Fréttablaðið - 06.10.2012, Qupperneq 44
KYNNING − AUGLÝSING LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s.512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Innrömmun Sigurjóns er sannkallað fjöl-skyldufyrirtæki. „Við rekum þetta saman hjónin, svo vinna hér líka tengdadóttir og
sonardóttir og smáhundurinn Kastró sem
er ættaður frá Kúbu,“ segir Sigurður glaður
í bragði.
Rammaefni í úrvali
Innrömmun Sigurjóns býður fjölbreytt úrval
af römmum og rammaefni. „Við erum með
yfir hundrað tegundir rammaefnis í boði.
Við erum með tilbúna ramma í stöðluðum
stærðum í miklu úrvali en sérsmíðum líka
úr því efni og í þeirri stærð sem viðskipta-
vinurinn óskar. Stærstu rammarnir sem við
smíðum eru um 3 metrar, sem takmarkast
af lengd listanna, en við höfum gert stærri
ramma úr samsettum listum sem er vanda-
samt verk.“
Römmum allt inn
Sigurður segir engin takmörk fyrir því hvað
sé hægt að ramma inn enda hefur hann
kynnst ýmsu í þeim efnum. „Mest römmum
við inn myndir og spegla, en höfum ramm-
að inn íþróttatreyjur, skírnarkjóla, upphlut,
veggteppi, klukkustreng, margs konar út-
saum og ýmislegt fleira.“
Tölvuskorið karton meðan þú bíður
Oft þarf að sérskera karton utan um mynd-
ir í ramma sem getur verið vandasamt verk.
„Við erum með tölvustýrða kartonskurðar-
vél og sérskerum karton á meðan fólk bíður
í versluninni. Hnífurinn er með óendan-
lega möguleika í skurði og sker út hvaða
form sem er; hringi, sporöskju, ferkant, þrí-
kant eða hvernig sem er á örskotsstundu. Þá
sker hann einnig mjög þykk karton sem gefa
meiri dýpt í myndina.“
Hannað í kreppunni
Þegar kreppan skall á varð aðeins rólegra að
gera sem hefur þó sína kosti. „Það varð að-
eins minna að gera og ég gat hugað að því
sem ég hafði ekki tíma fyrir áður. Undan-
farið hef ég búið til ýmsa muni, eins og öskj-
ur, bakka, kertastanda, spegla og fleira. Ég
kalla þetta kreppuafurðir. Þá nýtir maður af-
gangsefni og aukatíma til að búa til eitthvað
nytsamlegt og fallegt.“ Einnig eru þau hjón-
in með listaverk til sölu, bæði í eigin eigu og
í umboðssölu.
Prentað og plastað
Rammar og gler geta verið viðkvæm og
henta því ekki við allar aðstæður. „Lausn-
in við þessu er að prenta myndirnar út, líma
þær á MDF-plötu og plasta yfir. Þannig varð-
veitast þær mjög vel og engin hætta er á að
gler brotni eða rammi rispist. Þetta er mjög
hentug lausn í mörgum tilfellum. Einnig
höfum við prentað skemmtileg og hnitmið-
uð spakmæli á litlar plötur.“
Vel tækjum búin
Innrömmun Sigurjóns er vel tækjum búin.
„Við leggjum mikið upp úr góðum græjum
og erum með nýja sög og tölvustýrða negl-
ingarvél sem gefur manni alltaf bestu mögu-
legu samsetningu á hverjum ramma fyrir sig
á skjótan og öruggan hátt. Áður fyrr notuð-
um við þvingur og spenntum þá hvert horn
fyrir sig sem tók mun lengri tíma.“
Allt í seilingarfjarlægð
Verslunin er í þægilegri stærð og allir hlut-
ir í seilingarfjarægð. „Hér er allt á sama stað
og kúnninn hefur góða yfirsýn yfir allar vör-
urnar, ólíkt stærri verslunum þar sem maður
þarf að labba langar leiðir til að finna einn
ramma. Hér er allt í seilingarfjarlægð.“
Opnum snemma og lokum seint
Opið er alla virka daga frá 8-18 og 11-13 á
laugardögum. „Fólk sem vinnur níu til fimm
getur því komið til okkar fyrir vinnu eða
eftir eða um helgar. Við vinnum bæði fyrir
einstaklinga og stofnanir og erum með við-
skiptamannalista upp á tíu þúsund kúnna
sem er drjúgur hópur. Ég held að fólk viti
að hverju það gengur þegar það verslar við
okkur. Við leggjum okkur fram við að gera
vel og vöndum til verka á öllum sviðum.“
Nánari upplýsingar um Innrömmun Sig-
urjóns er að finna á vefsíðu fyrirtækisins
www.innrommun.is.
Rammar utan um allar lífsins minningar
Innrömmun Sigurjóns er rótgróið fyrirtæki sem staðsett er í Fákafeni 11. Þar hafa hjónin Sigurður Kr. Finnsson og Ragnheiður
Torfadóttir unnið hörðum höndum við að ramma inn myndir, spegla og hvað það sem fólk kemur með til að ramma inn síðustu sautján ár.
Það eru engin takmörk fyrir því hvað er hægt að
ramma inn; flíkur, teppi, útsaum, myndir eða sverð.
Mikið úrval af römmum utan um myndir og spegla
MYND/ANTON
Með tölvustýrðri kartonskurðarvél eru karton sér-
skorin meðan fólk bíður í versluninni. MYND/ANTON
Innrömmun Sigurjóns er rótgróið fyriræki sem staðsett er í Fákafeni 11. MYND/ANTON
Mikið úrval af tilbúnum römmum í standard stærðum
er í boði hjá Innrömmun Sigurjóns. MYND/ANTON
Skemmtileg og hnitmiðuð spakmæli á litlum plötum
eru prýðis tækifærisgjöf. MYND/ANTON
Sigurður með kreppuafurðir. „Þá nýtir maður afgangsefni og aukatíma til að búa til eitthvað nytsamlegt og fallegt.“ MYND/ANTON