Fréttablaðið - 25.10.2012, Qupperneq 34
KYNNING − AUGLÝSINGSlysabætur FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 20124
Það er mjög mikilvægt að leita strax aðstoðar lögmanna og fá úr því skorið sem fyrst
hvort maður kunni að eiga rétt á
bótum. Þetta á við hvort sem fólk
hefur lent í umferðarslysi, vinnu-
slysi, frítímaslysum eða öðrum
hremmingum“, segir Guðjón Ólafur
Jónsson, hæstaréttarlögmaður hjá
JP Lögmönnum.
,,Ferill skaðabótamála getur
tekið mjög langan tíma og þess
vegna er mikilvægt að setja sig í
samband við lögmann sem fyrst.
Hann getur þá farið í að afla nauð-
synlegra gagna, svo sem læknis-
vottorða, og hefja samskipti við
viðkomandi tryggingafélag. Það
skiptir miklu máli að gera þessa
hluti í tíma svo að ekki verði hætta
á að málin fyrnist. Stundum kemur
fólk hreinlega of seint svo málin
eru fyrnd. Við leggjum líka áherslu
á að fólk leiti til læknis strax eftir
slys þannig að allar upplýsingar
um áverka liggi þá þegar fyrir. Það
hjálpar ótrúlega mikið til við fram-
haldið“ segir Guðjón Ólafur.
Að sögn Halldóru Þorsteins-
dóttur héraðsdómslögmanns hjá
slysabætur.is, leggja lögmenn-
irnir áherslu á persónulega þjón-
ustu og regluleg samskipti við við-
skiptavini sína. ,,Við kappkost-
um að veita viðskiptavinum okkar
persónulega þjónustu og greiðan
aðgang að lögmönnum stofunnar.
Eins verður að hafa í huga að þessi
mál geta verið viðkvæm og því er
mikilvægt að fólk upplifi að lög-
maðurinn sé mannlegur og tilbú-
inn að ræða hlutina á persónuleg-
um nótum. Þetta er stundum eins
og nokkurs konar sálgæsla,“ segir
Halldóra. Aðspurð um feril skaða-
bótamálanna segir hún að það geti
verið misjafnt eftir málum en mörg
þeirra séu fremur einföld í sniðum.
,,Þetta fer yfirleitt þannig fram
að við hittum þann sem hefur
orðið fyrir slysi og fáum hjá honum
umboð til þess að af la gagna,
semja um bætur og þess háttar. Við
óskum síðan eftir gögnum frá við-
komandi tryggingafélagi, lögreglu-
Eins verður að
hafa í huga að
þessi mál geta verið
viðkvæm og því er
mikilvægt að fólk upplifi
að lögmaðurinn sé
mannlegur og tilbúinn
að ræða hlutina á
persónulegum nótum.
Slysabætur.is – „Mikilvægt að
leita strax aðstoðar“
Slysabætur.is er einn öflugasti upplýsingavefur landsins á sínu sviði og fær hundruð heimsókna í hverjum mánuði. Vefurinn er rekinn af JP
lögmönnum sem búa yfir langri og mikilli reynslu af innheimtu slysabóta. Guðjón Ólafur Jónsson hæstaréttarlögmaður og Halldóra Þorsteinsdóttir
héraðsdómslögmaður eru meðal þeirra lögmanna stofunnar sem mest hafa aðstoðað fólk við innheimtu slysabóta. Að þeirra sögn er mikilvægt að
fólki leiti strax til lögmanna hafi það orðið fyrir slysi.
Guðjón Ólafur Jónsson hæstaréttarlögmaður og Halldóra Þorsteinsdóttir héraðsdómslögmaður hvetja fólk til að leita til lögmanns
sem fyrst eftir slys. MYND/STEFÁN
Á slysabætur.is er að finna ítarlegar upplýsing-
ar um allar tegundir slysamála, feril þeirra og
kostnað, svo og svör við algengum spurningum
tjónþola, auk góðra ráða þeim til handa. Bæði
segja þau Guðjón Ólafur og Halldóra að slysa-
bætur.is hafi hjálpað fjölmörgum. Þar sé að finna
svör við ýmsum spurningum þeirra sem orðið
hafa fyrir slysum um rétt þeirra til bóta og hvað
þurfi að gera til að af greiðslu þeirra geti orðið.
„Þarna er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar
á mannamáli“ segir Halldóra. „Við pössuðum
okkur á að hafa textann vel skiljanlegan almenn-
ingi en ekki bara samansafn lögfræðifrasa. Við
svörum síðan frekari fyrirspurnum, hittum við-
komandi og fylgjum honum sjálf í gegnum ferlið
allt þar til við erum búin af fá bæturnar greidd-
ar og skila þeim af okkur.“ bætir Guðjón Ólafur
við. Hægt er að ná á Guðjóni Ólafi og Halldóru í
s. 588-5200 eða senda fyrirspurn á slysabætur@
slysabætur.is.
Slysabætur.is –
upplýsingar á mannamáli!
skýrslum, vottorðum lækna og öðru
sem kann að hafa þýðingu fyrir mál
viðkomandi. Jafnframt sendum
við umbjóðendur okkar til frekari
rannsókna hjá læknum eða öðrum
sérfræðingum eftir því sem nauð-
syn krefur. Við leggjum áherslu á
að eins ítarlegar upplýsingar liggi
fyrir um tjón viðkomandi og hægt
er. Þetta endar svo yfirleitt því lög-
maðurinn og viðkomandi trygg-
ingafélag biðja sameiginlega um
mat á líkamstjóni umbjóðandans.
Við förum með umbjóðandanum
á matsfund og gerum síðan upp
skaðabætur við tryggingafélagið
þegar matið liggur fyrir“ segir Hall-
dóra. Hún bætir þó við að í sumum
tilvikum geti málin þó óneitanlega
orðið töluvert flóknari en þetta.
Guðjón Ólafur bætir við að
slysabaetur.is aðstoði einnig ein-
staklinga sem orðið hafa fyrir lík-
amsárás eða kynferðisofbeldi. ,,Við
sinnum réttargæslustörfum fyrir
fórnarlömb kynferðisbrota og lík-
amsárása og gætum hagsmuna
þeirra bæði hjá lögreglu og fyrir
dómi. Við höfum mikla reynslu
í þessum málum,“ segir Guðjón
Ólafur og bætir við að fórnarlömb
kynferðisbrota og alvarlegra lík-
amsárása eigi yfirleitt rétt á að fá
tilnefndan réttargæslumann sér
að kostnaðarlausu.
„Við svörum öllum fyrirspurn-
um sem berast til okkar og leggjum
metnað okkar í að aðstoða alla þá
sem við getum“ segir Guðjón Ólaf-
ur. „Það kostar ekkert að spyrja.“
Kannaðu málið – það kostar ekkert!