Fréttablaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 70
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR62
HELGIN FRAMUNDAN
„Skyr er svo stór hluti af matar-
menningu okkar Íslendinga að
okkur fannst frábært að geta
nálgast ferðamenn á leið til landsins
á þennan hátt, en við höfum séð að
þeir eru rosalega áhugasamir um
þessa vöru,“ segir Guðný Steins-
dóttir, markaðsstjóri Mjólkursam-
sölunnar, MS.
Nú í júlí fóru MS, íslenskir kúa-
bændur og Iclendair af stað með
kynningarátak á íslensku skyri
sem hluta af Inspired by Iceland
verkefninu og bjóða farþegum sem
koma til landsins í flugvélum Ice-
landair upp á smakk. „Við völdum
söluhæstu tegundina hérlendis til að
nota í þetta, en það kann að koma á
óvart að það er ekki jarðaberjaskyr
eins og í flestum jógúrttegundum,
heldur er það bláberjaskyr,“ segir
Guðný. Alls verða um átta tonn af
skyri gefin í háloftunum á meðan
á átakinu stendur, en því lýkur um
miðjan ágúst. Hverju smakki fylgir
svo lítill kynningarbæklingur þar
sem eru helstu upplýsingar um skyr
og stöðu þess í menningu okkar
Íslendinga frá því við landnám.
Af viðbrögðum fólks að dæma
segir Guðný vera mikla ánægju með
framtakið og að yfirleitt þiggi allir
smakkið. Tónlistarmennirnir Andy
Laplant og Jessica Larrabee voru
meðal farþega Icelandair á dög-
unum, en þau eru frá New York og
mynda blús-rokkbandið She Keeps
Bees. Að sögn flugfreyja um borð
voru þau yfir sig hrifin af skyrinu,
eins og flestir aðrir farþegar. - trs
Átta tonn af skyri í háloftunum
ÁNÆGÐ MEÐ SKYRIÐ Andy Laplant og Jessica Larrabee, meðlimir hljómsveitarinnar
She Keeps Bees, voru yfir sig hrifin af skyrinu í flugi til Íslands. MYND/ÍRIS GROENWEG
MARLITIRNIR
RU KOMNIR
ht.is
Vesturport vinnur að þáttaröðinni
Ferðalok sem fjallar um Íslendinga-
sögurnar og áhrif þeirra. Rakel
Garðarsdóttir framleiðandi segir
verkefnið viðamikið. „Við munum
fara erlendis og taka viðtöl við leik-
stjóra, leikara, rithöfunda og alls
kyns stórstjörnur sem hafa sótt inn-
blástur í Íslendinga sögurnar,“ segir
hún án þess að gefa upp um hvaða
stórstjörnur ræðir. „Flestir hafa
verið til í þetta sem er skemmtilegt
því þá fattar maður hvað sögurnar
eru stórt dæmi. Við verðum samt
líka með innlendar stjörnur og
fræðimenn.”
Í þáttunum er leikið sér að því
að spyrja hvort atburðirnir séu
skáldskapur eða sannleikur og eru
þeir bæði í formi leikins efnis og
heimilda. Þættirnir verða á dag-
skrá RÚV í lok desember og víðs
vegar um heiminn í framhaldinu.
„Allavega í Skandinavíu og Rúss-
landi. Svo eigum við eftir að þreifa
betur fyrir okkur og fara á þýskan
og franskan markað og sem víðast.
Vonandi verður líka hægt að nota
þetta til kennslu í skólum til að við-
halda áhuga fólks á Íslendinga-
sögunum,“ segir Rakel sem vonar
að verkefnið heppnist vel svo þátta-
röðin sem telur sex þætti standist
tímans tönn.
Vala Garðarsdóttir, fornleifa-
fræðingur, hóf að leggja drög
að handritinu fyrir tíu árum og
bar undir Rakel fyrir tæpu ári
sem ákvað að hefja framleiðslu.
Vala segir að Brennu-Njálssaga,
Gíslasaga Súrssonar, Laxdæla og
Egilssaga verði teknar fyrir. „Í
heimilda hlutanum fer ég til dæmis
á Þjóðminjasafn og skoða gripi sem
fundust á stöðunum og þær tóftir
sem enn þá sitja í jörðinni og kuml
sem hafa fundist,“ segir hún.
