Fréttablaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 50
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR42
Útgáfu bókverksins Path – Jour-
ney to the Centre var fagnað í
Bókaútgáfunni Crymogeu í gær,
en bókin er samstarfsverkefni
myndlistarkonunnar Elínar
Hansdóttur og bandaríska rit-
höfundarins Rebeccu Solnit.
Upphaf samstarfsins má rekja
til þess þegar Rebecca var
stödd hér á landi árið 2009 og sá
og heillaðist af samnefndu verki
Elínar í Listasafni Íslands. „Við
Rebecca hittumst fyrir til-
viljun hér á Íslandi það ár. Hún
lýsti yfir áhuga á að skrifa um
sína reynslu af verkinu og við
ákváðum að gefa út lítið bók-
verk í kjölfarið,“ segir Elín,
sem stödd er hér á landi til að
fagna útgáfu bókarinnar, en
hún hefur verið búsett í Berlín
í nær áratug.
Bókin samanstendur af ljós-
myndum af verki Elínar og
texta eftir Rebeccu. Hún er á
ensku, enda ekki síður ætluð
alþjóðlegum markaði en þeim
íslenska, en texti bókarinnar er
jafnframt stutt útgáfa af broti
úr næstu bók Rebeccu, sem
kemur út á næsta ári.
Elín segir það hafa verið
áhugaverða reynslu fyrir hana
að horfa á verk sín út frá nýju
sjónarhorni í miðli sem hún
hefur ekki áður unnið með.
„Þetta var ómetanlegt, því ég
hef mikinn áhuga á því að vita
hvernig fólk upplifir það sem
ég geri. Það er svo sjaldan sem
maður fær að heyra reynslu
fólks. Ég geri myndlist sem er
hverful, stórar innsetningar
sem eru uppi í nokkrar vikur
og svo teknar niður. Með þessu
bókverki gerðum við tilraun til
þess að fanga kjarna verksins í
öðrum miðli.“ - hhs
Kjarni innsetningar
fangaður í bókverki
Myndlist ★★★★ ★
Óheimilislegur
Ýmsir listamenn. Sýningarstjóri
Julia Wirxel.
Gallerí Gangur
Í ensk-íslenskri orðabók á vefbóka-
safninu Snöru eru eftirfarandi
skýringar gefnar á enska orðinu
uncanny: furðulegur, kynlegur,
yfirnáttúrulegur. Ekkert þessara
orða þótti samt nógu viðeigandi
þegar kom að því að búa til íslenska
þýðingu á sýningunni Uncanny í
Gallerý Gangi við Rekagranda í
Reykjavík, sem sýningarstjórinn
Julia Wirxel hefur sett saman. Orðið
sem var valið sem íslenskt heiti var
því nýyrðið óheimilislegt.
Það er þó ekki endilega til-
finningin sem maður fær við að
ganga inn á sýninguna, enda er
Gallerý Gangur staðsett inni á
heimili Helga Þorgils Friðjóns sonar
myndlistarmanns og fjölskyldu
hans að Rekagranda í Reykjavík.
Íslenski titillinn býr yfir ákveðnum
galdri og spyr spurninga ekki bara
um innihald hvers verks heldur líka
um heildina, það hvað er heimilis-
legt og hvað ekki þegar kemur að
sambandi myndlistar og umhverfis.
Verkin, 42 að tölu, falla vel að
umhverfinu í Galleríinu, eins og
gamlir heimilisvinir. Þeim er komið
fyrir með mjög hversdagslegum
hætti úti í glugga, framan á skáp-
hurð, framan við bókahillur, uppi
á skrifborði og við hliðina á bað-
speglinum, svo dæmi séu nefnd.
Á sýningunni kennir ýmissa
grasa, enda listamennirnir 37
talsins, íslenskir og útlenskir. Sum
verk eru gerð sérstaklega fyrir
sýninguna, og eru þar af leiðandi
ferskari. Höggmyndir, teikningar,
málverk, innsetningar, hljóðverk og
ljósmyndir eru meðal þeirra miðla
sem listamennirnir nota. Stíllinn
er allt frá því að vera nútímalegur
yfir í að vera sígildur. Verk Micha-
els Zheng er af nútímalega taginu
og heitir einfaldlega Uncanny, en
þar hefur hann sett hvíta grímu
ofan á lyklaborð fartölvu og hallað
svo skjánum niður þannig að skjá-
birtan leikur um hana. Úr hátalara
tölvunnar heyrist svo andardráttur.
Eldri stílbrögð, í ætt við Rembrandt
og samtímamenn, eru hins vegar
á ferð í flottu portrettmálverki
Andrea Lehman af eldri manni sem
er blindur á öðru auga, sem gefur
verkinu kynlegan blæ.
Kolbeinn Tumi notar krónur úr
heimilisbókhaldinu og staflar upp
á borði eftir útgáfuári, og út kemur
heimilislegt (eða hrollvekjandi)
súlurit og viti menn; 2007 krónurnar
mynda stærsta staflann, en 2012
þann lægsta. Álíka yfirbragð er yfir
ljósmyndum Christina Chirulescu
af yfirgefnum húsum í Detroit í
Bandaríkjunum. Þar bjó líklega ein-
hver árið 2007, en enginn nú.
Tilvistarkennd verk eru einnig á
sýningunni, þar sem áhorfandinn er
ávarpaður með einhverjum hætti.
Hekla Dögg Jónsdóttir sýnir spegla-
kúlu á gólfi og á hana er skrifað:
You Are Here og svo kemur rauður
punktur þar á eftir. Með þessu
notar hún speglunina til að inn-
lima áhorfandann inn í rýmið sem
saman hverfast inn í kúluna. Anna
Guðjónsdóttir notar einnig spegil,
sem hún hefur hulið að mestu með
hvítri málningu, og skrifar svo me?
í miðjuna. Er sjálfsmyndin óskýr,
falin eða týnd?
Í stigaganginum hangir nagli
sem hefur verið bræddur saman
við reipi með hugvitssamlegum
hætti sem svo aftur hangir á öðrum
nagla. Hang nail heitir verkið. Karl-
lægt verk að vissu leyti, og kallast
á við fínlegra verk Andrea Winkler
inni á baði, Untitled frá árinu 2012,
en verkið er eitt af þessum ofboðs-
lega látlausu nær ósýnilegu verkum
sem geta ruglað mann svo ánægju-
lega í rýminu. Verkið er einfald-
lega fremur dauflegur rauður úði á
veggnum. Sami tónn er svo í verki
Stefanie Meyer, Takeover. Gips-
klessur á gólfi fyrir framan bóka-
hillur sem enda svo ofan í bréfpoka
með dóti eins og glerauga, gervihári
o.fl. Furðulegt verk þar á ferð.
Þóroddur Bjarnason
Niðurstaða: Myndlistin flæðir með
hversdagslegum hætti um hólf og
gólf. Heimilisleg furðuveröld sem
gaman er að skoða.
ÓHEIMILISLEGT Á HEIMILI
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 02. ágúst 2012
➜ Tónleikar
16.30 Hljómsveitin Hellvar leikur fyrir
gesti á næstu tónleikum í Pikknikk
tónleikaröð Norræna hússins. Frítt er á
tónleikana sem haldnir eru í gróðurhúsi
Norræna hússins.
20.00 Bergmálshópurinn 2012 heldur
kammertónleika í Þjóðmenningar-
húsinu við Hverfisgötu. Miðaverð er kr.
2.000 en ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
➜ Uppákomur
20.00 Borgarbókasafn Reykjavíkur
býður upp á kvöldgöngu þar sem
augum verður beint niður á við og
neðan jarðarstarfsemi í skáldskap,
sögu og sagnagerð rannsökuð. Einar
Ólafsson, skáld og bókavörður leiðir
gönguna. Þátttaka er ókeypis og lagt er
upp frá Grófarhúsi í Tryggvagötu 15.
➜ Tónlist
17.00 Perlur íslenskra einsöngslaga
fluttar af Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur
sópran, Sigríði Ósk Kristjánsdóttur
mezzósópran og Matthildi Önnu Gísla-
dóttur píanóleikara í Kaldalóni Hörpu.
20.00 Boðið verður upp á Trans-
evrópskan kontrapunkt í Þorláksbúð.
Leikið er á hljóðfæri Charles Riché.
Uppákoman er hluti af sumartónleikum
í Skálholtskirkju.
20.30 Sudden Weather Change
heldur hlustunarpartý í Netagerðinni/
Kongóbúðinni að Nýlendugötu 14.
21.00 Hljómsveitin Árstíðir leikur á
Café Rosenberg.
21.00 Kontrabassaleikarinn Tómas R.
Einarsson og gítarleikarinn Ómar Guð-
jónsson spila á tónleikum á Hótel Eddu,
Laugum í Sælingsdal.
22.00 Þór Breiðfjörð leikari og söngv-
ari verður gestur Bítladrengjanna blíðu
á Þjóðhátíðinni í Obladal, Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
22.00 Hvanndalsbræður spila á tón-
leikum á Græna Hattinum, Akureyri.
Miðaverð er kr. 2.000.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
ÚTGÁFU FAGNAÐ Í CRYMOGEU Path – Journey to the Centre er samstarfsverkefni
Elínar Hansdóttur myndlistarkonu og Rebeccu Solnit rithöfundar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GÓÐ AFÞREYING
TILVALIN Í FERÐALAGIÐ!
Gildir til 12. ágúst eða á meðan birgðir endast.
1.999,-
TILBOÐ
2.699,-
1.999,-
TILBOÐ
2.699,-