Fréttablaðið - 25.10.2012, Page 45
FIMMTUDAGUR 25. október 2012 29
Tónlist ★★★★★
Sigurvegarar í Busoni-keppninni,
ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni.
Harpa, Norðurljós, 22. október.
Tónlistarkeppni ungra einleikara
er stundum stökkpallur til frægð-
ar og frama. Af þeim ástæðum eru
margar keppnir haldnar á hverju
ári, sumar mikilvægari en aðrar.
Á mánudagskvöldið spiluðu sigur-
vegararnir úr Busoni-píanókeppn-
inni á Ítalíu í Norðurljósum Hörpu.
Busoni-keppnin er með þeim stærri
í tónlistarheiminum. Nokkrir heims-
kunnir píanóleikarar hafa unnið til
verðlauna þar við upphaf ferils síns.
Talandi um þetta verð ég aðeins
að minnast á heimsviðburð úr for-
tíðinni sem tengist keppni. Úrslitum
fyrstu Tsjajkovskí-keppninnar, sem
var haldin í Moskvu árið 1958, má
líkja við það þegar Bobby Fischer
sigraði Boris Spasskí í Reykjavík
árið 1972. Bandaríski píanóleikar-
inn Van Cliburn vann þar gullverð-
launin. Fyrir það var hann hylltur
sem þjóðhetja í Bandaríkjunum.
Fólk slóst um miða á tónleika hans,
jafnvel þótt hann spilaði eingöngu
klassík.
Þessi kraftmiklu viðbrögð má
rekja til þess að kalda stríðið stóð
sem hæst og því þóttu það söguleg
tíðindi að Bandaríkjamaður, meira
að segja Texasbúi, skyldi vinna
fyrstu verðlaun í keppni í Sovétríkj-
unum. Tsjajkovskí-keppnin var sér-
staklega hugsuð til að undirstrika
yfirburði Sovétmanna á menningar-
sviðinu eftir að þeim hafði nokkr-
um vikum áður tekist að skjóta upp
Spútnik-gervitunglinu. Að Texasbúi
skyldi vinna Rússanna þótti ótrú-
legt.
Nú veit ég ekki hvort sigurvegar-
arnir í Busoni-keppninni verði að
þjóðhetjum! En þetta eru frábærir
píanóleikarar. Reyndar vann enginn
fyrstu verðlaunin í keppninni núna,
svo þau virðast ekki alveg útlærð
í listinni. En hver er það svo sem
nokkurn tímann?
Það fór um mig hrollur þegar
handhafi þriðju verðlaunanna,
Tatiana Chernichka, gekk inn í
salinn. Einbeitingin í svipnum var
slík að það var nánast óhugnanlegt.
Hún ætlaði sér að kljást við þekktan
fingur brjót, 6. sónötuna eftir Proko-
fiev. Sjálfstraustið var algert. Hún
reyndist hafa efni á því; frammi-
staðan var glæsileg. Túlkunin var
fáguð og í prýðilegu jafnvægi. Inn-
hverf augnablik voru fallega blæ-
brigðarík, þau kraftmeiri tilkomu-
miklar flugeldasýningar. Endirinn
var sérstaklega flottur – fólk æpti
af hrifningu.
Víkingur Heiðar Ólafsson lék tvö
verk á tónleikunum. Hann hefur
reyndar enn ekki unnið til verð-
launa í keppni sem skiptir máli á
alþjóðlegum vettvangi en hann stóð
sig engu að síður prýðilega. Sjötta
partítan eftir Bach hljómaði mun
betur í meðförum hans núna en á
tónleikum fyrir skemmstu. Og hann
spilaði vel Liebestod eftir Wagner-
Liszt.
