Fréttablaðið - 06.10.2012, Page 24

Fréttablaðið - 06.10.2012, Page 24
6. október 2012 LAUGARDAGUR24 Í kjölfarið fylgdi mikið erfiðleikatímabil. Samanlagður halli ríkissjóðs á árunum 2008 til 2011 var 592,3 milljarðar króna samkvæmt tölum Hagstofunnar. Samdráttur var 6,6 pró- sent árið 2009 og fjögur prósent árið eftir. Atvinnuleysi náði tæplega tólf prósentum þegar verst lét og síðan reglulegar mælingar Hagstofunnar hófust árið 1991 hefur hlutfall starfandi aldrei mælst minna né atvinnuleysi meira en árið 2010. Stöðugleiki og bati Efnahagsáætlun AGS og Íslands lauk í ágúst 2011. Á þeim tíma hafði náðst mjög góður, að sumra mati undraverður, árangur við að ná fram stöðugleika á Íslandi. Íslensk stjórnvöld höfðu þá ráðist í mikinn niðurskurð sem mið- aðist þó við að mynda varðstöðu um velferðar- kerfið. Samhliða hafði ríkissjóður aukið tekju- öflun sína umtalsvert með auknum álögum. Fjárlagagatið fór frá því að vera risavaxið í að verða líkast til lokað á árinu 2014. Hag- vöxtur varð jákvæður um 2,6 prósent í fyrra, en búist er við því að hann verði 3,2 prósent í ár og svipaður næstu tvö árin eftir það. Í nýj- ustu spá Efnahags- og framfarastofnunarinn- ar (OECD), frá því í maí, kemur fram að ein- ungis fimm aðildarríki hennar séu talin verða með meiri hagvöxt en Ísland á þessu ári. End- urskoðuð spá mun líkast til gera stöðu Íslands enn betri. Þessi bætta staða hefur leitt til þess að stjórnvöld ætla, í fyrsta sinn frá hruni, að auka útgjöld sín að raungildi á næsta ári. Fiskur og ferðamenn Margt annað en ráðdeild í ríkisfjármálum hefur þó spilað inn í efnahagsbata Íslands. Aflaverðmæti hefur til að mynda tæplega tvö- faldast frá árinu 2007 og var 154 milljarðar króna í fyrra. Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst síðan um 14,2 prósent, og var 80,5 millj- arðar króna, á fyrri hluta þessa árs. Á þessu tímabili sem vitnað er til hér að ofan hefur þorskkvóti verið aukinn, makrílveiðar hafa skilað ótrúlegum tekjum sem áður voru ekki til og loðna hefur snúið aftur á Íslandsmið í miklu magni. Samhliða hefur erlendum ferða- mönnum fjölgað mikið og tekjur vegna þeirra margfaldast. Heildarfjöldi þeirra í fyrra var 565 þúsund, 15,8 prósentum meira en árið á undan. Í ár hefur fjöldi þeirra aukist aftur um 17,2 prósent. Til samanburðar heimsóttu 303 þúsund ferðamenn Ísland um aldamótin. Ekki komin í var Skuldir ríkissjóðs eru enn mjög miklar. Alls skuldaði ríkið 1.482 milljarða króna í ágúst síðastliðnum, sem er um 90 prósent af vergri landsframleiðslu síðasta árs. Áætlað er að rík- issjóður greiði 88 milljarða króna í vaxtagjöld vegna skulda á næsta ári. Enn ríkir óvissa um afdrif Icesave-málsins sem gæti haft afdrifa- rík áhrif á ríkissjóð tapist það. Enn eru í gildi gjaldeyrishöft sem virðast ekki á leið í burtu og erlend fjárfesting hefur ekki verið jafn- mikil og þörf er á. Þá gætu neikvæðar svipt- ingar á alþjóðavettvangi, aflabrestur eða sam- dráttur í ferðamennsku mjög snögglega haft neikvæð áhrif á íslenska batann. H inn 1. október 2008 kynnti fjármálaráðuneytið nýja þjóðhagsspá. Hún gerði ráð fyrir að „eftir áralanga kröftuga uppsveiflu“ væri aðlögun að jafnvægi hafin í þjóðarbúinu. Samkvæmt henni myndi hagvöxtur verða 1,7 prósent á Íslandi árið 2008 og 1,1 prósent árið 2009. Spáð var að atvinnuleysi myndi aukast á því ári og verða 2,7 prósent. Reiknað var með að 2,5 prósenta verðbólgu- markmið Seðlabankans myndi nást á seinni hluta ársins 2010 og var þá gengið út frá því að krónan væri enn á floti. Spáin gerði ráð fyrir því að ríkissjóður yrði rekinn í jafnvægi og að halli myndi myndast árið 2009 sem næmi fimm prósentum af landsframleiðslu. Óvissuþættir í þjóðhagsspánni vörðuðu ástand á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og sveiflur í gengi krónunnar. Í skýrslunni sagði: „Íslenskt efnahagslíf hefur sýnt getu til að ráða við stórar slíkar sveiflur.