Fréttablaðið - 06.10.2012, Síða 63
LAUGARDAGUR 6. október 2012 15
LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS AUGLÝSIR EFTIR
UMSÓKNUM UM STARF
Listaháskólinn auglýsir eftir umsóknum um
starf háskólakennara í leiklist/leiklistarfræðum
með starfsheiti lektors. Auk kennslu fer háskóla-
kennarinn með fagstjórn námsbrautarinnar
fræði og framkvæmd. Starfið felur í sér kennslu,
rannsóknir, stjórnun náms og stefnumótun.
Um er að ræða fullt starf. Ráðið er í stöðuna frá
janúar 2013.
Hæfniskröfur:
- Meistarapróf í sviðslistum (MA eða MFA)
- Umtalsverð reynsla verklegri og fræðilegri
kennslu í sviðslistum á háskólastigi
- Góð þekking á háskólastarfi og þróun náms
á efstu menntastigum
- Yfirgripsmikil þekking á straumum og stefnum
í sviðslistum samtímans
- Reynsla af leikstjórn, m.a. með áherslu á sam-
settar aðferðir (devised)
Nánari upplýsingar um starfið, hæfniskröfur,
ráðningarferli og reglur um veitingu akademískra
starfa við LHÍ er að finna á heimasíðu
Listaháskólans www.lhi.is
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal skila
þeim ásamt fylgigögnum til Listaháskóla Íslands,
Þverholti 11, 105 Reykjavík, eigi síðar en
föstudaginn 2. nóvember.
HÁSKÓLAKENNARA
Í LEIKLIST/
LEIKLISTARFRÆÐUM
NÓATÚN
ÓSKAR EFTIR
KJÖTSTJÓRA
Við gerum meira fyrir þig
HELSTU VERKEFNI ERU:
HÆFNISKRÖFUR:
ÁHUGASAMIR VINSAMLEGAST
SÆKI UM Á WWW.NOATUN.IS
Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Um er að ræða 100% stöðu
sem skiptist í 50% starf við stjórnun og 50% klínískt starf. Staðan veitist frá 1. janúar 2013 eða eftir nánara samkomulagi.
Framkvæmdastjóri lækninga heyrir undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn. Hann ber faglega-, fjárhagslega- og starfsmannaábyrgð í
samræmi við gildandi stjórnskipulag og ákvæði laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu.
Hæfniskröfur
• Íslenskt sérfræðileyfi í endurhæfingarlækningum
• Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla
• Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður í starfi
Umsókn skal fylgja staðfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, vísindavinnu og reynslu af stjórnunarstörfum.
Umsóknarfrestur er til 20. október 2012.
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna hjá Landlæknisembættinu.
Umsókn skal skilað á sérstöku eyðublaði, sem aðgengilegt er á vef Landlæknis, til Birgis Gunnarssonar forstjóra Reykjalundar sem einnig
veitir nánari upplýsingar um starfið – birgir@reykjalundur.is – sími: 585-2140
Framkvæmdastjóri lækninga
GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR
Yfirvallarstjóri hjá GR
Golfklúbbur Reykjavíkur auglýsir eftir dugmiklum, jákvæðum
einstaklingi til þess að taka að sér starf yfirvallarstjóra yfir
golfvöllum félagsins. GR er stærsti golfklúbbur landsins og rekur
18 holu golfvöll og 6 holu æfingavöll í Grafarholti og 27 holu
golfvöll á Korpúlfsstöðum ásamt 9 holu æfingavelli.
Yfirvallarstjóri GR er nýtt starf og hefur sá sem ráðinn verður í
verkið gott tækifæri til að taka þátt í mótun starfsins og framtíðar
uppbyggingu valla GR. Verksvið yfirvallastjóra er að stýra öllum
aðgerðum á golfvöllum GR í samráði við framkvæmdastjóra og
vallarnefnd GR. Þá ber yfirvallarstjóri ábyrgð á fjárhagslegum
rekstri vallanna.
Gerðar eru kröfur um eftirfarandi:
• Að umsækjandi hafi stjórnunarreynslu.
• Að umsækjandi sé menntaður í golfvallarfræðum.
• Að umsækjandi hafi reynslu og/eða þekkingu á fjármálum.
• Að umsækjandi hafi starfsreynslu að uppbyggingu
og viðhaldi golfvalla.
• Að umsækjandi hafi skipulagshæfni og sjálfstæði við vinnu.
• Að umsækjandi sé reglusamur.
• Að umsækjandi hafi færni í mannlegum samskiptum.
• Að umsækjandi hafi frumkvæði og metnað til að ná árangri
í starfi.
Umsóknum skal skila á skrifstofu félagsins að Korpúlfsstöðum
fyrir 10. október 2012, „merkt Starfsumsókn“.