Fréttablaðið - 02.08.2012, Page 64
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR56
UTAN VALLAR
Eiríkur Stefán Ásgeirsson á ÓL í London
segir sína skoðun
Pierre de Coubertin, faðir Ólympíu-
leika nútímans, sagði ávallt að það
mikilvæga við Ólympíuleika væri ekki
að vinna, heldur að taka þátt og að
gera sitt besta.
Það kom því ekki á óvart að átta
badmintonkonum var vikið úr keppni
á leikunum í gær. Um er að ræða
fjögur pör í tvíliðaleik kvenna – tvö frá
Suður-Kóreu, eitt frá Indónesíu og eitt
frá Kína – sem öll lögðu sig fram við
að tapa viðureignum sínum í gær.
Í reglum Alþjóðabadmintonsam-
bandsins eru reglur sem kveða á um
að leikmenn skuli ávallt gera sitt besta
til að vinna leiki. Voru viðkomandi
keppendur fundnir sekir um brot á
þessari reglugerð og því vikið úr leik.
Allt hófst þetta á því að danskt
par vann afar óvæntan sigur á þeim
Tian og Zhao frá Kína í D-riðli í
gærmorgun. Kínverska parið er í öðru
sæti heimslistans og kom því sigur
Dananna mjög á óvart.
Aðeins tvö lið frá hverju landi mega
keppa í hverri grein og hitt kínverska
parið á leikunum er einmitt í efsta
sæti heimslistans. Vegna taps þeirra
Tian og Zhao var sú staða komin
upp að Kínverjarnir myndu mætast í
undanúrslitum – ekki úrslitum.
Þar lá hundurinn grafinn. Þess
vegna reyndi hitt kínverska parið
(það sem er í efsta sæti heimstans)
líka að tapa viðureign til að reyna að
rétta skekkjuna af, ef svo má að orði
komast. Parið sem þau mættu vildi
samt líka tapa, því þannig hefðu Kín-
verjarnir mæst innbyrðis í undanúr-
slitum og viðkomandi ættu því greiða
leið í úrslitin.
Allt þetta hafði svo áhrif á aðra
viðureign, á milli pars frá Suður-Kóreu
og Indónesíu, því skyndilega var sú
staða komin upp að sigurvegarar
þeirrar viðureignar myndu mæta
besta pari heims í 8-liða úrslitum.
Möguleikarnir á verðlaunapening
væru nánast úr sögunni með sigri.
Það var sú viðureign sem var á
undan leik Rögnu Ingólfsdóttur á
leikunum í fyrrakvöld og ég fylgdist
með, nánast gapandi. Það var með
ólíkindum að sjá bestu badminton-
konur heims svara skoti sem var aug-
ljóslega á leiðinni út af og þykjast svo
vera fúlar þegar þær gáfu frá sér stig
með því að þrykkja í netið.
Auðvitað var ekkert annað hægt í
stöðunni en að vísa þeim frá keppni.
Badmintoníþróttin var skyndilega
komin í sviðsljós Ólympíuleikanna
hér úti enda greint frá þessu í öllum
helstu fjölmiðlum heims. Auðvitað má
segja að keppnisfyrirkomulagið hafi
boðið hættunni heim en keppendur
á Ólympíuleikum eiga þó að geta sagt
sér að sú iðja að tapa viljandi sé ekki
vænleg til árangurs.
Það sem eftir situr er þó kínverska
parið Thian og Zhao sem tapaði
óviljandi fyrir danska parinu. Það
er nú langlíklegast til að hirða gull
í greininni og sýnir þannig svo ekki
verður um villst að það er í góðu lagi
að tapa – ef maður leggur sig fram.
Kostir þess að tapa
Við bjóðum
góða þjónustu
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
2
19
Íslandsbanki,
stoltur stuðningsaðili í 15 ár
Hlaupum til góðs
Á hlaupastyrkur.is getur þú safnað áheitum frá vinum
og vandamönnum til stuðnings góðgerðafélagi að eigin
vali. Láttu gott af þér leiða á hlaupum.
Skráning hafin á maraþon.is
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður að morgni menningar -
nætur þann 18. ágúst.Vegalengdir við allra hæfi og hægt að fara
heilt maraþon í boðhlaupi með 2-4 þátttakendum.
Reykjavíkurmaraþon
Íslandsbanka 18. ágúst
FÓTBOLTI Stjarnan er komið í úrslit
Borgunar-bikarsins í fyrsta sinn
í sögufélagsins eftir 3-0 sigur á
Þrótti á Samsung-vellinum í gær-
kvöldi.
Sigurinn var fyllilega sanngjarn
en Stjörnumenn voru betri á flest-
um sviðum knattspyrnunnar í gær.
Þróttar byrjuðu leikinn ágæt-
lega voru óheppnir að komast ekki
yfir þegar Karl Brynjar Björnsson
virtist skora löglegt mark. Hann
var hins vegar dæmdur rang-
stæður.
Skömmu síðar tóku heimamenn
forystuna. Halldór Orri Björnsson
átti þá fínan sprett í teig Þróttar
og átti fasta sendingu fyrir markið
og átti Englendingurinn Mark
Doninger í litlum vandræðum með
að skora. Staðan 1-0 í hálfleik.
Stjörnumenn voru betri aðilinn
í síðari hálfleik. Doninger tvö-
faldaði forystu heimamanna á 66.
mínútu með skoti af stuttu færi
og Alexander Scholz gulltryggði
sigurinn með laglegu marki á 84.
mínútu.
Vanmátum ekki Þróttara
„Ég er í skýjunum,“ sagði fyrir-
liðinn Daníel Laxdal í leikslok.
„Það hefur verið draumur frá því
að ég byrjaði að spila fótbolta að
komast í bikarúrslit. Þróttarar
voru öflugir í þessum leik en við
komum tilbúnir og vanmátum
ekki andstæðinginn. Við hefðum
kannski átt að skora fleiri mörk
en ég er mjög sáttur með 3-0
sigur og að halda hreinu.“
„Við spiluðum vel og lögðum
okkur fram allar 90. mínúturnar
en okkur skorti gæði á síðasta
fjórðungnum. Þessi rangstæðu-
dómur þegar við skorum var
grunsamlegur en við áttum auð-
vitað að nýta okkar færi betur,“
sagði Páll Einarsson þjálfari
Þróttar.
Þurfti ekki að gera mikið
Mark Doninger var maður leiksins
og var óheppinn að skora ekki
þrennu í gær. Hann hefur slegið
í gegn með liði Stjörnunnar eftir
félagaskipti frá ÍA.
„Það er frábær tilfinning að
komast í bikarúrslit. Þetta er frá-
bært lið og það hefur reynst mér
auðvelt að aðlagast. Þetta er meiri
sendingabolti hjá Stjörnunni en hjá
ÍA og það hentar mér kannski betur.
Ég þurfti ekki að gera mikið til að
skora því sendingarnar sem ég fékk
voru frábærar,“ sagði Doninger
kampakátur.
Í kvöld kemur í ljós hver andstæð-
ingur Stjörnumanna verður. Grinda-
vík tekur á móti KR suður með sjó
en leikurinn er í beinni útsendingu
á Stöð 2 Sport klukkan 19.15. -jjk
Stjarnan í úrslit bikarsins
Karlalið Stjörnunnar tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitaleik Borgunarbikars
karla í knattspyrnu í fyrsta skipti í sögu félagsins með 3-0 sigri á Þrótturum.
Englendingurinn Mark Doninger skoraði tvö keimlík mörk í öruggum sigri.
NÁLÆGT ÞRENNUNNI Doninger hefði hæglega getað skorað þrjú mörk í leiknum. Hér ver Ögmundur Ólafsson meistaralega frá
Englendingnum í dauðafæri. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL