Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2012, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 25.10.2012, Qupperneq 16
16 25. október 2012 FIMMTUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Sagt hefur verið í mín eyru að það komi úr hörðustu átt þegar ég vilji að almennt gildi það um mál sem fyrir Alþingi eru lögð, að þau komi til atkvæðagreiðslu. Fyrr á árum hafi ég iðulega gengið hart fram í því að koma í veg fyrir einmitt þetta með langri og stundum óbilgjarnri umræðu í þingsal. Í því sambandi eru síðan nefnd mál á borð við Kárahnjúkavirkjun, einka- væðingu Símans, bankanna og grunnvatns- ins, hlutafélagsvæðingu Ríkis útvarpsins og sitthvað fleira. Nokkuð er til í þessari gagnrýni. Í fámennri stjórnarandstöðu varð þrautalendingin stundum sú að reyna að skjóta málum á frest og skapa þannig ráðrúm til almennrar umræðu í þjóð- félaginu, mætti hún verða til að koma í veg fyrir hið óumflýjanlega í atkvæðagreiðslu á Alþingi, þar sem úrslitin réðust oftar en ekki af flokksaga. Málþóf og tafir er vissulega umdeilanleg baráttuaðferð og eftir því sem þingmenn verða sjálfstæðari í skoðunum og vinnu- brögðum mun hún án efa úreldast. Vonandi. En nú hefur komið vel á vondan því nú hendir það mig eins og forvera mína á ráðherrastóli að mál sem ég hef lagt fram komast ekki til endanlegrar afgreiðslu. Eitt slíkt mál er frumvarp um lífsskoðunar- félög, lagaheimild til að virða tilverurétt félags á borð við Siðmennt, til jafns við trú- félög. Andstæðingar þessa frumvarps hafa hingað til komið í veg fyrir að það komi til atkvæðagreiðslu. Viðurkenning á lífsskoðunarfélögum á borð við Siðmennt gengur ekki á rétt nokk- urs manns til að velja sér trú, trúarbrögð eða trúleysi. Um er að ræða að jafna stöðu fólks sem kýs sér mismunandi vettvang fyrir mannrækt, tilvistarspurningar og andlega þekkingarleit. Mér hefur þótt það bera vott um víðsýni ýmissa leiðandi aðila innan Þjóðkirkjunnar að styðja þetta frum- varp og þar með viðurkenningu á Siðmennt og því góða starfi sem þar er unnið. Ætli menn að koma í veg fyrir að lífs- skoðunarfélög geti öðlast viðurkenningu til jafns við trúfélög þá verða hinir sömu að gera grein fyrir þeirri afstöðu sinni og þeim hagsmunum sem eru í húfi. Siðmennt er hvorki Kárahnjúkar né bankaeinka- væðing. Siðmennt hefur uppskorið almenna viðurkenningu og virðingu. Jákvæð afstaða til uppbyggilegra lífsskoðunarfélaga ætti að eiga hljómgrunn í öllum stjórnmála- flokkum. Á það þarf að láta reyna á Alþingi. Siðmennt en ekki Kárahnjúkar Alþingi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra VILBORG EINARSDÓTTIR framkvæmdastjóri Mentors á ráðstefnu Stjórnvísi í Hörpu föstudaginn 26. október Þ orláksbúð, sem reist hefur verið á gamalli torftótt fá einum metrum frá Skálholtsdómkirkju, er blettur á ásýnd staðarins. Einkenni Skálholtsstaðar hefur verið stílhrein ásýnd, þar sem formfögur kirkja Harðar Ágústssonar hefur verið miðdepill og skólabyggingin verið henni verðug og falleg umgjörð. Þorláksbúðin truflar þessa heildarmynd verulega auk þess að vera hvorki fugl né fiskur, ekki endurbygging á gömlu torf- húsi og ekki einu sinni tilgátuhús sem stendur undir nafni. Það er meðal annars mat forstöðu- manns húsafriðunarnefndar, Nikulásar Úlfars Mássonar. „Hver er tilgangurinn með því að taka áhættuna á því að skaða umhverfið í Skálholti með byggingu húss sem alls ekki telst vera tilgátuhús þar sem ekki hefur verið sýnt fram á það með óyggjandi hætti að hús af þessari stærð og gerð hafi staðið áður á þessum stað og má því halda fram að sé sögufölsun?