“ Fimm dögum eftir útgáfu hennar hrundi Landsbankinn og neyðarlög voru sett í landinu. Glitnir og Kaup- þing fylgdu í kjölfarið. Krónan féll um 40 pró- sent á stuttum tíma og verðbólga fór ískyggi- lega nálægt 20 prósentum þegar verst lét. Hörð magalending Nýr veruleiki blasti við Íslendingum. Neyð- arlög voru sett sem gerðu innstæðueigend- ur að forgangskröfuhöfum í bú bankanna og tryggðu þar með tilverugrundvöll nýrra viðskiptabanka sem stofnaðir voru á grunni hinna föllnu. Kröfuhafar þeirra voru hins vegar látnir taka á sig tap sem hleypur á þúsundum milljarða króna. Stærð íslenska bankakerfisins fór frá því að vera níföld landsframleiðsla í eina og hálfa. Samhliða reyndist nauðsynlegt að setja gjaldeyrishöft með lagasetningu hinn 29. nóvember 2008. Á augabragði breyttist rekstur ríkisins frá því að vera jákvæður yfir í að gjöld ársins 2008 urðu 216 milljörðum krónum hærri en tekjur ríkisins. Hrein lánsfjárþörf ársins 2008 nam 398 milljörðum króna, sem var 27 prósent af landsframleiðslu. Hún skýrðist aðallega af þremur þáttum: yfirtöku á veð- lánum Seðlabanka Íslands, en 175 milljarðar króna af þeim voru síðan afskrifaðir, tapi á tryggingabréfum vegna aðalmiðlara upp á 17 milljarða króna og verulegri hækkun á lífeyrisskuldbindingum. Til viðbótar vofði Icesave-málið yfir ásamt vilyrði íslenskra stjórnvalda um að fjármagna nýju bankana. Staðan var ekki beysin. AGS kemur inn Hinn 27. október 2008 óskaði ríkisstjórn Íslands formlega eftir samstarfi við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn (AGS) um að koma á efna- hagslegum stöðugleika, aðlögun ríkisút- gjalda og endurreisn fjármálakerfisins og finna lausnir á skuldavanda heimila og fyr- irtækja. Stjórn AGS samþykkti efnahags- áætlun íslenskra stjórnvalda 19. nóvember 2008. Alls fékk Ísland lán frá AGS og vina- þjóðum vegna áætlunarinnar sem jafngilti 3,4 milljörðum evra. Það samsvarar ríflega 540 milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Til viðbótar kom lántökuréttur frá Norður- landaríkjum og Póllandi upp á 150 milljarða króna. Til efnahagslegs helvítis og til baka Í dag eru liðin fjögur ár síðan Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, setti neyðarlög í landinu og bað guð að blessa Ísland. Af því tilefni mun Fréttablaðið birta greinaflokk í átta hlutum um það sem hefur á daga þjóðarinnar drifið frá þeim afdrifaríka degi. Fyrsta greinin fjallar um þróun efnahagsmála frá hruni og til dagsins í dag. Bankar eru ekki eins og venjuleg fyrirtæki. Í vissum skilningi eru þeir eins og æðakerfi efnahagsbúskapar- ins þar sem um þá rennur lífsblóð sparnaðar til heimila, fyrirtækja og stofnana. Um leið eru þeir skuldsettari og háðari skammtímafjár- mögnun en hefðbundin fyrir- tæki. Þeir eru því hvort tveggja í senn, mikilvægir og viðkvæmir. Það er aldrei eins skýrt og í bankakreppu: þá hættir bankakerfið að geta sinnt hlutverki sínu, greiðslumiðlun hagkerfisins trufl- ast, fyrirtæki skortir ráðstöfunarfé til hefðbundins reksturs og til fjárfestingar og fjárhagur heimila versnar. Í kjölfarið fylgir því jafnan verulegur efnahags- samdráttur þar sem framleiðsla dregst saman og störf tapast. Íslenska bankahrunið verður líklega talið ein alvar- legasta bankakreppa heims- sögunnar, enda einstakt að nánast allir bankar í tilteknu landi verði gjaldþrota á u.