Fréttablaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 4
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR4
VESTMANNAEYJAR Það var handa-
gangur í öskjunni þegar Eyja-
mönnum var leyft að stika út svæði
fyrir tjöld sín í Herjólfsdal í gær.
Starfsmenn á þjóðhátíðar-
svæðinu fengu venju samkvæmt
tveggja mínútna forskot í kapp-
hlaupinu og reynist öðrum eyja-
skeggjum oft erfitt að bíða þessar
tvær mínútur.
Kapphlaupið um bestu staðina
til að reisa tjöldin gekk vel fyrir
sig í dalnum í gær. Það hefur
reyndar ekki alltaf verið raunin, og
stundum hafa menn slegist ef þeir
verða af „sínum“ stað. - bj
Undirbúningur fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um næstu helgi að ná hámarki:
Kapphlaup um bestu tjaldstæðin
HLAUPIÐ OG STIKAÐ Eyjamenn flykktust í dalinn klukkan 18 í gærkvöldi þegar heim-
ilað var að stika fyrir tjöldum fyrir þjóðhátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
GENGIÐ 01.08.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
208,117
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
120,74 121,32
189,43 190,35
148,19 149,01
19,915 20,031
19,965 20,083
17,706 17,81
1,5433 1,5523
182,01 183,09
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
STRAUMSVÍK Stærsta fíkniefnamál
síðasta árs var þegar fíkniefni fundust í
gámi sem kom með skipi til Straums-
víkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu lagði hald á mun
meira af amfetamíni og e- töflum
á síðasta ári en undangengin ár.
Hald var lagt á svipað magn af
maríjúana og árið 2010 og þá
stöðvaði lögreglan fjölmargar
kannabisræktanir. Þetta kemur
fram í ársskýrslu embættisins
fyrir síðasta ár.
Í skýrslunni segir að amfetamín
hafi komið mikið við sögu hjá lög-
reglunni á árinu en hald var lagt
á um 30 kíló af efninu. Þriðjung
efnisins má rekja til svokallaðs
Straumsvíkurmáls þar sem mikið
magn fannst í gámi sem kom með
vöruflutningaskipi til Straums-
víkurhafnar í október. - mþl
Ársskýrsla lögreglunnar:
Meira haldlagt
af fíkniefnum
VÉL ICELAND EXPRESS Vefurinn Túristi.
is birtir tölur um stundvísi íslenskra flug-
félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FERÐAÞJÓNUSTA Íslensku flugfé-
lögin Icelandair, Iceland Express
og Wow air héldu vel áætlun fyrri
hluta sumars, að því er fram
kemur á vefnum Túristi.is. Síð-
asta hálfa mánuðinn lækkaði þó
hlutfall ferða sem voru á áætlun
samanborið við vikurnar á undan.
Fram kemur að Iceland
Express hafi verið á réttum tíma
í 91 prósenti tilvika og tafirnar
litlar síðustu tvær vikur. Hjá Ice-
landair og Wow air voru um átta
af hverjum tíu ferðum á áætlun.
Meðalbrottfararseinkun var 33
mínútur hjá Wow air, 11 mínútur
hjá Icelandair og tvær mínútur
hjá Iceland Express.
Iceland Express stendur best:
Íslensku félögin
halda áætlun
BANDARÍKIN Nýtt afbrigði af
fuglaflensu hefur smitast í seli
og dregið um 160 dýr til dauða
á strandlínunni milli Maine og
Massachusetts í Bandaríkjunum.
Hópur sérfræðinga, hefur nú
rannsakað selina og segir að vír-
usinn geti borist frá sýktum selum
í menn. Flestir selanna voru aðeins
kópar þegar þeir fundust, sex
mánaða eða yngri. Þeir voru allir
með lungnabólgu og útbrot. - ktg
Fuglaflensa í New England:
160 kópar dáið
úr fuglaflensu
Markaður í Álfheimum
Hrönn Baldursdóttir verður með
markað í Álfheimum í samvinnu við
verkefnið Torg í biðstöðu í dag. Hrönn
mun selja ýmsar vörur til styrktar
veikri dóttur sinni, en vörurnar hannar
hún flestar sjálf.
TORG Í BIÐSTÖÐU
STJÓRNSÝSLA Íslenska stjórnar-
skráin er rammi sem hefur haldið
í gegnum tíðina og veitti á síðustu
árum svigrúm til að mæta kröfum
mótmælenda með því að gera upp
mál með þjóðaratkvæðagreiðslum,
sagði Ólafur Ragnar Grímsson í
ræðu eftir að hann sór embættis-
eið í fimmta skipti á Alþingi í gær.
„Það sýnir kosti þeirrar stjórnar-
skrár sem þjóðin sameinaðist um
við lýðveldisstofnun að í kjölfar
bankahrunsins veitti hún fólkinu
í landinu fimm sinnum vald til að
kveða upp sinn dóm: í kosningum
til Alþingis og sveitarstjórna, í
tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum
og í nýlegu forsetakjöri,“ sagði
Ólafur Ragnar.
Hann minntist hins vegar ekki á
sjöttu kosningarnar sem haldnar
hafa verið frá hruni, þegar þjóðin
kaus fulltrúa á stjórnlagaþing, sem
Hæstiréttur dæmdi raunar ólög-
mætar.
Ólafur vék þó að yfirlýstum til-
gangi með þeim kosningum, að
breyta stjórnarskránni. „Íslending-
ar hafa ávallt borið gæfu til að ná
víðtækri samstöðu um breytingar
á stjórnarskrá, skapa einhug sem
í aðdraganda aldamóta birtist við
afnám deildaskiptingar Alþingis,
mótun nýs kafla um mannréttindi
og breytta tilhögun þingrofsins.“
Kjörnir fulltrúar þjóðarinnar
eiga að taka höndum saman og láta
af átökum, sagði Ólafur Ragnar,
sem sagði þjóðina biðja um slík
þáttaskil.
„Þjóðin vill geta treyst Alþingi
og öðrum stofnunum lýðveldisins.
Stjórnarskrá Íslands
ramminn sem hélt
Ólafur Ragnar Grímsson sór embættiseið sem forseti Íslands í fimmta skipti í
gær. Sagði fimm kosningar frá hruni sýna kosti stjórnarskrárinnar en minntist
ekki á kosningar til stjórnlagaráðs. Vill að kjörnir fulltrúar láti af átökum.
HEILSAÐ Vigdís Finnbogadóttir, forveri Ólafs Ragnars í embætti forseta Íslands, heils-
aði forsetahjónunum eftir að Ólafur sór embættiseið á Alþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ólafur Ragnar Grímsson þakkaði mótframbjóðendum sínum í forseta-
kosningunum í sumar í ræðu sinni við embættistökuna í gær. Hann sagði
forsetakjör af því tagi sem farið hafi fram í sumar í takt við lýðræðiskröfu
okkar tíma. Hann gagnrýndi jafnframt þá hefð sem skapast hefur að ekki
tíðkist að bjóða sig fram gefi sitjandi forseti kost á sér til endurkjörs.
„Lýðræðiskjarni stjórnarskrár og tíðarandi nýrrar aldar eru ótvíræðar
vísbendingar um að sérhver forseti eigi að fagna því að athafnir hans og
orðræða séu vegin og metin við endurnýjun umboðsins, einkum þegar
umdeildar ákvarðanir hafa verið dagskrárefni, forsetinn vísað lögum frá
Alþingi í dóm þjóðarinnar,“ sagði Ólafur Ragnar.
Framboð gegn sitjandi forseta eðlileg
Samstaða um hin stærstu mál í
stað sífellds ágreinings er vísasti
vegurinn til að endurvekja traustið
sem löggjafanum er nauðsynlegt,“
sagði Ólafur.
„Því heiti ég á þessari stundu
á okkur öll, sem sækjum umboð
til þjóðarinnar, heiti á Alþingi og
sveitarstjórnir, alla sem kjörnir
eru til ábyrgðar, að við tökum upp
nýja siði, látum átökin víkja og
röðum verkefnum á þann veg að
breiður stuðningur verði að baki
ákvörðunum.“ brjann@frettabladid.is
LANDBÚNAÐUR Mjólkurvörufram-
leiðslufyrirtækið Bio-bú hefur
fengið afurðastöðvaleyfi. Mat-
vælastofnun veitir leyfið að
lokinni athugun á fyrirtækinu.
Leyfið gerir Bio-bú kleift að
taka á móti ógerilsneyddri mjólk
beint frá bændum. Það sparar fyr-
irtækinu einn dag í framleiðslu-
ferli. Þá gefur leyfið fyrirtækinu
möguleika á því að flytja út vörur
sínar. Bio-bú, sem var stofnað árið
2002, framleiðir lífrænar mjólkur-
afurðir og selur meðal annars jóg-
úrt, skyr, smjör og sorbet ís. - mþl
Mjólkurvörur verða ferskari:
Bio-bú fær af-
urðastöðvaleyfi
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
32°
30°
30°
24°
25°
26°
23°
23°
27°
21°
30°
30°
32°
19°
24°
22°
21°
15
Á MORGUN
Hæg vestlæg átt
eða hafgola.
LAUGARDAGUR
Hægviðri.
13
13
10
10
10
14
14
14
13
1215
15
16
16
16
12
13
14
16
15
SAMA BLÍÐAN
Áfram sama góða
veðrið um allt
land á morgun og
litlar sem engar
breytingar fram
yfi r helgina. Það
verður sólríkt og
milt en þó hætt við
þoku sums staðar
norðan og austan
til.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður