Fréttablaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 8
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR8
TÆKNI Vefsíur sem hamla eiga
umferð inn á vefsíður með ólög-
legu efni, þar á meðal efni sem
sýnir börn á kynferðislegan
hátt eða ofbeldi gegn börnum,
eru gangslausar og gætu veitt
falska öryggiskennd. Þetta segir
Þröstur Jónasson hjá Félagi um
stafrænt frelsi á Íslandi (FSFÍ) í
samtali við Fréttablaðið.
Í síðustu viku var
sagt frá norsku síunni
CSAADF, sem lögregla
hefur hannað í sam-
starfi við netfyrirtæki,
og áhuga lögreglu á að
setja síuna upp hér á
landi. FSFÍ segja síuna
hins vegar einungis
bjóða heim hættu á rit-
skoðun á netnotkun
landsmanna.
„ Þ etta er engin
lausn,“ segir Þröstur.
„Allir þeir sem vilja
geta komist fram hjá
síum eins og þessum og
þannig eru þær engin
hindrun. Hins vegar fá aðrir
falska öryggiskennd um að í
þessu felist vernd. Þá er dregin
upp sú mynd að búið sé að gera
eitthvað í málinu og það vinnur
gegn því að eitthvað sé gert í
hlutunum fyrir alvöru.“
Þröstur segir að til séu úrræði
til að berjast gegn efni sem sýni
börn á kynferðislegan hátt og
þeim einstaklingum sem fram-
leiða slíkt. Það útheimti hins
vegar tíma, sérfræðiþekkingu
og fjármuni.
„Það er mun gáfulegra að
ráðast að rót vandans og þá
sem eru að framleiða efnið og
dreifa því. Til þess þarf að finna
og greina efni sem sýnir brot
á börnum og leita ofbeldisfólk
uppi. Það er flókið og
dýrt en skilar árangri
eins og við höfum séð
að minnsta kosti tvisvar
síðasta ár þar sem tugir
manna voru teknir í
aðgerðum Interpol.“
Einn þátta í þessari
baráttu segir Þröstur
felast í aukinni fræðslu
þar sem almenningi sé
bent á leiðir til að gera
vart við vafasamt efni
sem það rekst á. Sem
dæmi nefnir Þröstur
tilkynningarhnapp á
vef Barnaheilla þar sem
hægt er að gera lög-
reglu viðvart um síðurnar.
Þröstur segir annan flöt á
þessu máli vera þann að rit-
skoðun á efni á Internetinu eigi
ekki rétt á sér.
„Svona síur hafa átt það til að
vinda upp á sig og þróast út í að
verða að ritskoðun sem skemmir
möguleika á samskiptum þrátt
fyrir fullyrðingar um annað.“
Þröstur segir norsku síuna
vera gott dæmi um slíkt. Þrátt
fyrir að því sé haldið fram að
ekki sé verið að safna upp-
lýsingum um þá sem rekast á
vefsíður úr gagnagrunni síunnar
hafi lögregla á hraðbergi upplýs-
ingar um hversu oft viðvörunar-
síða birtist þeim sem lenda í
síunni, sem bendi til hins gagn-
stæða. Þá hafi gagnagrunnurinn
inni haldið vefsíður sem ekki inni-
héldu ofbeldisefni gegn börnum.
„Þegar reynt er að ákveða hvað
megi skoða og hvað ekki er verið
að bjóða heim tak mörkunum á
frjálsum upplýsingum sem er
brot á mannréttindum,“ segir
Þröstur. „Þau lönd sem slíkt
stunda eru ekki félagsskapur sem
við Íslendingar viljum vera í.“
thorgils@frettabladid.is
Vefsíur gagnslausar í bar-
áttunni gegn barnaklámi
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi er mótfallið upptöku vefsíu til að hamla umferð Íslendinga á vefsíður
með efni sem sýnir börn á kynferðislegan hátt. Síur séu í besta falli gagnslausar og geti í raun gert ógagn.
ÓVÆRA Á NETINU Félag um stafrænt frelsi á Íslandi varar við upptöku síu sem lokar á
vefumferð. Þótt tilgangurinn sé að vinna gegn dreifingu á efni sem sýnir börn á kyn-
ferðislegan hátt sé veruleikinn sá að sían sé gagnslítil og takmarki lögleg samskipti.
NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Heildarviðskipti með
hlutabréf í íslensku kauphöllinni
námu 2.845 milljónum króna í
júlí. Jafngildir það 129 millj-
ónum á dag en til samanburðar
voru meðalviðskipti á dag 62
milljónir í júlí í fyrra.
Úrvalsvísitalan OMXI6
lækkaði um 4,9% í júlí og stóð
við lokun markaða á þriðjudag
í 1.005 stigum. Mest viðskipti
voru með bréf í Marels í mán-
uðinum en þau námu 872 millj-
ónum. Viðskipti með bréf Regins
námu 852 milljónum og með bréf
Icelandair Group 564 milljónum.
Þá námu heildarviðskipti með
skuldabréf í kauphöllinni 110
milljörðum króna sem sam-
svarar 5 milljörðum á dag. Til
samanburðar var meðalvelta á
dag í júlí í fyrra 8,8 milljarðar.
- mþl
Viðskipti í kauphöllinni:
Úrvalsvísitalan
lækkaði í júlí
1. Í hvaða landi hefur rafmagns-
leysi hrjáð hundruð milljóna íbúa
síðustu daga?
2. Hvaða lið sigraði íslenska
handboltalandsliðið örugglega á
Ólympíuleikunum á þriðjudag?
3. Í hvaða tryggingafyrirtæki hefur
hópur lífeyrissjóða keypt meiri-
hluta?
SVÖR
1. Indlandi 2. Landslið Túnis
3. Tryggingamiðstöðinni
VEISTU SVARIÐ?
Allir þeir sem
vilja geta
komist fram
hjá síum eins
og þessum.
ÞRÖSTUR
JÓNASSON
FÉLAG UM
STAFRÆNT FRELSI Á
ÍSLANDI