Fréttablaðið - 06.10.2012, Page 43
Kynningarblað Fjölbreyttir möguleikar,
sérfræðiráðgjöf, hönnun og notagildi.
SPEGLAR
LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2012
&INNRÖMMUN
GLAMPAFRÍTT GLER LENGIR LÍFTÍMA LISTAVERKANNA
Gallerí Fold innrömmun býður upp á glampafrítt gler sem ver listaverkin gegn áhrifum sólarljóss. Glerið er
framleitt af Nielsen Bainbridge með sérstakri blöndu af vörn gegn útfjólubláum geislum og spegilvörn sem gerir
glerið sérstaklega gegnsætt þannig að vart er hægt að sjá að gler er yfir listaverkinu. Öll verðmæt listaverk sem
unnin eru á pappír ættu að vera undir slíku gleri því það dregur verulega úr áhrifum sólarljóss og listaverkið
dofnar síður.
Gallerí Fold hefur rekið inn-römmunarverkstæði frá árinu 2002 samhliða rekstri
gallerísins. Jóhann Ágúst Hansen,
framkvæmdastjóri
Gallerís Foldar, segir
f lesta viðskiptavini
óska eftir innrömm-
un listaverka frekar en
ljósmynda og teikn-
inga. „Helstu v ið-
skiptavinir okkar eru
starfandi listamenn
og ljósmyndarar auk
fjölda viðskiptavina
sem vilja ramma inn
myndir sem þeir eru
að kaupa eða selja á uppboðum
gallerísins. Það getur skipt sköp-
um þegar selja á listaverk að það sé
í góðri umgjörð.“
Gallerí Fold Innrömmun hefur
ávallt lagt áherslu á hraða þjón-
ustu og ódýra innrömmun án
þess að gefa eftir í gæðum. Starfs-
fólk fyrirtækisins hefur einnig sér-
fræðikunnáttu í meðhöndlun og
innrömmun á eldri og dýrari lista-
verkum.
Innrömmun hefur forvörslugildi
Jóhann segir að við inn römmun
þurfi fyrst og fremst að hafa í huga
að hún sé aðallega hugsuð til að
verja listaverkið eða myndina.
„Það er afar hvimleitt þegar brún-
ir sýrublettir koma í
myndina frá römm-
unum af því þeir eru
ekki úr nógu góðu
efni. Gallerí Fold
Innrömmun notar
einungis hágæða-
efni og hefur það að
leiðarljósi að inn-
römmunin hafi for-
vörslugildi. Þann-
ig eru öll karton og
bök sem eru notuð
sýrufrí auk þess sem boðið er upp
á glampafrítt gler sem ver verkin
fyrir sólarljósi. Þá er líka mikil-
vægt að horfa á efnin í ramman-
um sjálfum og að gæðaviður sé
notaður. Ódýrt og lélegt efni getur
skemmt myndina með tímanum.
Því meiri sem gæðin eru, þeim
mun lengur endist ramminn.“
Það eru tískusveiflur í römm-
um eins og flestu öðru að sögn Jó-
hanns. Í dag eru svartir og hvítir
trérammar vinsælastir en gyllt-
ir rammar voru hins vegar vin-
sælastir fyrir nokkrum árum.
„Rammar geta verið af öllum
stærðum og gerðum. Stund-
um er betra að hafa hann stór-
an og áberandi til að gera meira
úr myndinni en minni rammar
henta betur öðrum myndum. Stór
rammi getur til dæmis gert mikið
fyrir lítil listaverk. Svo þarf ramm-
inn líka að vera í stíl við annað á
heimilinu og þá sérstaklega það
rými þar sem myndin hangir.“
Innfluttir gæðarammar
Verkstæði Gallerís Foldar Inn-
römmunar er útbúið fullkomn-
ustu tækjum, þar á meðal tölvu-
stýrðum kartonskurðarhníf sem
gerir starfsmönnum kleift að
bjóða upp á fjöldaframleidd kart-
on á lægra verði en flest innflutt
karton að sögn Jóhanns.
Rammarnir sem fást í Gall-
erí Fold eru allir innfluttir, flest-
ir frá Danmörku og Englandi.
„Við bjóðum einnig upp á hand-
smíðaða þýska ramma frá fyrir-
tækinu Spagl. Þeir eru að fullu
unnir í höndunum og hægt að fá
með 23 karata gyllingu eða ekta
silfri þannig að engin samskeyti
eru sjáanleg. Þessir rammar eru
heimsþekktir fyrir gæði.“
Sérfræðingar á
sviði innrömmunar
Fagmennska og gæði einkenna Gallerí Fold Innrömmun. Starfsfólk
fyrirtækisins leggur mikla áherslu á sérfræðiráðgjöf til viðskiptavina.
