Fréttablaðið - 02.08.2012, Page 2
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR2
11
-0
56
8
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
ms.is
...hvert er
þitt eftirlæti?
...endilega fáið ykkur
Smámál frá MS hafa notið vinsælda hjá
stórum og smáum í fjölda ára. Þau fást
í tveimur gómsætum bragðtegundum,
karamellu og súkkulaði.
LÖGREGLUMÁL Maður um tvítugt
slapp án alvarlegra meiðsla þegar
hann var stunginn í lærið við versl-
unarkjarnann Mjóddina í Breiðholti
um hádegisbil í gær. Árásarmaður-
inn var handtekinn á staðnum.
Lögregla fékk tilkynningu um
málið skömmu fyrir eitt. Hinn slas-
aði fékk aðstoð við að stöðva blæð-
inguna frá nærstöddum sem höfðu
orðið vitni að árásinni. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins var það
árásarmaðurinn sem kom því leiðar
að lögregla yrði kölluð til þegar
vinir fórnarlambsins gerðu sig lík-
lega til að hefna fyrir atlöguna.
Árásarmaðurinn, sem lögregla
hefur áður haft afskipti af, var
handtekinn og þrír til viðbótar voru
færðir á lögreglustöð til skýrslu-
töku. Allir eru þeir um tvítugt.
Árásarmaðurinn var yfirheyrður
síðdegis í gær.
Tilefni og aðdragandi árásarinnar
liggur ekki fyrir, en svo virðist sem
mennirnir hafi verið að gera upp
gamlan ágreining.
Hinn slasaði var fluttur á slysa-
deild þar sem gert var að sárum
hans. Honum hafði blætt töluvert en
reyndist þó minna slasaður en óttast
var í fyrstu. - sh
Fjórir voru færðir á lögreglustöð eftir að uppgjör gamals ágreinings fór úr böndunum:
Stunginn í lærið um hábjartan dag
MIKILL ATGANGUR Nærstaddir ruku til og reyndu að stöðva blæðinguna úr læri mannsins.
ELDVARNIR „Nágrannavarslan er
orðin svo öflug að ef fólk sér smá
reyk er það tilkynnt. Ef það leggur
töluverðan reyk frá grilli sem fer
undir þakskegg, fáum við kannski
fimm til sex tilkynningar um það,“
segir Kristján Einarsson, slökkvi-
liðsstjóri Brunavarna Árnessýslu.
„Einu sinni fengum við tilkynn-
ingu um bruna í sumarbústað við
Þingvallavatn. Fólkið sem tilkynnti
brunann var hinum megin við
vatnið og þegar málið var kannað
nánar reyndist þetta vera sólarljós
sem speglaðist svona í lituðu gleri.
Í öðru tilfelli var tilkynnt um eld,
þar sem einungis var um gulllitað
sælgætisbréf að ræða.“
Kristján segir samt brýnt að
fólk tilkynni allan mögulegan
eld. „En það er líka mikilvægt
að fólk kanni aðstæður. Það er
ekki nóg að sjá reyk, fólk verður
að athuga hvaðan hann kemur,“
segir Kristján. „Stundum er fólk
í bíl þegar það hringir og lætur
vita af bruna. Þegar það er svo
spurt nánar út í eldinn, er það
kannski komið fimmtán til tutt-
ugu kílómetra frá vettvangi. Þá
verðum við að fara á staðinn.“
Áríðandi er fyrir þá sem ætla
að kveikja eld eða mynda reyk
með öðrum hætti, að láta lögreglu
vita, því það getur einnig komið í
veg fyrir að slökkviliðið sé sent í
slíkan óþarfa leiðangur. „Það eru
reyndar eindregin tilmæli okkar
hjá Brunavörnum, að fólk kveiki
ekki eld að óþörfu í svona miklum
þurrki,“ segir Kristján.
Björn Karlson brunamála-
stjóri bendir á að ef menn ætla að
kveikja stærri elda þurfi sérstakt
brennuleyfi fyrir eldinum. „Það
er harðbannað að vera með stóra
bálkesti án nokkurra skilyrða.
Fyrir slíkri brennu þarf að vera
brennustjóri, ákveðinn halli þarf
að vera á bálkestinum og fleira.“
Björn segir lagarammann
að vísu gallaðan að því leyti að
engin stærðarmörk séu á því
hvað sé brenna. „En auðvitað
gerist það að menn kveiki lítinn
bálköst og þá er mikilvægt að
menn hugi að kringumstæðum.
Það verður að passa að ekkert
brennanlegt sé í kringum eldinn,
því það er auðvelt að kveikja
gróðurelda. Svo verður fólk að
passa að slökkt sé almennilega í
þessu með vatni áður en svæðið
er yfirgefið.“
katrin@frettabladid.is
VEISTU MEIRA?
Sendu okkur ábendingu á
meira@frettabladid.is
Gyllt sælgætisbréf
tilkynnt sem eldur
Slökkviliðið í Árnessýslu fær um fimmtán tilkynningar um lausan eld á hverju
sumri, án þess að um bruna sé að ræða. Brýnt er að kanna kringumstæður
áður en eldur er tilkynntur. Varhugavert er að kveikja eld núna vegna þurrka.
SLÖKKVISTARF Vegna mikillar þurrkatíðar í sumar er varhugavert að kveikja nokkurn
eld. Jörð hefur þornað langt ofan í svörðinn og gróður hefur sums staðar sölnað.
Hvort tveggja getur stuðlað að skjótri útbreiðslu elds. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Bandaríska hug bún-
aðar fyrirtækið Commtouch
hefur komist að samkomulagi
við eigendur íslenska hugbún-
aðar fyrirtækisins Friðriks
Skúlasonar
ehf. um kaup á
rekstri fyrir-
tækisins.
Kaupverðið er
ekki gefið upp.
Starfsemi
Friðriks Skúla-
sonar ehf.
verður áfram
óbreytt hér á
landi þrátt fyrir kaupin. Fyrir-
tækið var stofnað árið 1983 og
var fyrir kaupin nánast alfarið í
eigu hjónanna Friðriks Skúla-
sonar og Bjargar M. Ólafs-
dóttur.
Commtouch sérhæfir sig
í öryggismálum á netinu og
vírusvörnum. Fyrirtækið er
skráð á bandaríska Nasdaq-
hlutabréfamarkaðinn. - mþl
Bandarískt fyrirtæki kaupir:
Friðrik Skúla-
son ehf. selt
RANNSÓKNIR Fjall sem Hafrann-
sóknastofnunin (Hafró) fann
neðan sjávar í nýjum leiðangri
sínum kann að vera tuttugu
milljóna ára gamalt.
„Fjölgeislamælingarnar í
leiðangri á rannsóknaskipinu
Árna Friðrikssyni fyrr í sumar
leiddu í ljós umfangsmikið neðan-
sjávarfjall djúpt undan rótum
landgrunnsins um 120 sjómílur
vestur af Snæfellsnesi,“ segir í
tilkynningu Hafró. Fjallið, sem
er á 950 til 1.400 metra dýpi, er
sagt um 450 metra hátt, álíka
hátt og Ingólfsfjall. „Sá hluti þess
sem var kortlagður er um 300
ferkílómetrar að umfangi sem
er tífalt flatarmál Ingólfsfjalls,“
segir í umfjöllun Hafró.
Lögun fjallsins er sögð sláandi
lík móbergsstapa og hafa yfir sér
unglegt yfirbragð.
