Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 68
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is
- Í öll anddyri
- Hvaða stærð sem er
- Afgreidd á 2 dögum
• •
Fornbókabúðin Bókin er með upp-
boð á vefnum (www.uppbod.is) í
samstarfi við Gallerí Fold. Þar
er úrval fágætra bóka, til dæmis
fyrsta bók Steinunnar Sigurðar-
dóttur, Sífellur og brautryðjanda-
verk Björns Th. Björnssonar,
Íslenzk myndlist. Þá eru boðnar
bækur Þorvalds Thoroddsen, Lýs-
ing Íslands, Landskjálftar á Íslandi
og Árferði á Íslandi og tímaritið
Verðandi sem Hannes Hafsein gaf
út.
Rit frá gömlu íslensku prent-
stöðunum, Hólum, Leirárgörðum
og Viðey, verða boðin upp, meðal
annars Stjörnufræði, létt og handa
alþýðu í þýðingu Jónasar Hall-
grímssonar og Leirgerður, sálma-
bókin frá Leirárgörðum, prentuð
1801, Húspostillur Vídalíns prent-
aðar á Hólum í Hjaltadal 1744,
einnig útgáfa frá 1750. Góð eintök
í upprunalegum böndum og með
silfurspenslum.
Bækurnar verða til sýnis í Bók-
inni að Klapparstíg 25 til 27, dag-
ana 30. nóvember til 1. desember.
Uppboðinu lýkur 2. desember
2012.
Fágætar bækur boðnar upp
Stjörnufræði handa alþýðu í þýðingu Jónasar Hallgrímssonar er meðal muna á uppboðinu.
ARI GÍSLI BRAGASON
Ung Nordisk Musik hátíðin,
UNM, verður haldin í Ósló á
næsta ári. Hátíðin, sem hefur
verið árviss viðburður frá árinu
1946, er vettvangur verka ungra
tónskálda.
Nú er auglýst eftir tónverkum
íslenskra tónhöfunda og erlendra
með búsetu á Íslandi fyrir dag-
skrá næstu hátíðar. Tónskáld
sem fædd eru 1983 og síðar geta
sent inn verk til dómnefndar sem
velur þátttakendur, en gerð er
undantekning með aldur ef tón-
skáldið er enn í námi.
Íslandsnefnd UNM hátíðarinn-
ar tekur þátt í að fjármagna þátt-
töku þeirra tónskálda sem valin
verða sem fulltrúar Íslands á
hátíðinni, og gerir þeim kleift að
sækja hátíðina heim í Ósló 2013.
Nánari upplýsingar er að finna á
unm.is.
UNM haldin
í Ósló
Ríflega 40 prósent af þýddum
skáldverkum sem koma út hér á
landi í ár eru reyfarar, ef marka
má skráningar í Bókatíðindi 2012.
Alls eru 69 titlar skráðir í
flokkinn þýdd skáldverk. Lausleg
samantekt leiðir í ljós að þar af
eru 29 glæpasögur og reyfarar
(bækur á borð við Hungurleikana
falla ekki í þann flokk). Það eru
um 42 prósent af þýddum skáld-
sögum.
Norrænu glæpasögurnar njóta
mestra vinsælda í sínum flokki.
Í hópi 20 mest seldu bóka ársins
samkvæmt uppsöfnuðum metsölu-
lista Rannsóknaseturs verslunar-
innar eru þrír norrænir krimm-
ar. Englasmiðurinn eftir Svíann
Camillu Läckberg er í 8. sæti,
Snjókarlinn eftir Norðmanninn Jo
Nesbø í sætinu á eftir, og Flösku-
skeyti frá P eftir Danann Jussi
Adler-Olsen er í 13. sæti.
Reyfararnir
ráða ríkjum
JUSSI ADLER-OLSEN
FJALLKONAN
Margt verður
boðið upp
sem heyrir
fortíðinni til.