„Það getur skipt sköpum þegar selja á listaverk að það sé í góðri umgjörð,“ segir Jóhann Ágúst Hansen, framkvæmdastjóri Gallerís
Foldar. MYND/ANTON
Innrammarinn ehf. hefur starf-
að um tólf ára skeið. Fyrirtæk-
ið flutti í eigið húsnæði við Rauð-
arárstíg 2007 og hefur verið þar
síðan. Í október tóku nýir eigend-
ur við fyrir tækinu og er það nú
rekið í samvinnu við Gallerí Fold,
sem stendur einnig við Rauðarár-
stíg. Georg Þór Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Innrammarans,
segir nálægðina við Gallerí Fold
og aðgang að sérfræðikunnáttu
þeirra á íslenskri list koma að
miklu gagni þegar veita þurfi ráð-
gjöf um innrömmun á viðkvæm-
um og verðmætum listaverkum.
„Við bjóðum upp á alla almenna
innrömmun auk þess að bjóða
upp á upplímingar á myndum.
Innrammarinn hefur auk þess
þjónustað almenna viðskiptavini
með ýmiss konar innrömmunar-
verkefni og tekið að sér stærri og
viðkvæmari verkefni fyrir lista-
söfn, listamenn og ljósmyndara.“
Auk innrömmunar býður fyrir-
tækið upp á úrval spegla til heim-
ilisnota í öllum stærðarflokkum.
„Við skerum niður spegla í þær
stærðir sem fólk óskar eftir og
setjum í ramma. Sala spegla fer
vaxandi og það færist í aukana að
fólk hengi þá upp víðar á heimil-
um sínum en áður, til dæmis í stof-
unni eða á göngum. Einn spegill
getur breytt heilmiklu fyrir útlit
heimilisins og vinnustaði og brot-
ið rými skemmtilega upp.“
Innrammarinn er búinn öllum
fullkomnustu tækjum svo sem
sjálfvirkum neglingarvélum og
tölvustýrðum kartonskurðar-
hnífum. Fyrirtækið getur því
boðið upp á mikla framleiðslugetu
á mjög hagstæðum verðum en það
gerir tilboð ef um stærri verkefni
er að ræða. „Einnig getum við gert
karton með mörgum götum sem
getur komið skemmtilega út fyrir
fjölskyldumyndirnar.“
Í haust mun starfsmaður frá
fyrir tækinu útskrifast með alþjóð-
lega gráðu í innrömmun fyrstur Ís-
lendinga. Innrammarinn getur því
í framhaldinu boðið upp á hærri
gæðastaðal en almennt hefur við-
gengist hér á landi þar sem farið er
eftir ströngustu kröfum, til dæmis
um innrömmun fyrir opinber söfn
þar sem gerðar eru miklar kröf-
ur um endingu og forvörslu lista-
verka. „Að sjálfsögðu hentar slík
innrömmun ekki öllum og því
bjóðum við að sjálfsögðu einnig
upp á ódýrari kosti án þess þó að
gefa of mikið eftir í gæðum. Mark-
mið okkar er að veita hágæða inn-
römmun á viðráðanlegu verði.“
Auk hefðbundinnar innrömm-
unar selur Innrammarinn til-
búna ramma, bæði úr áli og tré.
Fyrirtækið rammar einnig inn
ýmsa muni svo sem íþróttatreyj-
ur og söfnunarmuni sem hafa til-
finningalegt gildi. „Einn stærsti
hlutur inn sem við höfum ramm-
að inn var rafmagnsgítar sem til-
heyrði áður frægum einstaklingi.“
Einn spegill
breytir miklu
Innrömmun og speglar eru sérsvið Innrammarans.
Fyrirtæki býður upp á fjölbreytt úrval ramma og
spegla í öllum stærðum auk þess að ramma inn
ýmsa hluti sem hafa tilfinningalegt gildi.
Fjölbreytt úrval ramma og spegla í öllum stærðum fæst í Innrammaranum. Georg Þór
Ágústsson er framkvæmdastjóri Innrammarans. MYND/ANTON
15% afsláttur
Nú er tilvalið að ramma
inn fyrir jólin.
15% afsláttur af allri
innrömmun.
Gildir út nóvember.