Fréttablaðið - 29.11.2012, Page 2
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
ness dæmdi í gær 29 ára mann í
fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir vopnalagabrot, brot
gegn valdstjórninni og hylmingu.
Sérsveit lögreglu réðst inn á
heimili mannsins í Keflavík í lok
febrúar eftir að tilkynningar höfðu
borist um einkennilegt háttalag
hans á Facebook. Þar hafði hann
birt myndir af sér vopnuðum og
látið í veðri vaka að íbúð hans væri
tengd sprengju.
Á heimili mannsins fundust hníf-
ar, hlaðin kindabyssa, heimatilbúin
rörasprengja og gaskútar sem hann
hafði ýjað að að hann hygðist nota
til sprengjugerðar.
Maðurinn er dæmdur fyrir að
eiga vopnin og að ógna lögreglu-
mönnunum með hníf. Þó er tekið
fram að hann hafi verið nývakn-
aður og dauðhræddur og komist í
ákafa geðæsingu þegar lögreglu-
mennirnir réðust inn, grímu-
klæddir og vopnaðir. Það skuli
virða honum til refsilækkunar. Þá
er hann dæmdur fyrir hylmingu,
með því að eiga þjófstolna byssu.
Verjandi mannsins sagði við
aðalmeðferðina að lögregla hefði
farið offari við rannsóknina og að
hann hefði verið meðhöndlaður
eins og fjöldamorðinginn Anders
Breivik.
Dómurinn er sammála þessu
upp að vissu marki, og segir „aug-
ljóst […] að miklu meira hafi verið
lagt í rannsókn málsins en hátt-
semi ákærða gaf tilefni til,“ segir
í dómnum. „Þessu til stuðnings
bendir dómari sérstaklega á rann-
sókn á skrifum og hugarórum
ákærða sem ekki hafa nein tengsl
við þá háttsemi sem hann er ákærð-
ur fyrir.“ Vegna þessa er hann
aðeins dæmdur til að bera þriðjung
sakarkostnaðarins. - sh
Meðhöndlaður eins og Anders Breivik en fær aðeins skilorðsbundinn dóm:
Lögreglan rannsakaði of mikið
ÚR DÓMSAL Maðurinn sætti varðhaldi
í tvo mánuði en fékk aðeins skilorðs-
bundinn dóm. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN, AP Kraftlyftingakappinn Mústafa Ismaíl frá Egyptalandi
stendur í ströngu um þessar mundir en hann bíður þess að heyra frá
forsvarsmönnum heimsmetabókar Guinness hvort risavaxnir upp-
handleggir hans fáist viðurkenndir sem heimsmet.
Ummál þeirra er um 79 sentímetrar, sem jafngildir mittismáli á
grönnum karlmanni. Ismaíl, sem segist kallaður hinn egypski Stjáni
blái, borðar gríðarlegt magn af mat til að byggja sig upp, en þó ekki
spínat. Honum er legið á hálsi að hafa notað bellibrögð eða ólögleg efni
til að ná þessu marki, en hann neitar því. Guinness er að rannsaka
málið, en ekki er víst hvenær niðurstöðu er að vænta. - þj
Mústafa Ismaíl vill upphandleggina í metabækur:
Kallaður hinn egypski Stjáni blái
TEKIÐ Á ÞVÍ Mústafa Ísmaíl er með sverustu upphandleggi í heimi. Ummál þeirra
er 79 sentímetrar sem jafngildir mittismáli grannvaxins karlmanns. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
➜ Vill skaðabætur
Guðmundur St. Ragnarsson,
verjandi sprengjumannsins, segir
dóminn viðunandi. „Að öllum
líkindum mun hann fara fram
á skaðabætur út af gæsluvarð-
haldsvist í tvo mánuði,“ bætir
Guðmundur við.
Jóhanna, er ekki bara komið
„go to gate“ fyrir geiturnar?
„Nei, close the gate!“
Jóhanna Þorvaldsdóttir geitabóndi gagn-
rýnir stjórnvöld fyrir stefnuleysi í málefnum
íslenska geitastofnsins jafnvel þótt stofninn
sé svo fáliðaður að hann sé í útrýmingar-
hættu.
SAMGÖNGUR Nærri fjörutíu þúsund
farþegar að meðaltali notuðu þjón-
ustu Strætó á hverjum degi í októ-
ber. Daglegum farþegum fjölgaði
að meðaltali um 4.264 á virkum
dögum frá því síðast var talið í
október í fyrra.
„Ef öll þessi innstig yrðu á
sama tíma á deginum þyrfti um
47 strætisvagna til að flytja þá
farþega,“ segir í skýrslu um far-
þegatalningu Strætó í október.
Samtals voru farþegar Strætó
nú í október 1.015.172 og hafði
fjölgað um 11,9 prósent frá í
fyrra. Mun það vera í fyrsta skipti
sem farþegar Strætó eru fleiri en
ein milljón í október. Þessar tölur
byggja á ítarlegri talningu á far-
þegum í og úr hverjum vagni við
allar biðstöðvar í október.
„Það er því ljóst að íbúar höf-
uðborgarsvæðisins eru aftur að
svara ákalli eigenda Strætó bs.
um aukna notkun og er því óhætt
að segja að boltanum sé áfram
varpað yfir til eiganda Strætó bs.
að svara ákalli um aukna þjón-
ustu og þá kannski helst í fleiri
og stærri vögnum,“ segir í skýrsl-
unni.
Strætó gerir einnig svokallaða
greiðslugreiningu á farþegafjöld-
anum alla mánuði ársins. Í skýrsl-
unni kemur fram að þessi grein-
ing staðfesti sömu þróun og sýni
samtals 14,1 prósents aukningu
farþega það sem af er árinu. „Ef
fram fer sem horfir mun Strætó
bs. flytja rúmlega tíu milljónir
farþega í ár,“ segir í skýrslunni.
Fjölgunin er að hluta til sögð
hafa verið fyrirsjáanleg þar sem
þjónustan var aukin með fleiri
Farþegum fjölgaði
um 47 vagna á dag
Strætó segir farþegum hafa fjölgað um 12 prósent milli ára. Í október tóku 4.264
fleiri strætó á virkum dögum en í október í fyrra. Sá fjöldi fyllir 47 strætisvagna.
Oft þurfti að skilja farþega eftir á tveimur leiðum. Strætó segir enn sóknarfæri.
OKTÓBER 2011
393 vagnar af farþegum
á virkum degi
OKTÓBER 2012
440 vagnar
ferðum og aukinni tíðni. Þrátt
fyrir að Strætó hafi bætt við svo-
kölluðum liðvögnum hefur flutn-
ingsgetan ekki annað eftirspurn
á sumum leiðum á háannatímum.
Bæði leið 1 og 6 hafi iðulega þurft
að skilja farþega eftir þar sem
vagnarnir voru fullir.
„Það að farþegum er enn þá að
fjölga mest á háannatíma er farið
að valda verulegum vandræðum,
einkum vegna þess hversu mikinn
vagnafjölda þarf að senda auka-
lega í akstur á morgnana og nú
einnig seinnipart dags,“ segir í
skýrslu Strætó.
Af einstökum leiðum má nefna að
aukningin nú í október var 51 pró-
sent í innanbæjarakstri Strætó í
Hafnarfirði. Er það þakkað breyttu
leiðakerfi þar í samvinnu við bæj-
aryfirvöld. Rúmlega 100 prósenta
aukning hefur verið hjá leið 18 á
síðustu tveimur árum. Sá vagn
ekur í Grafarholt og hefur verið
tengdur Grafarvogi og Mosfellsbæ
auk þess sem aksturstíðnin hefur
verið aukin. gar@frettabladid.is
Leið 1
Leið 2
Leið 3
Leið 4
Leið 5
Leið 6
Leið 11
Leið 12
Leið 13
Leið 14
Leið 15
Leið 17
Leið 18
Leið 19
Leið 23
Leið 24
Leið 26
Leið 28
Kópav.