„Sýnataka með greiningu
bergsins er nauðsynleg til að
ganga úr skugga um hvort sú sé
raunin eða hvort um er að ræða
eldstöð sem tengist gömlu rek-
belti og er þá hugsanlega um 20
milljón ára.“
Í leiðangrinum voru gerðar
fjölgeislamælingar djúpt vestur
af landinu, í Vesturdjúpi allt
norður að Grænlandssundi, með
það að markmiði að kortleggja
botnlögun á þekktri veiðislóð
og kanna umhverfi öflugra haf-
strauma sem fara um Græn-
landssund. Alls voru mældir um
9.000 ferkílómetrar í ellefu daga
leiðangri. - óká
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson skoðar hafsbotninn með fjölgeislamælingum:
Fundu fjall vestur af Snæfellsnesi
HANS KRISTIAN OG EVA RAUSING
Lögreglan fann lík hennar í íbúð þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VERSLUN Forsvarsmenn Vínbúðar-
innar búast við annasamri viku
nú þegar Verslunarmannahelgin
nálgast. Greint er frá því á vef
ÁTVR að í fyrra hafi komið tæp-
lega 117 þúsund viðskiptavinir í
Vínbúðirnar vikuna fyrir þessa
stærstu ferðamannahelgi ársins.
Til samanburðar komu að meðal-
tali 98 þúsund viðskiptavinir í Vín-
búðirnar í viku í júlí.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vínbúðunum sýnir reynslan að
flestir viðskiptavinir koma á föstu-
deginum fyrir verslunarmanna-
helgina, flestir milli klukkan
fjögur og sex eða allt að sjö þúsund
viðskiptavinir á klukkustund. - óká
Flestir koma á föstudag:
Búist við ann-
ríki fyrir helgi
BRETLAND, AP Breski auðkýfingur-
inn Hans Kristian Rausing fékk tíu
mánaða skilorðsbundinn fangelsis-
dóm fyrir að hafa látið lík eigin-
konu sinnar Evu afskiptalaust í
íbúð þeirra í tvo mánuði eftir að
hún lést. Þau höfðu bæði átt við
fíkniefnavandamál að stríða og
fundust slík efni í líkama hennar,
sem fannst 9. júlí undir klæða-
hrúgu í svefnherbergi þeirra þegar
lögreglan gerði þar húsleit.
Talið er að hún hafi látist 7.
maí, en ekkert bendir til þess að
lát hennar sé eiginmanninum að
kenna. Auðæfi Rausings eru komin
frá föður hans, sem fann upp Tetra
pak-fernurnar. - gb
Breskur auðkýfingur:
Rausing fékk
skilorðsdóm
FÉLAGSMÁL Fjölskylduhjálp
Íslands ætlar að úthluta reið-
hjólum í dag í starfsstöð sinni í
Eskihlíð 2-4. „Þetta eru reiðhjól
sem eftir voru þegar Barnaheill
lauk hjólaverkefni sínu 1. júlí og
höfðu þá úthlutað 80 reiðhjólum.
Gera þurfti við öll hjólin og tók
það okkur lengri tíma en talið
var í upphafi.
„Nú eru hjólin klár,“ segir
í tilkynningu frá Fjölskyldu-
hjálp sem kveðst hafa úthlutað
60 hjólum á Reykjanesi fyrstu
vikuna í júlí. Þar sé þörfin
fyrir hjól enn mikil. Úthlutun-
in í Reykjavík í dag er á milli
klukkan eitt og fjögur eftir
hádegi. - gar
Fjölskylduhjálp Íslands:
Ókeypis hjólum
úthlutað í dag
FRIÐRIK SKÚLASON
NEÐANSJÁVAR Lögun neðansjávarfjalls
sem fannst í nýjum mælingum Hafró er
sögð sláandi lík móbergsstapa. MYND/HAFRÓ
SPURNING DAGSINS
Rósa, þarf ekki bara að koma
upp viðvörunarskiltum?
„Það horfir vel við mér – ég sé
ekkert því til fyrirstöðu.“
Reykjavíkurborg hefur skorið upp herör
gegn auglýsingaskiltum sem hindra
vegfarendur á gangstéttum í miðbænum.
Rósa María Hjörvar er aðgengisfulltrúi
Blindrafélagsins.
Það er ekki nóg að sjá reyk, fólk
verður að athuga hvaðan hann kemur.
KRISTJÁN EINARSSON
SLÖKKVILIÐSSTJÓRI BRUNAVARNA ÁRNESSÝSLU