Fréttablaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 58
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR50 50
popp@frettabladid.is
Fyrstu tvær bækurnar í þrí-
leiknum um Hungurleikanna eru
mest seldu kiljurnar á Íslandi það
sem af er sumri. Rannsóknar setur
verslunarinnar tók saman fyrir
Fréttablaðið lista yfir tuttugu mest
seldu kiljurnar á Íslandi frá 20. maí
til 28. júlí.
Ekki þarf að koma á óvart að
þorri verkanna á listanum er
þýddar bækur, mestmegnis reyf-
arar og spennubækur. Eldar
kvikna, annar kaflinn í þríleiknum
um Hungurleikana, er mest selda
kiljan en samkvæmt upp lýsingum
frá For laginu hefur hún selst í
sex þúsund eintökum hingað til. Á
hæla hennar kemur fyrsta bókin
í bálknum. Þrjár nýjar íslenskar
skáldsögur eru þó á listanum: Í
sjötta sæti er Leikarinn eftir Sól-
veigu Páls dóttur, Það kemur alltaf
nýr dagur eftir Unni Birnu Karls-
dóttur er í því sjöunda og Korter
eftir Sólveigu Jónsdóttur er í því
ellefta. Allar þessar bækur komu
út snemma í sumar. Þrjú önnur
íslensk verk rata inn á listann: 55
sannar íslenskar lífsreynslusögur
sem Guðríður Haralds dóttir safnar
saman úr Vikunni er í tólfta sæti;
Hetjur og hugarvíl, sálgreining
Óttars Guðmundssonar á fornköpp-
unum er í sautjánda sæti og túrista-
bókin Little Book of Icelanders er
í því átjánda.
Af útgáfufyrirtækjum ræður
Forlagið lögum og lofum á kilju-
markaðnum í sumar; þrettán af
tuttugu vinsælustu kiljunum koma
út á vegum þess á tímabilinu sem
um ræðir, fjórar frá Uppheimum,
tvær frá Bjarti og Birtíngur gefur
út eina.
Listann má finna í lengri útgáfu
á vefsíðunni Visir.is.
Sumar Hungurleikanna
ÚR HUNGURLEIKUNUM Vinsældir þrautagöngu Katniss Everdeen njóta mikilla vin-
sælda á Íslandi en síðasta bók þríleiksins, Hermiskaði, er væntanleg innan skamms.
BÓK HÖFUNDUR ÚTGÁFA
1 Eldar kvikna Suzanne Collins Forlagið - JPV útgáfa
2 Hungurleikarnir Suzanne Collins Forlagið - JPV útgáfa
3 Dauðadjúp Åsa Larsson Forlagið - JPV útgáfa
4 Konan sem hann elskaði áður Dorothy Koomson Forlagið - JPV útgáfa
5 Sumarhús með sundlaug Herman Koch Forlagið - JPV útgáfa
Miðað við tímabilið 20. maí til 28. júlí. Listinn byggir á upplýsingum frá flestum bóka-
verslunum landsins og öðrum verslunum sem selja bækur, svo sem stórmörkuðum,
bensínstöðvum og fleirum.
MEST SELDU KILJURNAR Í SUMAR
Tímaritið US Weekly ljóstraði upp um
framhjáhald Kristen Stewart og leik-
stjórans Ruperts Sanders í síðustu
viku. Fréttirnar komu mörgum í opna
skjöldu enda var Stewart í sambandi
með Robert Pattinson og Sanders
kvæntur og tveggja barna faðir. Fleiri
Hollywood-stjörnur hafa þó orðið fyrir
því að misstíga sig svo opinberlega og í
kjölfarið orðið fyrir álitshnekki.
FRÆG FRAMHJÁHÖLD
SANDRA BULLOCK
OG JESSE JAMES
Bullock giftist
mótorhjólasmiðnum
Jesse James árið
2005. Í mars árið
2010 hélt Michelle
„Bombshell“
McGee því fram
að þau James
hefðu átt í ástar-
sambandi og í
kjölfarið stigu fleiri
konur fram. Hinn
18. mars sendi
James frá sér
tilkynningu þar
sem hann stað-
festi orðróminn
og bað Bullock
afsökunar. Bullock
sótti um skilnað í
apríl sama ár.
NORDICPHOTOS/GETTY
MARYLIN MANSON OG DITA VON TEESE
Söngvarinn giftist dansaranum Von
Teese í leynilegri athöfn árið 2005 en
ári síðar sótti hún um skilnað sökum
ágreinings. Manson hafði þá verið í
sambandi með hinni 19 ára gömlu
leikkonu Evan Rachel Wood og
varði það af og á allt til ársins
2010.
LEANNE RIMES OG
EDDIE CIBRIAN
Rimes og Cibrian voru
bæði gift þegar þau
hófu samband sitt árið
2009. Rimes var gift
dansaranum Dean
Sheremet og Cibrian var
kvæntur fyrirsætunni
Brandi Glanville. Parið
sótti um skilnað frá
þáverandi mökum sínum
þegar upp um þau komst
og gifti sig tveimur árum
síðar.
JENNIFER ANISTON OG BRAD PITT
Aniston og Pitt voru draumapar
Hollywood þegar þau giftu sig árið
2000. Fimm árum síðar tilkynnti
þau að þau ætluðu að skilja og
veltu margir fyrir sér hvort það
væri vegna mótleikkonu Pitts,
Angelinu Jolie. Jolie viðurkenndi
nokkrum árum síðar að hún
hefði orðið ástfangin af Pitt þegar
þau unnu saman árið 2005.
TIGER WOODS OG
ELIN NORDEGREN
Fátt annað komst að
í fjölmiðlum eftir að
Woods varð uppvís
að því að hafa
haldið fram hjá
eiginkonu sinni
með meira en
tylft kvenna
á meðan á
hjónabandinu
stóð. Woods
fór í kjölfarið í
kynlífsmeðferð
og Nordegren
sótti um
skilnað árið
2010.
MILLJÓN facebook-notendur eru nú aðdáendur Eminem á samskipta-
síðunni. Rapparinn er þar með vinsælasti tónlistarmaðurinn á Facebook þó
svo að Rihanna fylgi fast á hæla hans með 59 milljón aðdáendur.
60