Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 44
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 20124
Borgarbyggð:
Leikdeild Ungmennafélagsins Ís-
lendings hefur sett upp gamanleik-
ritið Smáborgarbrúðkaup eftir Bertolt
Brecht að Brún í Bæjarsveit í leikstjórn
Ingrid Jónsdóttur. Næstu sýningar
verða föstudaginn 30. nóvember og
sunnudaginn 2. desember. Viðburð-
inn má skoða á Facebook.
Bræðurnir Ómar og Óskar Guð-
jónssynir halda tónleika í Landnáms-
setrinu þann 3. desember. Brasilíski
söngvarinn og gítarleikarinn Ife To-
lentino syngur með Óskari eftir hlé.
Egill Ólafsson kemur fram með
Freyjukórnum á tvennum jólatón-
leikum um helgina. Fyrri tónleik-
arnir verða laugardaginn 1. des-
ember í Hjálmakletti en þeir síðari 2.
desember í Reykholtskirkju. Sungin
verða íslensk og erlend jólalög.
Norðurland:
Gamli bærinn í Laufási verður opinn
milli klukkan 13.30 og 16 sunnudag-
inn 2. desember. Dagskráin hefst
á jólasöng í kirkjunni og svo munu
handverksmenn og -konur sýna
hvernig jólaundirbúningurinn fór
fram á öldum áður í Gamla bænum.
Þá verður einnig handverksmarkað-
ur í bænum og veitingasala.
Í Dimmuborgum í Mývatnssveit
verður dagskrá fyrir alla fjölskyld-
una um helgina. Jólasveinarnir verða
á ferðinni, opið verður í handverks-
húsinu Dyngjunni og hægt að fá sér
gott í gogginn á Kaffi Borgum og á Sel
Hóteli við Mývatn. Þá er Gamli bær-
inn í Mývatnssveit notalegur staður
að setjast á.
Höfn í Hornafirði
Árleg rithöfundakynning Menning-
armiðstöðvar Hornafjarðar fer fram
í Pakkhúsinu þann 5. desember
klukkan 20. Lesið verður upp úr ný-
útkomnum jólabókum.
Vestfirðir
Jólabasar hinna ýmsu félagasam-
taka á Flateyri verður haldinn klukk-
an 15 sunnudaginn 2. desember í Fé-
lagsbæ. Íþróttafélagið Grettir verð-
ur með vöfflusölu og kveikt verður á
ljósum jólatrés klukkan 16.
Land lagt
undir fót
Víða um land eru skemmtilegir viðburðir á dagskrá á
aðventunni. Upplýsingar um viðburði er að finna á
heimasíðum sveitarfélaganna. Eftirfarandi er einungis
brot af því sem um er að vera um helgina.
Jólabasar verður í
Félagsbæ á Flateyri
sunnudaginn 2.
desember.
Fjölskyldudagskrá verður í Mývatnssveit
á aðventunni. Jólasveinarnir verða á
ferðinni í Dimmuborgum og opið verður
í handverkshúsinu Dyngjunni.
Laufabrauð hefur verið skorið fyrir
jólin gegnum aldirnar. Í Gamla bænum
í Laufási í Eyjafirði verða handtökin við
undirbúning jólanna á árum áður sýnd
um helgina.
Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu
frumsömdu jólasöguna.
Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag,
myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara.
Samkeppnin er öllum opin.
Einu skilyrðin eru þau að sagan fjalli um jólin eða fangi
anda jólanna með einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk
eru 1.000 til 1.300 orð en að öðru leyti eru efnistök frjáls.
Sögur skal senda á netfangið jolasaga@frettabladid.is.
Skilafrestur er til 5. desember.
Fyrstu verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba.
Verðlaun fyrir annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af
gerðinni United.
Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum.
Jólasagan þín Í sýningarsal Arctic Trucks má sjá
glæsilegan 44 tommu breyttan
jeppa sem er eins og þeir sem fyr-
irtækið hefur verið að senda á Suð-
urpólinn. „Við erum með fimmtán
jeppa í ýmsum verkefnum á Suð-
urpólnum. Þeir hafa reynst mjög
vel og eru meðal annars notaðir til
að aðstoða fólk í skíðaleiðöngrum,
starfsmenn jöklarannsóknastofn-
ana nota þá og svo eru þeir alltaf
notaðir meira og meira til þess að
keyra ferðamenn. Það hefur verið
vaxandi straumur ferðamanna á
Suðurpólinn undanfarið,“ segir
Steinar Sigurðsson, sölu- og rekstr-
arstjóri hjá Arctic Trucks.
Arctic Trucks er alhliða breyt-
inga- og dekkjaverkstæði, þar má fá
ástandsskoðun og einnig er þar stór
verslun. „Við erum umboðsaðili hér
á landi fyrir Dick Cepek-dekk sem
eru sérstaklega góð fyrir íslenskar
aðstæður og margreynd. Þau eru
frá 30 tommum til 37 tommu. Einn-
ig bjóðum við upp á sérhönnuð 38“
dekk sem eru gerð fyrir snjóakst-
ur og seld fyrir íslenskar aðstæður.
Við höfum selt þau út í heim líka.
Auk þess erum við með 44“ Dick
Cepek-dekk sem eru vel þekkt af
jöklaförum en þau dekk eru ein-
göngu framleidd fyrir Arctic Trucks
og einungis seld hjá okkur.“
Arctic Trucks er einnig fram-
leiðandi álfelga sem eru 17x8 og
eru ætlaðar fyrir óbreytta jeppa.
Fyrirtækið framleiðir líka 17x10 ál-
felgur fyrir 35 til 37 tommu breytta
jeppa. „Hér getur jeppaáhugamað-
urinn fundið allt sem hann van-
hagar um,“ segir Steinar.
Flottur jeppi til sýnis
Arctic Trucks er með fimmtán breytta jeppa á Suðurpólnum í ýmsum
verkefnum. Slíkan 44 tommu breyttan jeppa má einnig sjá í sýningarsal
fyrirtækisins á Kletthálsi.
Arctic Trucks framleiðir bæði sérhönnuð dekk og álfelgur.
Hjá Arctic Trucks fær jeppaáhugamaðurinn allt sem hann vantar að sögn Steinars Sig-
urðssonar, sölu- og rekstrarstjóra. MYND/GVA