sem hann flutti við
embættistöku í þinghúsinu.
„Allir sem kjörnir eru til
ábyrgðar eiga að taka höndum
saman, láta uppbyggingu leysa
átök af hólmi,“ sagði Ólafur.
„Þjóðin biður um slík þátta-
skil. […] Þjóðin vill geta treyst
Alþingi og öðrum stofnunum
lýðveldisins. Samstaða um
hin stærstu mál í stað sífellds
ágreinings er vísasti vegurinn
til að endurvekja traustið sem
löggjafanum er nauðsynlegt.“
Hann hét á þingmenn, sveitar-
stjórnarmenn og aðra sem
kjörnir eru til ábyrgðar að taka
upp nýja siði og láta átökin
víkja.
Í ræðu sinni þakkaði Ólafur
mótframbjóðendum í forseta-
kosningunum í sumar. Hann
gagnrýndi þá hefð sem skapast
hefur að ekki tíðkist að bjóða
sig fram gegn sitjandi forseta.
Hann sagði þvert á móti að
sitjandi forseti eigi að fagna
því að verk hans séu lögð í dóm
kjósenda. - bj / sjá síðu 4
Í embætti í fimmta skiptið:
Kjörnir full-
trúar láti af
átökunum
Á rétta kastið inni
Óðinn Björn Þorsteinsson
vonast til að hitta á góðan
dag í kúluvarpskeppninni.
sport 54