“ spyr Nikulás Úlfar í ávarpi sínu í ársskýrslu nefndarinnar fyrir árið 2011 sem birtist á vefsíðu Húsafriðunarnefndar í vikunni. Hann bendir einnig á að meðan varið sé 34 milljónum króna í Þorláksbúðarverkefnið líði varðveisla gamalla torfhúsa fyrir fjárskort og nefnir meðal annars að til standi að taka niður einn elsta torfbæinn á Íslandi norður í Eyjafirði, auk þess sem illa hafi gengið að sinna endurbótum á bæði íbúðarhúsum og útihúsum byggðum úr torfi vítt og breitt um landið. Eins og kunnugt er var lagt í Þorláksbúðarleiðangurinn af mikilli festu af hálfu Árna Johnsen og félaga hans, sem stofnuðu félag með það að markmiði að reisa þetta hús. Að engu voru hafðar viðvaranir aðila eins og húsafriðunarnefndar og Arkitektafélags Íslands. Að auki kom svo á daginn að deiliskipulag það sem talið var gilda fyrir Skálholtsstað og var forsenda byggingarleyfisins reyndist ekki í gildi. Engu að síður var haldið áfram með verkið og afraksturinn blasir nú við þeim sem sækja Skálholtsstað heim. Mennta- og menningarmálaráðherra hefði getað stöðvað byggingar ferlið með skyndifriðun á Skálholtsdómkirkju og Skálholts skóla, sem húsafriðunarnefnd lagði til fyrir tæpu ári. Tillaga nefndarinnar um friðun staðarins án Þorláksbúðar er nú til meðferðar. Þeirri meðferð lyktar vonandi farsællega. Það er algert hneyksli að Þorláksbúð skuli vera risin í Skál- holti. Í fyrsta lagi spillir húsið ásýnd staðarins, í öðru lagi er ekki einu sinni talið fullvíst að hús af þessari gerð hafi staðið á þessum stað og í þriðja lagi blasir það við hverjum þeim sem að húsinu kemur að fagmennska og smekkvísi var fráleitt með í för í verkefninu. Ekkert annað kemur til greina en að fjarlægja húsið sem allra fyrst. Í framhaldinu mætti finna því annan stað, að vel íhuguðu máli og að frágengnum öllum leyfum. Hitt kæmi líka vel til greina að sleppa því bara alveg. Þorláksbúð verður að hverfa af þeim stað sem hún er nú á: Yfirgangurinn í Skálholti Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is SKOÐUN Fráleitt að túlka heimasetu Friðrik Þór Guðmundsson, starfs- maður Dögunar, er einn þeirra sem hafa bent á það hve fáránleg iðja það er að reyna að túlka vilja þeirra sem ekki mættu á kjörstað um helgina. Hann skrifar pistil á heimasíðu sína þar sem hann segir „bráð- fyndið og á köflum grát- broslegt að fylgjast með fúlum andstæðingum lýðræðisumbóta reyna að lesa í afstöðu þeirra kjós- enda sem ekki greiddu atkvæði í þjóðar- atkvæðagreiðslunni sl. laugardag“. Túlkum samt heimasetu Friðrik Þór stenst hins vegar ekki mátið að gera einmitt það sem hann gagnrýnir aðra fyrir. Hann telur að fjölmargir líklegir fylgismenn stjórnar- skrárinnar hafi haldið sig heima vegna lítillar tiltrúar á íhaldið og afturhaldið á Alþingi. Þessir tilburðir Friðriks til að lesa í vilja þeirra sem heima sátu eru grátbroslegir, svo notuð séu orð hans sjálfs um sama hlut. Massíf markaðs- setning Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, hefur nú, ásamt þremur þing- mönnum úr jafn mörgum flokkum, lagt fram frumvarp sem felur í sér rýmri reglur um notkun fánans yfir sumartímann og í auglýsingaskyni. Verði lögin samþykkt hefur ráðu- neytið til 31. desember til að standa að kynningu á nýju regl- unum með það „að mark- miði að notkun fánans aukist“ eins og segir í greinargerð. Alþingis- mönnum er greinilega ekkert óviðkomandi, allra síst hvort landsmenn dragi fána að húni. kolbeinn@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.