Fréttablaðið - 02.08.2012, Síða 36
FÓLK|TÍSKA
Muiccia Prada, listrænn stjórnandi Prada-tískuhússins, segir að Ítalía eigi á hættu að missa stöðu sína sem
eitt af leiðandi löndum í tískuheiminum.
Að undanförnu hefur sala á ítölskum
fatamerkjum til annarra landa aukist og
þannig eru Ítalir að missa yfirhöndina í tísku-
heiminum. Upprennandi tískuhönnuðir frá
Ítalíu yfirgefa landið í von um að getað byrjað
ferilinn annars staðar. Þekktasta dæmið er
hönnuðurinn Raf Simons hjá Jil Sander sem
færði sig yfir til Dior vegna þess að þá jókst
virði hönnunarinnar. „Tískuiðnaðurinn flytur
sig þangað sem best er að vera,“ segir
Prada en hún hélt sjálf Miu Miu-tískusýn-
ingu í París í staðinn fyrir í Milano.
ÍTALÍA AÐ
MISSA TÖKIN
Muiccia Prada telur að Ítalía sé
hæg og rólega að missa yfir-
höndina yfir tískuiðnaðinum.
PARÍS
FREKAR EN
MILANO
Sala á ítölskum
fatamerkjum til
annarra landa
hefur aukist.
Gönguhópurinn Franskir kossar gengur á fjöll í nágrenni Reykja-víkur flesta þriðjudaga. Næst-
komandi þriðjudag verður þó ekki
hefðbundin fjallganga heldur svokölluð
kjólaganga. „Kjólagangan er þannig
tilkomin að einn meðlimur hópsins
hefur alltaf verið í kjól í göngunum.
Það smitaði svo út frá sér og seinasta
sumar höfðum við í fyrsta skipti sér-
staka kjólagöngu sem verður endurtekin
næsta þriðjudag. Þá ætlum við að ganga
upp á Skjaldbreið og allir eru hvattir til
að ganga í kjól eða kjólfötum en þó vel
útbúnir, í góðum gönguskóm og hlýjum
fötum innanundir. Skjaldbreiður er
rúmlega þúsund metra hár og því getur
verið kalt á toppnum,“ segir Hjördís Alda
Hreiðarsdóttir, stofnandi Franskra kossa.
Hjördís Alda stofnaði gönguhópinn
árið 2007. Þá var hún nýkomin frá Frakk-
landi og fannst nafnið, Franskir kossar,
því viðeigandi og hljóma vel. „Þegar við
erum komin á toppinn í fjallgöngunum
fáum við okkur alltaf súkkulaði og tökum
mynd. Það væri því tilvalið að fá sér
súkkulaðikossa á toppi Skjaldbreiðs,“
segir Hjördís Alda og hlær.
Hún hefur mikinn áhuga á íslenskri
náttúru og fjöllum og ákvað að stofna
hópinn til að fá einhverja útiveru á
sumrin en hún er námsmaður og vinnur
á sumrin og fær því lítið sem ekkert
sumarfrí. „Í hópnum eru vinkonur mínar
og vinir, ættingjar, vinnufélagar og svo
hefur þetta stækkað og undið upp á sig.
Þetta er opinn hópur og allir geta verið
með. Við erum þó eingöngu áhugafólk
sem gengur þekktar og minna þekktar
leiðir án aðstoðar leiðsögumanns. Ég
skipulegg göngurnar og athuga stað-
hætti, les mér til og kynni mér nýjar
slóðir en ég er ekki leiðsögumaður og
hef ekki alltaf farið áður leiðirnar sem
við göngum. Þess vegna gengur fólk
auðvitað á eigin ábyrgð en allir eru
velkomnir svo framarlega sem þeir eru
vel búnir og treysta sér á fjallið. Kjóla-
gangan verður á margtroðnum slóðum
en splunkunýjum fyrir Franska kossa og
þetta er því jómfrúarferð fyrir okkur.“
Nánari upplýsingar um göngu hópinn
má finna á Facebook og eru öllum
velkomið að slást í för með Frönskum
kossum. ■ lilja.bjork@365.is
KJÓLAR OG KOSSAR
Á SKJALDBREIÐ
GÖNGUGARPAR Hjördís Alda Hreiðarsdóttir stofnaði gönguhópinn Franska
kossa árið 2007. Hópurinn gengur á fjöll í nágrenni Reykjavíkur alla þriðju-
daga á sumrin. Næsta þriðjudag verður kjólaganga.
MÓSKARÐS-
HNJÚKAR
Síðasta kjólaganga
var farin á Móskarðs-
hnjúka og var hún vel
heppnuð. Í hópnum
eru líka strákar en þeir
þurfa ekki endilega að
vera í kjól í göngunni
en eru hvattir til að
mæta í kjólfötum eða
að minnsta kosti með
slaufu. Hjördís Alda er
stofnandi gönguhópsins
Franskra kossa. Göngu-
hópurinn er opinn og
öllum velkomið að koma
með í fjallgöngu.
MYND/STEFÁN
30% afsláttur
Nýjar haustvörur
Túnika
st. 42-48
áður 14.990,-
nú 10.490,-
Skokkar
st. 36-46
áður 16.990,-
nú 11.890,-
25-60% afsláttur
af öllum vörum
ÚTSALA
KEEPING UP WITH THE KARDASHIANS
E! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS