Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 38
FÓLK|TÍSKA
Á tískusýningu Marc by Marc Jacobs
í New York fyrir stuttu, þar sem sýnd
var vortískan 2013, komu í ljós töluverð
áhrif frá sjöunda og áttunda áratug síð-
ustu aldar. Æpandi litir, röndóttar línur
og punktar. Marc Jacobs segir að kon-
ur þurfi ekki að vera naktar til að vera
kynþokkafullar og vísar til þess fatn-
aðar sem hann kynnir fyrir vorið. Kjól-
arnir eru langt frá því að vera flegnir.
Klútar eru mikið notaðir, jafnt sem belti
og yfir höfuðið. Pilssíddin er rétt fyrir
ofan hné. Sportsokkar við pils og kjóla
voru áberandi og mittið á buxunum
hefur hækkað. Þetta er sportleg tíska
í fallegum litum og hentar örugglega
mörgum þeim sem vilja ganga í frjáls-
legum fatnaði.
LITRÍK VORTÍSKA
Marc Jacobs sýndi litríka vortísku fyrir 2013 í New York á dögunum. Margir sáu afturhvarf til fortíðar
hjá honum eins og mörgum öðrum hönnuðum um þessar mundir.
FRJÁLSLEGT HJÁ MARC BY MARC
Fatahönnunarteymið Ostwald Helgason fékk hæsta styrkinn, eða
eina og hálfa milljón, þegar
sex og hálfri milljón var
úthlutað úr Hönn-
unarsjóði Auroru nú í
vikunni. Teymið saman-
stendur af þeim Ingvari
Helgasyni og Susanne
Ostwald en þau hafa
undanfarið vakið mikla
athygli í tískuheiminum
fyrir hönnun sína. „Við
sýndum á tískuvikunni
í New York í september
síðastliðnum og höfum
fengið mikla athygli og um-
fjöllun eftir það í stórum
tískublöðum, meðal
annars í Vogue og Style.
com. Við fengum einnig
styrk úr Hönnunar-
sjóði Auroru síðast þegar
var úthlutað úr honum og sá
styrkur gerði okkur kleift að
taka þátt í tískuvikunni núna í
haust þannig að þessir styrkir
eru okkur mjög mikilvægir,“ segir
Ingvar.
Hönnunarsjóður Auroru er
þriggja ára tilraunaverkefni sem
hefur að markmiði að skjóta
styrkum stoðum undir íslenska
hönnun með því að veita hönnuðum
fjárhagslega aðstoð. Markmið sjóðs-
ins er að styrkja hönnuði til að koma
sjálfum sér, hugmyndum sínum, vörum
og verkefnum á framfæri og aðstoða
við vöruþróun og markaðssetningu hér-
lendis og erlendis.
Ostwald Helgason fékk styrkinn núna
til þess að geta tekið þátt í tískuvikunni
í New York í febrúar á næsta ári en
þar sýnir teymið haust- og vetrartísku
næsta árs. „Þetta er
frekari þróun á því sem
við höfum verið að
gera. Við stofnuðum
merkið árið 2008 og
höfum hægt og rólega
verið að finna út hvaða
stefnu við viljum taka.
Á sýningunum í New York
höfum við verið með eins
konar kynningar á línunni
okkar en þá standa módelin í
tvo klukkutíma og sýna fötin.
Þetta er ekki hefðbundin tísku-
sýning en góð leið til að hitta
fólk og byggja upp samband
við sýningarstjóra, kaupendur
og fleiri. Sýningin í febrúar
verður í svipuðum dúr þann-
ig að það eru spennandi
tímar fram undan hjá okkur.
Það eru í raun forréttindi
að geta unnið við það sem
ég hef áhuga á og við erum
vaxandi í tískuheiminum.“
FENGU HÆSTA
STYRKINN
AURORA ÚTHLUTAR Hönnunarsjóður Auroru styrkti tískuteymið Ostwald
Helgason nú í vikunni. Teymið hefur vakið mikla athygli í tískuheiminum að
undanförnu.
OSTWALD HELGA-
SON Hönnunarteymið
Ostwald Helgason
samanstendur af Ingvari
Helgasyni og Susanne
Ostwald. Þau fengu
styrk úr Hönnunarsjóði
Auroru í vikunni.
AÐSEND MYND
FALLEG HÖNNUN
Ostwald Helgason nota
mikið af hátískuefnum,
sem eru gerð fyrir stóra
hönnuði, í hönnun sína
en nota efnin á einfaldari
og sportlegri hátt.
Við erum á Facebook
Bæjarlind 6
S. 554 7030
Eddufelli 2
S. 557 1730
www.rita.is
Rauður jakki
fyrir jólin
Str. S-XXL. Verð 15.900 kr.
Nú er Létt Bylgjan jólastöðin þín
Ljúf og þægileg jólatónlist
alla daga til jóla