Björn Hlynur Haraldsson skrifaði
RAKEL GARÐARSDÓTTIR: VESTURPORT FERÐAST MEÐ ÍSLENDINGASÖGUR
Stjörnum prýddur hópur
tæklar Íslendingasögurnar
handrit þáttanna ásamt Völu og
hefur nú þegar leikstýrt heimilda-
hlutanum. Hann þurfti þó að halda
til Hollywood og leika í þáttunum
The Borgias svo Ragnar Hans-
son stýrir nú stjörnum prýddum
leikara hópi.
„Jóhannes Haukur leikur Egil
Skallagrímsson, Ingvar E. Sig
leikur Þráin Sigfússon, Atli Rafn
leikur Starkað undan Þríhyrn-
ingi og Bjartur Guðmundsson er
Gunnar á Hlíðarenda sem er alveg
eins og stokkinn upp úr Njálu svo
fátt eitt sé nefnt,“ segir Rakel
og bætir við að Gísli Súrsson sé
leikinn af Stefáni Halli. Auði djúp-
úðgu leikur Vigdís Másdóttir, Auði
Vésteinsdóttur, konu Gísla, leikur
Tinna Lind Gunnarsdóttir og
Vignir Rafn er Kolskeggur bróðir
Gunnars. hallfridur@frettabladid.is
„Það er metskráning á mótið í ár og gríðarleg
fjölgun á kvennaliðum,“ segir Jón Páll Hreins-
son, gjaldkeri Mýrarboltafélags Íslands.
Evrópumeistaramótið í mýrarbolta verður
haldið á Ísafirði um helgina og eru þegar 83
lið skráð til leiks. Í fyrra tóku fimmtíu lið
þátt í mótinu en voru aðeins fjögur þegar það
var fyrst haldið árið 2004. Mýrarboltinn er
hálfgerður drullufótbolti þar sem lið kepp-
ast við að koma bolta í net andstæðingsins á
velli sem er eitt drullusvað. „Þetta er líkam-
lega mjög erfitt og allt gerist rosalega hægt
inni á vellinum, sem er líklega ástæða þess
að ekki hefur verið mikið um meiðsl,“ segir
Jón Páll, en í yfir eitt þúsund leikjum hefur
einn maður snúið sig á hné og annar brákað
á sér tá og er sjúkrasagan þar með upptalin.
Ekki er aðeins keppt í boltaleik á mótinu því
metnaðar full búningakeppni er háð samhliða
auk þess sem baráttan um drullugasta kepp-
andann er mjög vinsæl. „Ætli drulluverð-
launin séu ekki eftirsóttust, enda þvottavél í
boði fyrir sigurvegarann,“ segir Jón Páll.
Fjörubrenna og flugeldasýning verða
á laugardagskvöldið og fyrir lokahófið á
sunnudag verður öllum stöðum bæjarins
lokað og fólki safnað á útiball. Jón Páll segir
Ísafjarðarbæ tilbúinn í þá miklu aukningu
fólks sem má reikna með um helgina. „Við
bjóðum alla velkomna, Ísfirðinga, Vest-
firðinga, Íslendinga og aðra,“ segir hann,
spenntur fyrir helginni. - trs
Stelpurnar spenntar fyrir drulluboltanum
SÍFELLT VINSÆLLI Fjögur lið voru skráð til leiks í fyrsta
mýrarboltanum árið 2004 en í ár eru þau orðin 83.
Gríðarleg fjölgun er á kvennaliðum í ár. MYND/EINKAEIGN
„Það er enn þá allt opið í
þeim málum. Annaðhvort fer
ég í ferðalag með mömmu og
pabba eða þá á mýrarboltann
með fríðu föruneyti.“
Birta Ísólfsdóttir fatahönnuður.
FLOTTUR HÓPUR
Jóhannes Haukur leikur
Egil Skallagrímsson og Ing-
var E leikur Þráin Sig fússon
í nýjum þáttum Vesturports
þar sem Íslendingasögurn-
ar verða tæklaðar. Rakel
Garðarsdóttir segir verk-
efnið viðamikið og kalla á
mikil ferðalög.