Fréttablaðið - 25.10.2012, Side 48
25. október 2012 FIMMTUDAGUR32 32tónlist
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Í SPILARANUM
tonlist@frettabladid.is
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 27. september - 3. október 2012
LAGALISTINN
Vikuna 27. september - 3. október 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Retro Stefson ..............................................................Glow
2 Valdimar ......................................................................... Sýn
3 Mumford & Sons ............................................. I Will Wait
4 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn
5 Muse .....................................................................Madness
6 Ragnar Bjarnason / Jón Jónsson ...................... Froðan
7 Ásgeir Trausti ................................................. Leyndarmál
8 Magni ..................................................................Augnablik
9 Philip Philips .............................................................Home
10 Adele ..........................................................................Skyfall
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn
2 Retro Stefson ..............................................Retro Stefson
3 Ellý Vilhjálms .......................................... Heyr mína bæn
4 Of Monsters and Men ............My Head Is an Animal
5 Stuðmenn ......................................................... Astralterta
6 Úr kvikmynd ................................................Ávaxtakarfan
7 Steind. Andersen & Hilmar Örn .....................Stafnbúi
8 Muse ............................................................. The 2nd Law
9 Mannakorn ......................................... Í blómabrekkunni
10 Úr leikritum ...... Thorbj. Egner: Gömlu góðu leikritin
Steindór Andersen og
Hilmar Örn Hilmarsson -
Stafnbúi
Valdimar - Um stund Pascal Pinon -
Twosomeness
Nú þegar aðeins tæp vika er í að tónlistarveislan Iceland Airwaves
skelli á eru margir á fullu að kynna sér þá listamenn sem spila á hátíð-
inni í ár. Það er gjarnan þannig með Airwaves að þegar maður skoðar
listann í byrjun þá kannast maður ekki við næstum því öll nöfnin, en
um leið og maður kynnir sér óþekktu nöfnin, þá fjölgar atriðunum sem
maður má ekki missa af hratt.
Breski tónlistarmaðurinn Ghostpoet er kominn á minn lista yfir
ómissandi atriði á Airwaves 2012. Ghostpoet heitir réttu nafni Obaro
Ejimiwe. Hann er af nígerískum og
dóminískum ættum, en er fæddur
og uppalinn í Suður-London. Hann
sendi frá sér sína fyrstu EP-plötu
árið 2010 en fyrsta stóra platan,
Peanut Butter Blues & Melancholy
Jam, kom í febrúar 2011. Hún fékk
strax frábærar viðtökur og var til-
nefnd til Mercury-verðlaunanna
það ár. Plötu númer tvö frá kapp-
anum er beðið með mikilli eftir-
væntingu, en hún er væntanleg
snemma á næsta ári.
Ghostpoet er enskur rappari.
Röddin hans minnir á köflum svo-
lítið á meistara Roots Manuva og
umfjöllunarefnin eru tekin beint
úr hversdagsveruleika Lundúna-
borgar. Tónlistin sem hljómar
undir rímunum er hins vegar mjög fjölbreytt og framsækin blanda
af poppi og raftónlist. Það kemur sennilega engum á óvart að Mike
Skinner (The Streets) er mikill aðdáandi Ghostpoets.
Ghostpoet spilar á Þýska barnum á laugardagskvöldinu. Þar
verður mjög flott dagskrá það kvöld, en auk hans spila meðal annars
Ghostigital (klikka aldrei á Airwaves), Bloodgroup, Ojba Rasta og
austurrísku töffararnir í Electro Guzzi.
Framsækinn Lundúnarappari
HEITUR Ghostpoet er að klára plötu
númer tvö og spilar á Airwaves á
laugardagskvöldinu.
ASTRALTERTA með Stuðmönnum og Grýlunum er plata vikunnar ★★★★★
„Frábær pakki. Tvær plötur með þessari sígildu og fjölbreyttu popp-
tónlist og kvikmyndin sjálf í kaupbæti!“ - TJ
Önnur breiðskífa Thee
Attacks er komin út hér
á landi. Þessi hressi-
lega danska rokkhljóm-
sveit verður meðal gesta á
Airwaves-hátíðinni í ár.
Danska rokksveitin Thee Attacks
hefur sent frá sér sína aðra plötu,
Dirty Sheets, á vegum danska
útgáfufélagsins Crunchy Frog
og er hún komin út hér á landi.
Hljómsveitin kemur fram á
Airwaves-hátíðinni og verða
opinberir tónleikar hennar á
Gamla Gauki föstudagskvöldið
2. nóvember. Hún spilar einnig
á nokkrum tónleikum utan dag-
skrár í kringum hátíðina.
Thee Attacks er frá Álaborg á
Jótlandi og var stofnuð árið 2007
af þeim Terry, Johnny og Jimmy.
Ári síðar gekk Ritchie til liðs við
bandið. Þeir félagar, sem búa
núna í Kaupmannahöfn, gáfu út
sína fyrstu breiðskífu 2010 sem
hét That´s Misters Attack To You
og var það Bretinn Liam Wat-
son sem annaðist upptökustjórn.
Hann hlaut Grammy-verðlaunin
fyrir þátt sinn í plötu The White
Stripes, Elephant.
David Fricke, blaðamaður Roll-
ing Stone, sem kemur einmitt á
Airwaves í ár, hreifst mjög af
That´s Mister Attack To You og
Kröftugir danskir rokkarar
THEE ATTACKS Önnur plata dönsku rokkaranna er komin út hér á landi. Sveitin spilar á Gamla Gauki 2. nóvember.
MYND/SOREN SOLKAER
Save the Children á Íslandi
valdi hana á topp tíu listann sinn
yfir þær bestu það árið.
Thee Attacks hefur komið fram
á fjölmörgum tónlistarhátíðum
undanfarin ár, meðal annars á
Hróarskeldu, SXSW, By:Larm,
Spot Festival, Reeperbahn
Festival og Eurosonic. Breska
tímaritið Mojo var afar hrifið af
frammistöðu strákanna á SXSW í
fyrra og setti tónleikana þeirra á
lista yfir þá sjö bestu á hátíðinni.
Nýja platan Dirty Sheets hefur
notið mikilla vinsælda í heima-
landi þeirra og heiðarlegt og
grípandi rokkið af gamla skól-
anum átt greiða leið að eyrum
hlustenda. Meðal áhrifavalda
eru einmitt sveitir á borð við
The Kinks, The Who, The Small
Faces og T.Rex. Eins hefur Thee
Attacks hlotið mikið lof fyrir tón-
leika sína en hljómsveitin þykir
einstaklega lífleg og kraftmikil
á sviði. freyr@frettabladid.is
15% kynningarafsláttur
Nánar á www.frumherji.is
Ertu að kaupa eða selja fasteign?
Viltu minnka áhættu í fasteignakaupunum?
Hlutlaus söluskoðun og vönduð skýrsla yfir almennt
ástand eignarinnar getur borgað sig margfalt.
Láttu fagmenn Frumherja á sviði fasteignaskoðana fara
yfir eignina áður en gengið er frá kaupum.
Tímapantanir í síma 570 9360
SÖLUSKOÐUN
FASTEIGNA Thee Attacks kemur frá Álaborg á Jótlandi og var
stofnuð árið 2007 af þeim
Terry, Johnny og Jimmy.
2007
Auk rokkaranna í Thee Attacks stíga
fimm danskar hljómsveitir á svið á
Airwaves-hátíðinni.
The Foreign Resort er fjögurra
manna band sem spilar drungalega
síðrokkstónlist í anda The Cure, Joy
Division og My Bloody Valentine.
Önnur sveit, The Echo Vamper, er
rokkdúó skipað Iza Mortag Freund og
James Brook. Öskur-söngstíll Freunds
hefur vakið athygli og þykir hann
minna á söngkonurnar Lydiu Lunch
og Siouxsie Sioux.
Þriðja sveitin, The Eclectic Moniker
er skipuð sjö manneskjum með
Frederik Vedersø í fararbroddi. Tón-
listin er draumkennd og melankólísk
undir áhrifum frá indírokki, afróbíti,
calypso og poppi. Paul Simon,
Vampire Weekend, Beirut og Dirty
Projectors eru á meðal áhrifavalda.
Eins manns sveitin Rangleklod
stígur einnig á svið. Hún blandar rokki
og danstónlist saman við alls konar
forritaða hljóma þannig að úr verður
áhrifarík tónasúpa. Loks verður á
Airwaves kvennatríóið Nelson Can
Play sem spilar indí- og sálartónlist
undir áhrifum frá Yeah Yeah Yeahs,
The Gossip og The White Stripes.
FIMM AÐRAR DANSKAR Á AIRWAVES