Eftir hlé var komið að píanó-
leikurunum sem skiptu á milli sín
2. verðlaununum. Það voru þau
Anna Bulkina og Antonii Baris-
hevskyi. Bulkina spilaði Davids-
bündlertänze eftir Schumann. Það
var áhrifa mikill flutningur. Tónlist-
in var lifandi, hugmyndarík og inn-
blásin, full af tilfinningum – alveg
eins og Schumann á að hljóma. Og
Myndir á sýningu eftir Mussorgskí í
túlkun Barishevskyi var einfaldlega
frábær. Þetta er vissulega útjaskað
tónverk, en hér hljómaði það ferskt
og litríkt. Maður gat nánast séð
fyrir sér myndirnar á sýningunni
sem tónlistin fjallar um. Svona eiga
tónleikar að vera. Jónas Sen
Niðurstaða: Frábærir tónleikar með
píanóleikurum í fremstu röð.
Óhugnanleg einbeiting í Hörpu
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 25. október
➜ Félagsvist
20.00 Félagsvist verður haldin í
Skaftfellingabúð, Laugavegi 178. Allir
velkomnir og gott með kaffinu.
➜ Sýningar
10.00 Helga Harðardóttir myndlistar-
kona opnar sýningu á olíumálverkum
sínum í Bókasafni Kópavogs.
➜ Tónlist
21.00 Hjalti úr Múgsefjun og Skúli
mennski troða upp á fimmtudagstón-
leikum Mánabars, Hverfisgötu 20.
21.00 Svavar Knútur skemmtir á Café
Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Dúettinn Vigga og Sjonni halda
tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg
8. Aðgangseyrir er kr. 500.
Opið laugard. kl. 10-14
FÖSTUDAGINN 26. OKTÓBER KL. 20 – 2. SÝNING
LAUGARDAGINN 27. OKTÓBER KL. 20 – 3. SÝNING
SUNNUDAGINN 4. NÓVEMBER KL. 20 – 4. SÝNING
LAUGARDAGINN 10. NÓVEMBER KL. 20 – 5. SÝNING NÆSTSÍÐASTA SINN
LAUGARDAGINN 17. NÓVEMBER KL. 20 – 6. SÝNING SÍÐASTA SINN
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS – MIÐASÖLUSÍMI 528 5050
FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR!
„Óperan hefur unnið enn einn sigurinn og sannarlega sinn
stærsta í Hörpu til þessa“
– Gunnar Guðbjörnsson, Smugumenning
„Jóhann Friðgeir var alveg magnaður! Hulda Björk Garðars-
dóttir var stórkostleg...Viðar Gunnarsson sömuleiðis...Elsa
Waage vann leiksigur, söngurinn hástemdur og litríkur...
Anooshah Golesorkhi söng einstaklega fallega.“
– Jónas Sen, Fréttablaðið
Söngvararnir...öll með tölu framúrskarandi!
– Gunnar Guðbjörnsson, Smugumenning
„Kom mér ánægjulega á óvart. Íslenska óperan er komin heim!“
– Hlín Agnarsdóttir, Djöflaeyjan
„Leikmynd og lýsing Gretars Reynissonar og Björns Berg-
steins algerlega frábær, makalaust flott.
– Helgi Jónsson, Víðsjá
„Hljómsveitin var frábær.“
– Jónas Sen, Fréttablaðið
„Sem endranær brilleraði kór ÍÓ“
– Ríkarður Örn Pálsson, Morgunblaðið
„Mikil upplifun, frábær tónlist - og vel flutt.“
– Greipur Gíslason, Morgunútvarpið Rás 1
„Hulda Björk var algjörlega frábær...Elsa Waage var gríðar-
lega sterk...Viðar Gunnarsson virkilega flottur.“
– Helgi Jónsson, Víðsjá
Nokkrar umsagnir áhorfenda á netmiðlum:
„Hreint út sagt frábær sýning. Stórkostlegur söngur.“ – Eiður Guðnason
„Það var engu líkara en hlið himnaríkis hefðu opnast.“ – Sigríður Ingvarsdóttir
„Stórkostleg sýning. Söngur, ljós og umgjörð á heimsmælikvarða.“ – Jóhanna Pálsdóttir