Hafnarfj.
24,31%
-12,50%
66,6%
5,03%
1,49%
18,22%
1,99%
19,73%
49,47%
23,69%
35,18%
7,69%
-1,51%
24,85%
25,39%
1,70%
21,95%
51,19%
5,73%
10,79%
14,1%
aukning farþega
það sem af er
árinu.
BRUSSEL Evrópusambandið hefur
tilnefnt Maltverjann Tonio Borg
í embætti framkvæmdastjóra
heilbrigðismála. Hann tekur
sæti landa síns, Johns Dalli, sem
þurfti að segja af sér vegna spill-
ingarmála.
Náinn samstarfsmaður Dallis
var staðinn að því að bjóða
sænsku tóbaksfyrirtæki fund
með framkvæmdastjóranum
gegn greiðslu.
Borg, sem er skipaður til loka
október 2014, hefur þvert á móti
gefið fyrirheit um að herða enn á
tóbakslöggjöfinni. - þj
Nýr heilbrigðisstjóri hjá ESB:
Borg í stað hins
spillta Dallis
DÓMSTÓLAR
Í fangelsi fyrir kókaínsmygl
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt
47 ára mann í fimm mánaða fangelsi
fyrir að flytja til landsins 120 grömm
af kókaíni innvortis frá Kaupmanna-
höfn. Úr því hefði mátt framleiða
414 grömm miðað við hefðbundinn
styrkleika.
FRAKKLAND
Eyða mestu í velferðarmál
Frakkar eyða allra ESB-ríkja mest í
félags- og velferðarmál, sem hlut-
fall af vergri þjóðarframleiðslu, eða
33,8 prósentum. Frá þessu segir á vef
EUobserver og er vísað í tölur Eurostat.
Danmörk fylgir þar rétt á eftir með
33,3 prósent, Holland er með 32,1
prósent og Þýskaland 30,7. Eistland og
Búlgaría reka lestina með 18,1 prósent.
PALESTÍNA Nokkuð öruggt þykir að allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna fallist á að Palestína
fái stöðu áheyrnarríkis þegar gengið verður
til atkvæða um ályktun þess efnis í dag eða á
morgun, enda hafa meira en tveir þriðju hlutar
aðildarríkja SÞ þegar viðurkennt sjálfstæði Pal-
estínu.
Ísland er meðflutningsríki ályktunarinnar, en
í dag er rétt ár síðan Alþingi viðurkenndi sjálf-
stæði Palestínu.
Meðal annarra ríkja hafa Frakkar, Austur-
ríkismenn, Svisslendingar, Norðmenn, Danir,
Finnar og Spánverjar lýst því yfir að þeir muni
greiða ályktun þess efnis atkvæði sitt, ásamt
Kínverjum, Indverjum og líklega Rússum.
Bandaríkin hafa staðið á móti ályktuninni, en
geta ekki beitt neitunarvaldi sínu á allsherjar-
þinginu eins og þeir geta í öryggisráði SÞ. Þá
ætla hvorki Bretar né Þjóðverjar að greiða
ályktuninni atkvæði sitt.
Palestínumenn hafa haft áheyrnaraðild að
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna síðan 1974,
ekki þó sem ríki, heldur sem samtök, en með því
að veita Palestínu stöðu áheyrnarríkis er hins
vegar í reynd verið að viðurkenna sjálfstæði Pal-
estínuríkis. Palestína fær þá sömu stöðu og Páfa-
garður, sem nú er eina ríkið sem hefur áheyrn-
araðild án fullrar aðildar að SÞ. - gb
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ræðir ályktun um að veita Palestínu áheyrnaraðild:
Palestínumenn vongóðir um samþykki
TÍMAMÓT Í VÆNDUM Palestínsk börn halda á
myndum af Jasser Arafat og Mahmoud Abbas,
forseta Palestínustjórnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS