Fréttablaðið - 25.10.2012, Qupperneq 8
25. október 2012 FIMMTUDAGUR8
JÓN VON TETZCHNER
stofnandi Opera Software
á ráðstefnu Stjórnvísi í Hörpu föstudaginn 26. október
www.volkswagen.is
Volkswagen Touareg
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Touareg
Það sem er auka-
búnaður hjá öðrum
er staðalbúnaður
hjá okkur
Touareg V6 3.0TDI Blue Motion,
245 hestöfl, sjálfskiptur kostar
11.790.000 kr.
ÞJÓÐTRÚ „Okkur dettur ekki í hug
að hreyfa við álfasteininum,“ segir
Ólafur Bjarnason samgöngustjóri
hjá Reykjavíkurborg um lagningu
nýs hjóla- og göngustígs fram hjá
Grásteini við Vesturlands veg.
Grásteinn, sem er í landi Keldna
í Grafarvogi, hefur verið talinn
bústaður álfa. Vafasamt þykir
að stugga við slíkum stöðum.
Reyndist það að minnsta kosti
dýrkeypt þegar áður hefur verið
átt við Grástein vegna vegafram-
kvæmda. „Þá var komist að sam-
komulagi við álfana,“ segir Ólaf-
ur um hinar fornu væringar. Og
þess vegna sveigir nýi hjóla- og
göngu stígurinn framhjá klett-
inum. Hinum megin steinsins er
reiðstígur fyrir hestamenn.
„Við vitum að sjálfsögðu vel af
því að steinninn á sína sögu. Okkur
fannst ekki sérstök ástæða til að
hafa samband við álfana núna
fyrst við erum ekkert að hrófla við
steininum,“ segir Ólafur.
Álfasteinninn var fyrst færð-
ur til árið 1970 þegar unnið var
að lagningu Vesturlandsvegar. Í
Morgunblaðinu 15. janúar 1999
segir frá því að steinninn, sem
áætlaður var fimmtíu tonn að
þyngd, hafi klofnað í tvennt við
þær tilfæringar og endað á hvolfi.
Vitnað var til verkfræðings sem
starfaði að vegagerðinni á þeim
tíma og haft eftir honum að eitt
óhapp hefði orðið í kjölfar þess
að steinninn var fluttur í fyrra
skiptið. Ýtustjóri hefði óvart rofið
vatnslögn og þúsundir silunga-
seiða í fiskeldisstöð drepist.
Þegar Vesturlandsvegur var
tvöfaldaður á þessum slóðum árið
1999 var Grásteinn aftur færður
til. Hafði Morgunblaðið eftir Helga
Hallgrímssyni vegamálastjóra að
tvær meginástæður hefðu ráðið
því að steinninn var fluttur. Ann-
ars vegar væri hann skemmtilegt
kennileiti og hins vegar sögusagn-
irnar um álfabyggð í steininum.
gar@frettabladid.is
Enn tiplað á tánum
í kring um Grástein
Lögð er lykkja á nýjan göngustíg við Vesturlandsveg utan um álfastein sem þar
er. Menn hafa tvisvar fært steininn til vegna framkvæmda. Í fyrra skiptið urðu
óhöpp sem vegagerðarmenn töldu vera af völdum álfa sem byggju í steininum.
GRÁSTEINN Álfasteinninn í landi Keldna er bæði tvíklofinn og á haus eftir fyrri flutn-
inga vegna vegaframkvæmda. Að þessu sinni er nýr göngu- og hjólastígur sveigður
framhjá Grásteini. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Seconds From Disaster
Heimildaþættir um stórslys og hamfarir
NATIONAL GEOGRAPHIC CHANNEL ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
KNÚTUR TIL FRAMBÚÐAR Þýski
listamaðurinn Josef Tabachnyk hefur
gert styttu af ísbirninum Knúti, sem
afhjúpuð var í dýragarði Berlínar.
NORDICPHOTOS/AFP
MENNTUN Íslenskir tíundu bekkingar stóðu
sig best í ensku á samræmdu prófunum í ár.
Lakastar voru einkunnir þeirra í íslensku. Í
einstökum hlutum prófa var meðaleinkunnin
hæst í íslenskri ritun.
Búið er að birta fyrstu niðurstöður úr
samræmdum könnunarprófum sem nem-
endur þreyttu í september. Meðaleinkunn
nemenda var hæst í ensku, 6,6. Í stærðfræði
var meðaleinkunnin 6,5 og í íslensku 6,4. Í
íslensku stóðu nemendurnir sig að meðaltali
best í ritun, þar sem meðaleinkunnin var sjö,
en einkunnin var 6,2 fyrir bæði málfræði og
lestur og bókmenntir. Í stærðfræði gekk nem-
endum best með reikniaðgerðir og hlutföll og
prósentur, þar sem meðaleinkunn var 6,8.
Meðaleinkunn nemenda í Reykjavík var
hæst í öllum þremur prófunum, 6,6 í íslensku,
6,7 í stærðfræði og 6,8 í ensku. Nemendur í
nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur voru
einnig með 6,7 í stærðfræði og 6,8 í ensku, en
6,5 í íslensku. - þeb
Niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum í tíunda bekk liggja fyrir:
Íslenskum unglingum gengur best í ritun
AUSTURBÆJARSKÓLI Skólar á höfuðborgarsvæðinu
voru með hæstu meðaleinkunnirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Einkunnir eftir landshlutum
Íslenska Enska Stærðfræði
Reykjavík 6,6 6,7 6,8
Nágr. Reykjavíkur 6,5 6,7 6,8
Norðvestur 6,3 6,1 6,3
Norðaustur 6,2 6,1 6,3
Suður 6,1 6,2 6,3
Landið allt 6,4 6,5 6,6