Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 74
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54
➜ Síldin er best þegar hún
er búin að standa í leginum í
minnst tvær vikur.
Síld í appelsínulegi er réttur sem
þarf að gera með minnst tveggja
vikna fyrirvara segir Marentza
Poulsen smurbrauðsjómfrú.
Reyktu kartöflurnar er auðvelt
að útbúa heima bætir hún við, í
útigrillinu eða sérútbúnum kassa
sem fæst í veiðibúðum.
Nú ætlar Marentza í fyrsta
sinn að bjóða upp á jólamat í
Café Flóru í Laugardalnum á
aðventunni. Gestir þar eiga á
góðu von því hún ætlar að skapa
nýtt jólaævintýri í Reykjavík
sem tekur til allra skilngarvita.
„Hugmynd mín er sú að þegar
fólk gengur í gegnum jóladalinn
(Grasagarðinn) inn í garðskálann
fái það vasaútgáfu af þeirri til-
finningu sem það fær þegar það
labbar inn í Tívolí í Köben!“ segir
hún.
Appelsínusíld á reyktum
kartöflum
10 fersk síldarflök
(fást í góðum fiskbúðum og Kolaportinu)
1 lítri vatn
1/2 lítri kryddedik
1/2 kg sykur
1 laukur, hreinsaður og skorinn í sneiðar
3 lárviðarlauf
1 msk. svartur pipar, heill
1/2 msk. allrahanda heilt
1/2 msk. sinnepsfræ
5 dl appelsínusafi (gott að hafa til
helminga safa úr fernu og kreistri
appelsínu)
Börkur af 3 appelsínum
Setjið allt hráefnið í pott nema
safann og börkinn og látið sjóða í 30
til 40 mínútur. Gott er að hafa lok
á pottinum þar sem ediklögurinn
er frekar sterkur þegar hann hitnar.
Sigtið löginn. Bætið síðan appels-
ínusafanum og berkinum við. Þegar
lögurinn er orðinn vel kaldur er síldin
skorin í bita og sett saman við hann.
Síldin er best þegar hún er búin að
standa í leginum í minnst tvær vikur.
Ef ekki fæst fersk síld er hægt að
kaupa hana marineraða, sigta hana
frá leginum sem hún er í og setja
hana í eigin lög.
Kartöflur
Setjið vel þvegnar kartöflur í pott og
látið vatn flæða vel yfir þær. Saltið.
Vatnið á að vera nánast eins salt og
sjór. Sjóðið. Setjið smá sag í botninn
á reykkassanum og plötuna ofan
á. Setjið kartöflurnar á grindina og
reykið þær í um það bil tvo tíma. - gun
Síld með hátíðarbragði
Síld á vel heima á íslenskum aðventu- og jólaborðum og Marentza Poulsen
smurbrauðsjómfrú kann óbrigðular aðferðir við að gera hana að hátíðamat. Hér
marinerar hún síld í appelsínulegi og reykir kartöfl ur.
MARENTZA POULSEN Gerir síld að
veislumat. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
eða á www.somi.is
Frí heimsending*
Pantaðu í síma
Hamborgarahryggur
og kartöflusalat
Dönsk lifrakæfa,
sveppir og beikon
Jólasíldar-
salat
Hver veislubakki er
hæfilegur fyrir 4 eða 5.
*Frí heimsending gildir
aðeins ef pantaðir eru
4 eða fleiri bakkar.
Klassískt um jólin!
NÝR VEISLUBAKKI
PRÓFAÐUEITTHVAÐ
NÝTT!
30 bitar
12 snittur
Steikt Peking önd með
Peking sósu, gúrkum,
blaðlauk og salatblöndu
í mjúkri tortilla köku.
Síldin er svokallaður uppsjávar- og miðsævisfiskur og
er að finna niður á allt að 250 metra dýpi. Hún er ein
algengasta fisktegundin á norðurhveli jarðar og eru
heimkynni hennar í austanverðu Atlantshafi, eða allt
frá Hvítahafi í austri að Biskajaflóa við Spán og Frakk-
land og á vestanverðu Atlantshafi frá Labrador suður til
Norður-Karólínuríkis í Bandaríkjunum.
Í síldinni er mikið af omega-3 fitusýrum sem hafa
jákvæð áhrif á samsetningu blóðfitunnar og hindra
æðakölkun, en þær hafa einnig jákvæð áhrif á storkn-
unareiginleika blóðsins og hindra myndun á blóðtappa.
Í feitum fiski, eins og laxi og síld, fást u.þ.b. 2,4 g af
omega-3 fitusýrum úr 200 g skammti.
Síldin inniheldur líka mikið af prótínum eða 19,3 g í
100 g af fiski. Prótínið í fiski er auðnýtanlegt
og amínósýrurnar eru í heppilegu
hlutfalli fyrir manninn.
Í síldinni er einnig
mikið af A-, D- og
E-vítamínum og steinefnum eins og joði og kalki en
sjávarfiskur er helsti joðgjafinn í fæðinu.
Fyrir utan gagnsemi omega-3 fitusýranna er síld einnig
góður D-vítamíngjafi og ekki veitir af á þessum árstíma.
D-vítamín myndast í húð fólks fyrir tilstilli sólarljóss og
þar sem hér á norðurslóðum skortir töluvert af sólar-
ljósi yfir vetrartímann þurfum við að huga að öðrum
leiðum til að ná í D-vítamín. Þar kemur síldin að góðum
notum enda hafa Íslendingar neytt hennar um langt
skeið. D-vítamínið er helst að finna í feitum fiski eins
og síld, sardínum og túnfiski og hjálpar það verulega til
við kalkbúskap líkamans og uppbyggingu beina.
Heimild: Heimasíða Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins
Síld er holl og góð
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON