Fréttablaðið - 25.10.2012, Blaðsíða 10
25. október 2012 FIMMTUDAGUR10
TAXFREE DAGAR UM HELGINA
Að
s
já
lfs
ög
ðu
fæ
r r
ík
iss
jó
ðu
r 2
5,
5%
v
irð
isa
uk
as
ka
tt
af
þ
es
sa
ri
sö
lu
. V
er
ðl
æ
kk
un
in
2
0,
32
%
e
r a
lfa
rið
á
k
os
tn
að
H
ag
ka
up
s.
- Minnkar svitaholur
- Sléttir úr línum
- Dregur úr örum eftir bólur
- Bætir áferð og lit húðarinnar
GAMMA HYDROXY
Sýrumeðferð sem endurnýjar ysta lag
húðarinnar á tveimur vikum
FER HAUSTIÐ
ILLA MEÐ HÚÐINA?
- Dregur úr pokum og þrota í kringum augun
- Sléttir og jafnar svæðið undir augunum
- Gefur raka og næringu
- Eykur teygjanleika
EYETUCK
Meðferð gegn pokum undir augum.
Sýnilegur árangur eftir tvær vikur
Rannsóknir í
félagsvísindum XIII
Opnir fyrirlestrar
Föstudaginn
26. október 2012
kl. 9-17 í Odda, Gimli, Háskólatorgi og Lögbergi
• Félags- og • Lagadeild
mannvísindadeild • Stjórnmálafræðideild
• Félagsráðgjafardeild • Viðskiptafræðideild
• Hagfræðideild
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
Nánari upplýsingar er að finna á
www.thjodarspegillinn.hi.is
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Þj
ó
ð
ar
sp
eg
ill
in
n
20
12
EVRÓPUMÁL „Þetta gekk eins og
við bjuggumst við,“ segir Stefán
Haukur Jóhannesson, aðal-
samningamaður Íslands gagnvart
ESB eftir ríkjaráðstefnu í Brussel
í gær, þar sem samningaviðræður
hófust um þrjá samningakafla. Nú
hafa viðræður hafist um 21 kafla
af 33 og þar af er viðræðum lokið
í 10 köflum.
Kaflarnir sem voru teknir inn
að þessu sinni voru um fjármála-
þjónustu, hagtölur og um tolla-
bandalagið. Tveir fyrrnefndu kafl-
arnir heyra undir EES-samninginn
en hinn þriðji stendur utan þeirra.
Í þessum köflum leitar Ísland
eftir ýmiss konar sérlausnum,
meðal annars varðandi viðlaga-
tryggingar og undanþágu frá gerð
ýmiss konar hagtalna.
Varðandi tollabandalagið segir
Stefán að þar sé margt líkt milli
aðila, en áhersla sé lögð á að standa
vörð um innflutning á hráefni fyrir
áliðnað og sjávarútveg.
„Við leggjum ríka áherslu á að
möguleg aðild að ESB hafi ekki
áhrif á innflutning á þessum
vörum,“ segir hann.
„Reyndar hefur ESB, að okkar
mati, sjálft hagsmuna að gæta í
að samkeppnisstaða íslensks ál-
iðnaðar raskist ekki, því að álið
sem er framleitt hér er að stórum
hluta flutt til Evrópu til frekari
iðnaðarframleiðslu þar.“
Þegar litið er viðræðurnar í
heild, segist Stefán vera nokk-
uð sáttur við framvinduna. Hann
vonast til þess að geta opnað sem
flesta kafla á næstu ríkjaráðstefnu,
sem verður í desember. Stefnt sé
á að 28 verði opnir fyrir lok árs,
en það velti þó á ESB þar sem allt
standi klárt frá hendi Íslendinga í
sjö köflum.
Fari svo, standa eftir fimm kafl-
ar sem tengjast á einn eða annan
hátt veigamestu málaflokkunum,
landbúnaði og sjávarútvegi.
Stefán Haukur segir land-
búnaðar mál vera næst á dagskrá.
Nú sé unnið að gerð samnings-
afstöðu Íslands og vinnu miði nokk-
uð vel áfram.
„Þetta er hins vegar afar flókinn
kafli og tímafrekur, enda einn af
höfuðköflunum í þessum viðræð-
um. Við viljum því vanda til verka
og köstum ekki til höndunum í því,“
segir Stefán, en hann segist ekki
geta gefið sér tímaramma varðandi
hvenær afstaðan gæti legið fyrir.
thorgils@frettabladid.is
Þrír kaflar í
viðbót komnir
til umræðu
ESB og Ísland hafa nú hafið viðræður í 21 af 33 samn-
ingsköflum. Aðalsamningamaður Íslands segist sáttur
við ganginn í viðræðunum en vonast til þess að til
tíðinda dragi á næstu ríkjaráðstefnu í desember.
Í heildina hafa samningar náðst um tíu kafla, en nú eru
ellefu enn til umræðu milli aðilanna. Ekki hefur náðst
að klára viðræður um neinn kafla á síðustu tveimur
ríkjarástefnum, og engum hefur verið lokað síðan í mars.
Stefán Haukur segir að þeir hefðu vonast til að betur
gengi með það.
„Við hefðum viljað loka einhverjum köflum að þessu
sinni, en það gekk ekki eins og við vonuðumst til. ESB
var ekki tilbúið til þess nú, en við sjáum til hvort við
náum ekki að loka einhverjum köflum í desember á
næstu ríkjaráðstefnu.
Hefði viljað klára kafla í þetta sinn
STEFÁN HAUKUR
JÓHANNESSON
Formlegar samningaviðræður hófust í júní 2010 en fyrstu málaflokkarnir, eða
samningskaflarnir, voru teknir fyrir efnislega á fyrstu ríkjaráðstefnu ESB og
Íslands 27. júní 2011. Nú standa yfir viðræður um ellefu kafla, en tíu hefur
verið lokað til bráðabirgða. Tólf kaflar eru enn óopnaðir, en samningsafstaða
Íslands liggur fyrir í sjö þeirra.
Samningskaflar milli Íslands og ESB:
10
5
7
11
Aðildarviðræður við ESB
Kaflar þar sem viðræður eru
hafnar: 21
Viðræður standa
enn yfir
Viðræðum
lokið
Kaflar þar sem viðræður eru
ekki hafnar: 12
Samningsafstaða
Íslands liggur fyrir
Samningsaf-
staða liggur
ekki fyrir
Reyndar hefur ESB,
að okkar mati, sjálft
hagsmuna að gæta í að
samkeppnisstaða íslensks
ál iðnaðar raskist ekki, því
að álið sem er framleitt hér
er að stórum hluta flutt til
Evrópu til frekari iðnaðar-
framleiðslu þar.
STEFÁN HAUKUR JÓHANNESSON
AÐALSAMNINGAMAÐUR
ÍSLANDS GAGNVART ESB