þ.b. sama tíma. Vandinn sem við blasti snemma í októbermán- uði 2008 var því alvarlegur og sá möguleiki blasti við að ekkert starfandi bankakerfi yrði til staðar. Fjármálakreppan hófst þó í reynd fyrr, því að í upphafi ársins hafði skollið á gjaldeyriskreppa þar sem innflæði gjaldeyris til innlendra einkaaðila stöðvaðist og snerist í stórfellt útflæði sem leiddi til helmingslækkunar gengis krónunnar. Á haustmánuðum hafði traust til alls sem íslenskt var brostið og fyrirtæki stóðu allt í einu frammi fyrir því að þurfa að fyrirfram- eða stað- greiða vörur sem áður höfðu fengist með eðlilegum greiðsluskilmálum. Greiðslumiðlun gagnvart útlöndum var því í uppnámi og raunveruleg hætta á að skortur yrði á nauðsynjavörum og aðföngum frá útlöndum. Vandinn sem blasti við veturinn 2008 var því ógnvænlegur. Sem betur fer tókst hins vegar að afstýra því að hið versta gerðist, m.a. með aðstoð frá alþjóðasamfélaginu. Þótt erlend greiðslumiðlun hefði laskast tókst að tryggja starfsemi endurreists innlends bankakerfis og greiðslumiðlun og fall krónunnar var stöðvað. Smám saman tókst að ná tökum á opinberum fjármálum (sem fjármálakreppan hafði leikið illa) og stuðla að því að verðbólga hjaðnaði á ný. Hins vegar var ógerlegt að koma í veg fyrir mikinn samdrátt í kjölfarið, enda endur- speglaði hann óhjákvæmilega aðlögun þjóðarbúsins í kjölfar ofþenslu áranna á undan, eins og Seðlabankinn hafði raunar ítrekað spáð árin á undan. Í upphafi var ekki auðvelt að átta sig á því hve alvarlegur efnahagssam- drátturinn yrði, enda á fáu að byggja í ljósi umfangs banka- og gjald- eyriskreppunnar. Fjöldi rannsókna gaf þó til kynna að vænta mætti harkalegs efnahagssamdráttar í kjölfar slíkrar „tvíburakreppu“. Strax í nóvember 2008 reiknaði Seðlabankinn með því að landsfram- leiðslan myndi dragast saman um samtals 10% árin 2009 og 2010 en að viðsnúningur yrði um mitt ár 2010 og hagvöxtur ársins 2011 yrði rétt yfir 3%. Þrátt fyrir mikla óvissu veturinn 2008 og þá staðreynd að alþjóðleg efnahagsþróun hafi reynst mun óhagstæðari en þá var reiknað með og verri en í mörgum fyrri kreppum, virðist mat Seðlabankans á efnahags- framvindunni í kjölfar kreppunnar hafa gengið eftir: miðað við nýjustu tölur Hagstofu Íslands varð samdrátturinn 2009 og 2010 samtals rétt yfir 10%, efnahagsbatinn hófst um mitt ár 2010 og hagvöxtur í fyrra var tæplega 3%. Þessi þróun er í ágætu samræmi við reynslu annarra ríkja af alvarlegum fjármálakreppum. Hefur reynsla Íslands orðið tilefni nokkurrar umfjöllunar á alþjóðavettvangi í ljósi þess hve umfangsmikið áfallið var. Horfur eru þó enn óljósar, ekki síst vegna ástandsins í Evrópu. Mestu skiptir að haldið sé áfram að undirbyggja efnahagsbatann með agaðri hagstjórn, svo fyrri árangri verði ekki glutrað niður. Efnahagshorfur í miðri fjármálakreppu Þórður Snær Júlíusson thordur@fréttabladid.is FJÖGUR ÁR FRÁ EFNAHAGSHRUNI – FYRSTA GREIN ÁVARP FORSÆTISRÁÐHERRA Geir H. Haarde ávarpaði þjóðina í beinni útsendingu á þessum degi fyrir fjórum árum. Þar tilkynnti hann um setningu neyðarlaga og bað guð að blessa Ísland. GJÖLD ÍSLENSKA ríkisins voru 216 milljörðum króna hærri en tekjur þess á árinu 2008. ÍSLENSKA KRÓNAN féll um 40 prósent við efna- hagshrunið. ÍSLAND FÉKK 540 milljarða króna að láni hjá AGS og vinaþjóðum auk 150 milljarða króna lánalínu. SAMDRÁTTUR í íslenska hagkerfinu var 6,6 prósent árið 2009 og fjögur prósent árið 2010. ATVINNULEYSI náði tæplega tólf prósentum þegar verst lét árið 2010. STÓRAUKIÐ aflaverðmæti og gríðarleg fjölgun ferðamanna hafa hjálpað mikið til með þann bata sem hefur náðst. NIÐURSKURÐUR hjá hinu opinbera og tekjur vegna stóraukinnar skatt- lagningar hafa skilað jafn- vægi í íslensku efnahagslífi. SPÁR GERA RÁÐ fyrir því að fjárlagagat ríkis- sjóðs lokist árið 2014. HAGVÖXTUR VAR á Íslandi árið 2011 upp á 2,6 prósent. Spár gera ráð fyrir að hag vöxtur verði yfir 3,2 prós entum árlega til ársins 2014. ENN ERU SKULDIR íslenska ríkisins tæplega 1.500 milljarðar króna. ■ EFNAHAGSMÁL ÍSLANDS Þórarinn Gunnar Pétursson, aðalhagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, skrifar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.