Fréttablaðið - 25.10.2012, Page 14
25. október 2012 FIMMTUDAGUR14
Umsjón: nánar á visir.is
ER GILDI GENGISVÍSITÖLU KRÓNUNNAR Vísitalan hefur hækkað um
3,2% á síðustu tveimur vikum en það jafngildir því að gengi krónunnar sé að veikjast.225,05
Morð og missætti
Skáldsaga (kilja) eftir Guðbjörgu Tómasdóttur
kom þann 24. október glóðvolg úr prentun.
Sagan er svo lygileg, að hún gæti þess
vegna verið sönn.
Fæst: Í bókabúðinni Hamraborg 5, Máli og Menningu.
Í Fjarðakaup og hjá höfundi. - Sími 555 1240
Með notkun örgjörvaposa sem snúa að viðskipta-
vinum og tengingu við afgreiðslukerfið frá Advania
er rekstraráhæa tengd kortaviðskiptum takmörkuð.
Advania á tilbúnar posalausnir og aðstoðar við
innleiðingu á örgjörvaposum.
Nánari upplýsingar á www.advania.is/pinnid
eða í síma 440 9428.
Fyrirtæki snúa posanum
að viðskiptavinum Isavia kyrrsetti í gærmorgun vél
sem Iceland Express var með á
leigu vegna ógreiddra lendinga-
gjalda. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins skuldar Iceland
Express Isavia, sem á og rekur
Keflavíkurflugvöll, um hálfa millj-
ón dollara, eða rúmlega 60 millj-
ónir króna.
Wow air keypti í gær hluta af
starfsemi Iceland Express. Kröfur
birgja og annarra samstarfsaðila
voru hins vegar skildar eftir í Ice-
land Express. Til stóð að breyta
nafni félagsins í gær eða í dag til
að aðskilja það frá vörumerkinu
sem selt var til Wow air.
Heimir Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi félagsins sem í gær
hét enn Iceland Express, segist
ekki geta sagt til um það á þess-
ari stundu hvort skuldin við Isavia
verði gerð upp. Hann segist ekki
vera með yfirsýn yfir hversu
mikið félagið skuldi birgjum og
samstarfsaðilum. „Það eru sjálf-
sagt skuldir hér og þar líkt og
gengur og gerist í öllum rekstri.
En það eru ekki einhverjir halar.
Félagið mun taka þann tíma sem
þarf til að ganga frá þessum
málum. Um þetta gilda ákveðin
lög og reglur. Menn afgreiða það
ekkert á nokkrum dögum.“
Það kaupverð sem Wow air
greiddi fyrir ákveðna þætti úr
rekstri Iceland Express fæst ekki
uppgefið. Aðspurður um hvort það
fé fari til gamla Iceland Express
eða til eigenda þess og helsta
kröfuhafa, Pálma Haraldssonar,
segist Heimir Már ekki þekkja
þann samning. „Sá samningur er
trúnaðarmál milli Pálma og Skúla.
Ég get ekki svarað því hvort og þá
hversu miklir fjármunir skiptu um
hendur. Þeir tveir eru einir um að
vita það.“ - þsj
Flugvél Iceland Express kyrrsett vegna ógreiddra lendingagjalda:
Skulda Isavia tugi milljóna króna
BÚIÐ SPIL Iceland Express mun skipta
um nafn, leita samninga við birgja sína
og samstarfsaðila um uppgjör krafna og
ljúka í kjölfarið starfsemi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Í fyrirtækjagreiningu Arion banka kemur fram að þrotabú Landsbankans,
sjóðir ALMC og Samson eignarhaldsfélag, sem eru að selja þá hluti sem eru
í boði í útboðinu, hafi skuldbundið sig til að selja ekki af hlut sínum í sex
mánuði eftir að bréfin verði tekin til viðskipta. „Í lýsingu er það þó skilyrt
þannig að félögin mega selja í einum viðskiptum stærri hlut en 5% innan
sölubannstímabilsins. Þó ofangreint skilyrði sé væntanlega sett í lýsinguna
til þess að tryggja að eitthvað flot geti verið á stórum eignarhlutum á næstu
sex mánuðum má að okkar mati allt eins líta svo á að samtals 10,9%
hlutur Landsbankans sé til sölu. Þá seldi Yucaipa 7% hlut í sumar og við
gefum okkur að Yucaipa ætli sér ekki að eiga 25% hlut í Eimskip til lang-
frama. Þannig má spyrja hvort nýr kjölfestufjárfestir sé handan við hornið
í Eimskip? Hin hliðin á peningnum er að líta svo á að talsvert framboð af
bréfum geti hangið yfir Eimskip og hafi fjárfestar áhuga á að kaupa stærri
hlut en 5% þá eru stórir hluthafar Eimskips tilbúnir við símann.“
Nýr kjölfestufjárfestir?
