Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 81
1985 1995 2012 –
1994 2002 – 20121984
bls 3
Árið 1995 tekur eignarhaldsfélagið Versicherungs-
kammer Bayern við af Bayerische Versicherungs-
kammer. Heinz Prokop, fyrsti stjórnarformaður hins
nýja eignarhaldsfélags, stendur frammi fyrir því verk-
efni að leiða hina nýju eigendur inn á frjálsan markað
og tekst honum það frábærlega. Eins og Rudolf
Herrgen hálfri öld fyrr endurreisir Prokop fyrirtækið
þó að grundvöllur og aðstæður séu aðrar. Að lokinni
einkavæðingu hinna opinberu tryggingafélaga tekur
hann það skref að endurskipuleggja Versicherungs-
kammer Bayern og byggja upp samkeppnishæft,
skilvirkt og nútímalegt fyrirtæki. Heinz Prokop fylgir
þar fyrst og fremst þeirri áætlun að gerast „trygginga-
veitandi landsvæðisins“. Hæfni, nálægð við viðskipta-
vini og leiðandi markaðsstaða eru þá sem nú
mikilvægir þættir í árangri Versicherungskammer
Bayern. Á næstu árum sameinar Prokop allar
hliðargreinar undir þaki eignarhaldsfélagsins
Versicherungskammer Bayern og setur undir eina
og sömu stjórn. Þetta eignarhaldsfélag er eigandi
að hlutum í öllum fyrrverandi félögum í Bayerische
Versicherungskammer sem í millitíðinni hefur
verið breytt í hlutafélög. Með stofnun
baktryggingafélagsins Versicherungskammer Bayern
Konzern-Rückversicherung AG með þátttöku
Bayern-Versicherung er endurskipulagningin full-
komnuð árið 1999. Sama ár ákveða stjórnir
Bayerische Beamtenkrankenkasse AG og Union
Krankenversicherung AG að sameina félög sín undir
eignarhaldsfélagið Zwischenholding Consal Beteili-
gungsgesellschaft AG.
Haglélið mikla Tuttugasta og fyrsta öldin
Tölvuöldin gengur í garð Með bjartsýni inn í framtíðinaSamsteypa tekur á sig mynd
Yfirtaka
Sparkassen-FinanzgruppeÞann 12. júlí 1984 gerði mikið haglél í München.
Í þessu tiltölulega skammvinna óveðri sló niður
af himni haglkúlum sem sumar voru á stærð við
tennisbolta og ollu gríðarlegu tjóni. Þetta kom illa
niður á Bayerische Versicherungskammer sem
sá um tryggingar á svæðinu af völdum slíks tjóns.
Vikum saman stóðu raðir bíla fyrir utan tjónahrað-
þjónustudeild fyrirtækisins sem allir báru ein-
kenni sem í gríni voru kölluð „Munich-Design“ – eða
beyglur af völdum haglkúlna.
Í samræmi við slagorðið „Stöðnun er afturför“
leikur Versicherungskammer Bayern stórt
hlutverk á nýrri öld og heldur sterkri stöðu sinni
á markaðnum.
Árið 2002 nær félagið að stækka hlut sinn í
Saarland Versicherungen í 51,1%og verður
meirihlutaeigandi. Með þessu er lagður grunnur
að því nána samstarfi sem nú er við Saarland.
Tveimur árum síðar kaupir félagið Feuersozietät
Berlin Brandenburg Versicherung AG
og Öffentliche Lebensversicherung Berlin
Brandenburg. Árið 2005 bætist við Ostdeutsche
Versicherung AG (OVAG).
VKB-samsteypan einnig leitað út fyrir
landsteinana hin síðustu ár eftir að hún stofnaði
líf- og fjöltjónatryggingu í Ungverjalandi og er
hún líka með ráðgjafafyrirtækið Sparnað sem er
umboðsaðili okkar á Íslandi. Alþjóðleg
starfsemi þessi er hluti af vaxtaráætlun sem
byggist á því að vinna með sterkum sam-
herjum að því að nýta enn frekar og rækta
hefðbundna styrkleika fyrirtækisins. Frá því í
janúar 2005 heldur sextándi stjórnarformaður
fyrirtækisins, Friedrich Schubring-Giese, um
þræði Versicherungskammer Bayern og
Holding VKB. Hans vandasama hlutverk er
að leiða samsteypuna fram á veginn á þröngu
einstigi á milli hefðar og nútíma.
Í upphafi tíunda áratugarins taka markaðsaðstæður
að gjörbreytast vegna opnunar hins evrópska
markaðar. Niðurfelling einkaleyfis á brunabótasviði
felur í sér nýjar áskoranir bæði fyrir starfsmenn og
stjórnendur fyrirtækisins.
Þegar ríkisstjórn Bæjaralands ákveður árið 1992 að
draga sig út úr fyrirtækjarekstri og selur loks 1994
Bayerische Versicherungskammer er lagt út á nýja
braut. Kaupendur eru Bayerische Sparkassen- und
Giroverband (Sparisjóðasamband Bæjaralands) auk
Sparkassen- und Giroverband Rheinland-Pfalz fyrir
deildir í þýska sambandslandinu Pfalz.
Kaup þessi eru stærstu viðskipti 104 sparisjóða
Bæjaralands fram að þeim tíma.
Versicherungskammer Bayern er sterkt félag
sem sinnir viðskiptavinum sínum á vinsamlegan
og traustan hátt.
Á aðalviðskiptasvæðum sínum, Bæjaralandi og
Pfalz, er fyrirtækið vinnuveitandi u.þ.b. 6.500
starfsmanna og stuðlar því á marga vegu að
velferð íbúanna. Þar við bætast fjölmargir sjálf-
stæðir ráðgjafar auk þjónustufulltrúa í bönkum og
sparisjóðum.
Fyrirtækið hefur áfram
metnaðarfull áform
fyrir framtíðina
Annars vegar er stefnt að aukinni og enn betri
samvinnu á milli tryggingafélaga í öllum hlutum
Þýskalands.
Hins vegar fjárfestir fyrirtækið í framtíðinni: sólar-
orkustöðvar, orkusparandi hús, endurvinnanleg
orka – mikil áhersla á loftslagsvernd.
Síðast en ekki síst leggur fyrirtækið áherslu á að
tryggingar eiga líka að vera á færi hins almenna
borgara, ekki bara hinna ríku.
Allt er þetta í samræmi við einkunnarorðin: „Við
sinnum öryggi þínu eins og væri það okkar eigið,
í gær, í dag og á morgun.“
Þetta ár setti fyrirtækið upp stafræna stjórn-
stöð sem var hátæknileg á mælikvarða þess
tíma. Til að skapa pláss fyrir stjórnstöðina var
rifið niður gamalt myglusýkt hús á baklóð stofn-
unarinnar. Þar var jafnframt tekin upp vinsæl
þýsk sjónvarpsþáttaröð um Meistara Eder og
álfinn hans. En hrekkjóttum álfinum úr þáttunum
var alltaf kennt um tölvubilanir sem áttu sér stað
á svæðinu.