Fréttablaðið - 02.08.2012, Side 44
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR36
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Þetta hófst allt fyrir nokkrum milljónum ára þegar forfaðir okkar mannanna
stakk hina apana af og klöngraðist niður úr
trénu sínu. Heilar stækkuðu og það réttist úr
bökum. Verkfæri litu dagsins ljós og eldar
voru tendraðir. Bóndinn leysti veiðimanninn
af hólmi og fyrirrennarar okkar latte-lepj-
andi borgarpakksins hófu að rotta sig saman.
Píramídar risu og Ford fann upp færibandið.
Newton fékk þyngdaraflið í höfuðið en mað-
urinn hóf sig engu að síður á loft á þöndum
stálvængjum. Henry Edward Roberts bjó til
borðtölvuna, Tim Berners-Lee fann upp ver-
aldarvefinn, Steve Jobs fékk mikilmennsku-
brjálæði og bamm: Allt varð þetta til þess að
dag einn sat undirrituð á fjöldaframleidda
Klippan Ikea-sófanum sínum með internetið
í kjöltunni og kaffibolla jafnháþróaðan og
homo sapiens í hendinni.
ÞAR SEM ÉG sötraði tvöfaldan low-fat
soja frappuccino með auka karamellu-
skoti og þeyttum rjóma kynnti ég
mér það nýjasta í hraðri framþróun
mannsins. Um var að ræða afrakst-
ur eins af mörgum spennandi
sprotafyrirtækjum landsins. Hug-
búnaðinn Meniga þekkja margir
heimabankanotendur. Meniga er
heimilisfjármálakerfi sem hjálpar
nútímamanninum að hafa yfirsýn
yfir útgjöld sín, gera fjárhags-
áætlanir og standa við þær. Þar
má auk þess bera sig saman við
aðra. Ég lék mér að því að fikta í forritinu
og skoða hve langt í land ég ætti með að til-
heyra hinu rómaða fjárhagslega eina pró-
senti sem allir elska að hata en flestir vildu
tilheyra. En skyndilega svelgdist mér á tvö-
falda low-fat soja frappuccino-inu með auka
karamelluskotinu og þeytta rjómanum.
MAÐURINN hefur gengið á tunglinu.
Hann hefur ferðast hraðar en hljóðið. Hann
hefur alið af sér Mozart, Da Vinci og Justin
Bieber. Hann hefur beislað náttúruna og
unnið bug á sjúkdómum. Hann hefur fundið
upp jafnmargar samsetningar á kaffi og
náttúran á genum mannsins.
EIN ER hins vegar sú áskorun sem mannin-
um virðist ómögulegt að sigrast á. Hún blasti
við mér inni í heimilisfjármálakerfinu. Ég
hafði gefist upp á samanburðinum við eina
prósentið – hann var of óhagstæður. Ég tók
því að skoða hvar ég stæði miðað við aðra út
frá hinum ýmsu breytum sem forritið stakk
upp á: búsetu, fæðingarári. Í sakleysi mínu
smellti ég á takkann „kyn“. Ég hefði átt að
vita betur. Ískaldur veruleikinn var eins
og blaut tuska í andlitið. Þegar meðallaun
notenda forritsins voru einskorðuð við konur
hrundu þau eins og illa bakað soufflé.
AF HARÐFYLGI hefur homo sapiens lifað af
heila ísöld. Hann hefur útrýmt drepsóttum.
Fundið upp heimabankann. En launamun
kynjanna – nei, hann er of erfitt að laga.
Homo sapiens og heimabankinn
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. niður, 6. líka, 8. skordýr, 9. rekkja,
11. verslun, 12. hella, 14. hljóðfæri,
16. hvað, 17. vel búin, 18. hylli, 20. í
röð, 21. málmur.
LÓÐRÉTT
1. grasþökur, 3. tveir eins, 4. land í
Evrópu, 5. net, 7. bungast, 10. mán-
uður, 13. gifti, 15. truflun, 16. rámur,
19. nesoddi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ofan, 6. og, 8. fló, 9. rúm,
11. bt, 12. flaga, 14. píanó, 16. ha,
17. fín, 18. ást, 20. aá, 21. stál.
LÓÐRÉTT: 1. torf, 3. ff, 4. albanía,
5. nót, 7. gúlpast, 10. maí, 13. gaf,
15. ónáð, 16. hás, 19. tá.
SIGGI HLÖ
SIMM
I O
G J
ÓI
ÍV
A
R
G
U
Ð
M
U
N
DS
SO
N
ÁSG
EIR
P
ÁL
L
Á FERÐINNI
UM LANDIÐ
VIÐ VERÐUM ÚT UM ALLT
og í beinu sambandi við íslenska
tónlistarmenn og skemmtikrafta.
LÉTTUR LEIKUR MEÐ TAL
– 3G inneignir og Samsung Galaxy
S3 í verðlaun.
BREKKUSÖNGURINN á Þjóðhátíð
í beinni á sunnudagskvöld.
HAFÐU BYLGJUNA MEÐ ALLA
HELGINA og skemmtu þér vel –
með góðu 3G Tal-sambandi í símann
getur þú hlustað nær hvar sem er!
BYLGJAN NÆST UM NÆR ALLT
LAND Á FM TÍÐNINNI
Kort með öllum sendum Bylgjunnar
um landið má finna á www.bylgjan.is
Í flestum bílum má stilla á RDS og
tækið finnur næsta sendi sjálfkrafa.
FRÉTTIR, VEÐUR OG VEGA-
UPPLÝSINGAR ALLA HELGINA
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og
Bylgjunnar er á vaktinni alla helgina
og dagskrárgerðarmenn færa
nauðsynlegar fréttir af veðri
og umferð.
BYLGJAN
Fyrir austan, vestan,
norðan og sunnan.
Í bílnum, tjaldinu
og heima!
BJARNI ARA
Hemmi Gunn, Ívar og Ásgeir
Páll byrja fjörið eftir kvöldfréttir
föstudag. Simmi og Jói verða
í Eyjum og fagna 5 ára afmæli
þáttarins á laugardagsmorgun.
Hemmi og Ásgeir Páll gera allt
vitlaust eftir hádegi og Siggi Hlö
klikkar ekki síðdegis á laugardag.
Bjarni Ara í loftinu eftir hádegi
sunnudag og mánudag. Partívakt
öll kvöld. Ásgeir Páll fylgir öllum
heilum heim síðdegis á mánudag.
Er þetta allt sem þið getið,
strákar? Mamma mín er
með betri skot en þið! Og
hún tekur þau í INNISKÓM!
Gefið mér eitthvað til að
vinna með!
PLEASE?
Pondus
... fyrir
mig?
Þetta verður fyrir okkur
alla. Má ég biðja um
létt skot frá hægri með
svolitlum snúningi og
tilfinningu?
Coming
up!
Ég hef ekkert að segja.
Ég er bara að senda þér
þetta vegna þess að
hljóðið í tökkunum gerir
pabba klikkaðan.
Það ætti að
taka um fimm
mínútur að
hala niður
heila þínum.
Vó! ... Þetta tók
stuttan tíma!
Ég fann skeljasafnið
þitt í bílskúrnum.
Skelja-
hvað?
Skeljarnar sem þið Hannes
söfnuðuð þegar við fórum á
ströndina fyrir nokkrum
árum. Manstu?
Nei.
Þú krafðist þess að fá að geyma
þær allar. Þannig að við settum
þær í kassa vegna þess að við
höfðum ekki pláss í farangrinum.
Ég hef ekki
hugmynd um
hvað þú ert
að tala.
O jæja. Þá getum
við hent þeim.
En þá glat-
ast þessar
minningar!