Fréttablaðið - 02.08.2012, Síða 35
| FÓLK | 3
Rómverjar til forna notuðu amm-oníak úr þvagi og leir til að þvo ullarföt. Þvotturinn var þveginn
í þar til gerðum þvottahúsum sem var
að finna í flestum bæjum Rómarveldis
á þeim tíma. Þvottahúsin, sem voru
oft fjölmennustu vinnustaðir bæjanna,
fengu þvag úr dýrum frá bændum
úr nágrenninu eða frá almennings-
salernum bæjarins. Rekstur þvotta-
húsa var blómleg atvinnugrein á
þessum tíma og voru eigendur þeirra
mjög valdamikill hópur í samfélaginu.
Tekjur af greininni voru svo miklar að
ríkisvaldið skattlagði sölu þvagsins.
Nútímafatahreinsun notar ýmis
leysiefni til að þvo burt bletti og
óhreinindi. Um miðja 19. öld var
farið að nota bensín og steinolíu til
hreinsunar. Frakkinn Jean Baptiste
Jolly fann upp aðferðina eftir að þjón-
ustustúlkan hans missti steinolíu á
dúkinn hans. Hann tók þá eftir því að
dúkurinn varð hreinni en áður. Hann
þróaði vöruna og hóf rekstur fata-
hreinsunar fyrir almenning stuttu síðar.
Bandaríkjamaðurinn Joseph
Stoddard þróaði síðar nýtt leysiefni.
Sjálfum var honum umhugað um
eldhættu af eldri efnum og þróaði
terpentínu úr jarðolíu sem valkost
til hreinsunar. Notkun leysiefna úr
bensíni og steinolíu hafði fram til
þessa valdið mörgum eldsvoðum og
ljótum slysum sem leiddu til þess að
ríkisvaldið setti lög varðandi fata-
hreinsanir. Eftir fyrri heimsstyrjöldina
hófu fatahreinsanir að nota leysiefni
úr klór. Af þeim stafaði bæði minni
eldhætta en af eldri efnum auk þess
sem þau hreinsuðu líka betur. Um
miðjan fjórða áratug síðustu aldar
hófu fatahreinsanir að nota tetrakló-
retýlen sem leysiefni. Efnið hreinsaði
mun betur en eldri efni og var ekki
eldfimt. Tetraklóretýlen varð síðar
fyrsta efnið til að verða skilgreint sem
krabbameinsvaldandi efni hjá yfir-
völdum í Bandaríkjunum þótt sú skil-
greining væri seinna felld úr gildi. Þar
í landi var líka samþykkt reglugerð
árið 1993 sem gekk út á að draga úr
losun tetraklóretýlen frá fatahreins-
unum í Bandaríkjunum.
Undanfarin ár hafa fatahreinsanir
víða um heim verið að skipta út tetra-
klóretýleni fyrir önnur efni og aðrar
vinnsluaðferðir.
FATAHREINSUN Í ÁRDAGA
VAR BLÓMLEG ATVINNUGREIN Þvag úr dýrum og jafnvel mönnum var nýtt til fatahreinsunar á tímum Rómverja og var fata-
hreinsun blómleg atvinnugrein. Seinna meir voru fundin upp betri efni sem hjálpuðu starfsmönnum fatahreinsana við störf sín.
FATAHREINSUN FYRR
Á ÖLDUM
Miklar framfarir urðu
á fyrri hluta 20. aldar
í þróun leysiefna sem
notuð voru við fata-
hreinsanir.
MYND/GETTY
Efnalaugin Björg hefur verið starfrækt frá árinu 1953 og hefur verið í eigu sömu fjöl-
skyldu frá upphafi. Önnur kyn-
slóð fjölskyldunnar er við rekstur
fyrirtækisins í dag. „Ég tók við af
tengdaföður mínum og hef verið
í þessu síðustu 28 árin þannig að
ég er komin með nokkra reynslu af
rekstri efnalauga,“ segir Kristinn
Guðjónsson, eigandi Bjargar í
Háaleiti.
„Við höfum alltaf lagt áherslu
á að vera framarlega í því sem
við gerum og tökum okkur fyrir
hendur hverju sinni. Við erum
með nýjustu tæki, tækni og efni
og leggjum okkur fram um að vera
með gæða þjónustu og vinnslu.
Slagorðin okkar eru gæði, þekking
og þjónusta og það skiptir okkur
miklu máli að viðskiptavinir fari
út frá okkur ánægðir og sáttir við
vinnubrögð okkar og þjónustu.“
Kristinn segir reynslu skipta
mjög miklu máli þegar kemur að
rekstri efnalauga. „Fólki er ekki
sama um hvert það fer með spari-
fötin sín í hreinsun. Það má líkja
efnalaugum við hótel eða veitinga-
staði, fólk fer frekar á fimm stjörnu
stað en á einnar stjörnu. Það er
talsverður munur þar á.“
Til að halda stöðugri þekkingu
þá hefur Kristinn verið í mörg ár
í félagi sem heitir Drycleaning
& Laundry Institute. Það er
alþjóðlegur félagsskapur fyrir
þvottahús og efnalaugar. „Þar
get ég sótt námskeið, ég fæ
mánaðarleg fréttabréf og vikulegar
upplýsingar í tölvupósti. Mér
finnst þetta nauðsynlegt til að
halda þekkingunni við. Það er
mikið breytt frá því sem áður var.
Efnin sem notuð eru hafa breyst og
eru orðin umhverfisvænni. Okkur
finnst skipta verulegu máli að vera
vistvæn og reynum að vera það.“
Tvær Bjargir eru starfræktar,
önnur í Háaleiti en hin í Mjódd.
„Rekstrinum var skipt upp árið
1999 en fyrirtækin eru innan sömu
fjölskyldu samt sem áður. Þau í
Mjóddinni hafa sérhæft sig í með-
höndlun á leðri og rúskinni en við
hér í Háaleiti erum með þvottahús
ásamt efnalauginni,“ segir hann.
Þvottahús Bjargar í Háaleiti
þjónustar bæði einstaklinga og
fyrirtæki.
„Við sjáum um að þvo kokka-
galla fyrir veitingahús í mið-
bænum og leigjum þeim jafnframt
servíettur. Með auknum ferða-
mannastraumi hefur starfsemi
þvottahússins aukist mikið. Við
erum í raun orðin jafnvíg á að
vera þvottahús og hreinsun. Það
er líka að aukast að einstaklingar
eru að koma með heimilisþvott-
inn til okkar. Eftir hrun þá komu
færri skyrtur í þvott en þetta er að
breytast aftur. Fólk er að jafna sig
og vill eyða frítímanum í eitthvað
annað en að strauja skyrtur.“
GÆÐI, ÞEKKING
OG ÞJÓNUSTA
EFNALAUGIN BJÖRG KYNNIR Efnalaugin Björg er
ein elsta starfandi efnalaug landsins. Hún hefur verið
starfrækt í næstum 60 ár og alltaf í eigu sömu fjöl-
skyldunnar. Björg Háaleiti starfrækir einnig þvottahús.
REYNSLUMIKILL
Kristinn hjá Efna-
lauginni Björg hefur
mikla reynslu af
rekstri efnalauga
enda verið í þeim
geira í 28 ár.
MYND/ERNIR
FATAHREINSUN