Rúmur helmingur þeirrar fjárfest-
ingar sem ratað hefur inn í land-
ið á grundvelli fjárfestingaleiðar
Seðlabanka Íslands hefur farið í
fjárfestingar í iðnaði, hátækni-
iðnaði, stóriðju og matvælaiðnaði.
Þetta kemur fram í gögnum frá
Seðlabankanum.
Alls hafa fjárfestar komið með
295 milljónir evra, um 59 milljarða
króna, inn í landið í gegnum leiðina.
Fjárfestingarnar nema 3,6 prósent-
um af vergri landsframleiðslu árs-
ins 2011. Um 56 prósent upphæðar-
innar hafa farið í að kaupa hlutabréf,
30 prósent í skuldabréf, 13 prósent í
fasteignir og um eitt prósent í kaup
í verðbréfasjóðum. Þegar fjárfest-
ingum er skipt niður á geira kemur
í ljós að 18 prósent hennar hafa ratað
í iðnað, 14 prósent í hátækniiðnað,
tíu prósent í stóriðju og tíu prósent í
matvælaiðnað. Samtals hefur um 31
milljarður króna ratað í þessa fjóra
geira.
Fjárfestingaleiðin, sem á að flýta
fyrir afnámi gjaldeyrishafta, virkar
þannig að ef fjárfestar skuldbinda
sig til að koma með helming þeirr-
ar upphæðar í evrum sem þeir vilja
flytja inn landið og skipta henni á
því gengi sem er boði hjá viðskipta-
bönkum hverju sinni, og eru tilbúnir
til að binda fjárfestinguna hérlendis
í fimm ár, fá þeir afslátt af hinum
helmingi fjárfestingarinnar.
Fyrsta útboðið samkvæmt fjár-
festingaleiðinni fór fram um miðj-
an febrúar síðastliðinn en þau hafa
alls verið sex talsins. Alls hefur 231
tilboði fjárfesta verið tekið í gegnum
þessa leið. Samtals hafa þeir aðilar
sem hafa komið með fé inn í landið
með þessum hætti fengið rúmlega
tuttugu prósenta afslátt af þeim
eignum sem þeir hafa keypt fyrir
féð. Ef sá afsláttur sem fjárfestinga-
leiðin felur í sér væri ekki til stað-
ar hefðu þeir fjárfestar sem hafa
komið inn í gegnum leiðina fengið
um 46,2 milljarða króna, samkvæmt
útreikningum Markaðarins. Það er
um þrettán milljörðum króna minna
en þeir hafa í raun fengið. - þsj
59 milljarðar í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans:
Rúmur helmingur
í iðnað og stóriðju
Skiptar skoðanir eru á meðal
greiningaraðila um hvort hluta-
bréf í Eimskip séu góður fjár-
festingakostur. Lokuðu hlutafjár-
útboði, þar sem 20 prósenta hlutur
í félaginu verður seldur til val-
inna fjárfesta, lýkur klukkan 14 í
dag. Þetta kemur fram í greining-
um Arion banka og IFS ráðgjafar.
Greiningarnar eru ætlaðar
fyrir fagfjárfesta til einkanota,
ekki fyrir almenning.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að þó nokkrir fagfjárfestar, þar á
meðal lífeyrissjóðir, ætli ekki að
taka þátt í útboðinu vegna þess að
þeim finnist verðið of hátt.
Fréttablaðið greindi frá því í
síðustu viku að alls yrði fimmt-
ungur hlutafjár í Eimskip seldur
til fagfjárfesta í útboði þar sem
verðbilið yrði 205 til 225 krónur.
Í kjölfarið myndi almenningur
fá að kaupa fimm prósenta hlut á
því verði sem útboðið mun skila.
Þetta var síðan staðfest í skrán-
ingarlýsingu Eimskips sem birt
var seint á mánudagskvöld.
Í greiningu Arion banka á Eim-
skip kemur fram að hún metur
virðismatsgengi hlutar í félaginu á
217 krónur, sem er innan verðbils-
ins sem boðið var upp á í útboð-
inu. Virðismatið er hins vegar
sagt næmt fyrir því hvaða ávöxt-
unarkröfu, og forsendur um fram-
legð, fjárfestar gera. Fjárfestinga-
umhverfið í dag er sagt hagstæðara
fyrir þá sem vilja selja eignarhluti
en þá sem vilja koma fjármagni í
vinnu, enda sé mikill skortur á fjár-
festingarkostum á Íslandi, sér í lagi
hlutabréfum í stórum félögum sem
skráð séu á markað.
Í greiningunni segir síðan að
„Eimskip er ekki til sölu á neinu
útsöluverði. Miðað við okkar for-
sendur […] teljum við að seljendur
ætli sér að fá fullt verð fyrir hlut
sinn.[…] Þeir fjárfestar sem krefj-
ast augljóss útboðsafsláttar ættu
þannig að láta vera að taka þátt og
við ráðleggjum fjárfestum ekki að
kaupa og metum betri tækifæri í
öðrum skráðum félögum í Kaup-
höll Íslands“.
Í virðismati IFS greiningar er
virðismatsgengi hluta í Eimskip
metið á 211 krónur. IFS spáir hins
vegar að gengi bréfanna verði
komið upp í 255 krónur eftir sex
til tólf mánuði. Gangi spá IFS
eftir munu þeir sem kaupa hluta-
bréf í Eimskip því fá rúmlega 17
prósenta ávöxtun á fjárfestingu
sína á umræddu tímabili. Því ráð-
leggur IFS fjárfestum að kaupa í
félaginu.
Þá er auk þess bent á að með
kaupum á bréfum í Eimskip munu
fjárfestar eignast „óbeina hlut-
deild í erlendu tekjuflæði, en um
þrír fjórðu tekna félagsins eru í
erlendum myntum. Í því er ákveð-
in gengisvörn fyrir fjárfesta sem
hafa áhyggjur af frekari veikingu
krónunnar. Það er yfirlýst stefna
félagsins að greiða arð sem nemur
10-30% hagnaðar, þótt það áskilji
sér rétt til að taka mið af mark-
aðsaðstæðum, fjármagnsskipan
og mögulegum fjárfestingum við
þá ákvörðun.
thordur@frettabladid.is
Eimskip ekki á
neinu útsöluverði
Arion banki ráðleggur fjárfestum ekki að kaupa í Eimskip og segir betri tæki-
færi vera í öðrum skráðum félögum. IFS greining ráðleggur hins vegar kaup og
telur að virði félagsins muni vaxa mikið á næstu sex til tólf mánuðum.
ENGINN AFSLÁTTUR Í greiningu Arion banka segir að það þurfi ekki að fara í grafgötur með að seljendur hlutanna ætli sér að fá
ásættanlegt verð. „Þetta er ekki frumútboð á nýju hlutafé, heldur hlutir sem seljendur sitja uppi með þar sem þeir voru stórir
lánveitendur gamla Eimskips.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR