Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 82
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| SPORT | 62
12 mörk í 17 leikjum
Mark á 99 mínútna fresti
7. markahæstur við lok móts
Markahæsti leikmaður Helsingborg á tímabilinu
Apríl
0-1 tap fyrir Norrköping
2-1 sigur á Elfsborg
0-0 jafntefl i við Örebro
1-1 jafntefl i við GAIS
2-1 sigur á Atvidaberg
1-1 jafntefl i við Mjällby
Maí
0-0 jafntefl i við AIK
1-0 sigur á Sundsvall
0-3 tap fyrir Malmö
3-2 sigur á Häcken
1-1 jafntefl i við Kalmar
1-1 jafntefl i við Djurgardens
Júlí
4-1 sigur á Gefl e
1-1 jafntefl i við IFK Gautaborg
3-1 sigur á Syrianska
1-2 tap fyrir Norrköping
Ágúst
7-2 sigur á Kalmar
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason var í hörkubaráttu um
markakóngstitilinn í sænsku deildinni í byrjun ágúst
þegar hann söðlaði um og fór yfir til Marco Van Basten
í Hollandi. Nú þremur mánuðum síðar er Alfreð aftur í
baráttu um markakóngstitil og nú í hollensku deildinni.
Alfreð tryggði Heerenveen jafntefli á móti VVV-
Venlo um síðustu helgi og náði þá því magnaða afreki að
eiga tvö tíu marka tímabil á sama árinu.
Alfreð fór reyndar rólega af stað með Helsingborg í
Svíþjóð eftir að hafa verið lánaður þangað frá belgíska
félaginu Lokeren. Í maímánuði fór Alfreð hins vegar að
raða inn mörkum og eftir að hafa skorað tvö mörk í sigri
á Kalmar var hann búinn að skora 9 mörk í 8 leikjum.
Alfreð hafði verið í láni hjá sænska liðinu en 16.
ágúst seldi Lokeren hann til Heerenveen þar sem hann
skrifaði undir þriggja ára samning. Ekki skemmdi
þar fyrir að Alfreð hitti þar fyrir Marco van
Basten, sem er af mörgum talinn vera einn allra
fremsti framherji allra tíma.
Van Basten setti Alfreð inn í byrjunarliðið í
fyrsta leik og þar hefur hann verið síðan. Alfreð
skoraði ekki í fyrsta leik, markalausu jafntefli
við AZ Alkmaar, en skoraði hins vegar tvö mörk
á stóra sviðinu þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við
Ajax. Alfreð skoraði síðan í fimm leikjum í röð frá 29.
september til 4. nóvember og hefur nú alls skorað 10
mörk í fyrstu 12 deildarleikjum sínum með Heerenveen.
Alfreð skoraði auk þess fernu í bikarsigri á Kozakken
Boys í lok september og er alls kominn með 30 mörk í
43 leikjum fyrir Lokeren, Helsingborg, Heerenveen og
íslenska landsliðið á árinu 2012.
Alfreð fær ekki bæði tímabilin hjá Helsingborg
og Heerenveen tekin gild í keppninni um Gullskó
Evrópu heldur aðeins annað þeirra en annars
væri staðan eins og sjá má hér til hliðar. Alfreð
fær eitt stig fyrir öll mörkin sín í Svíþjóð en 1,5
stig fyrir hvert mark í Hollandi. Leikmenn í
bestu deildunum eins og í Englandi og Spáni fá
síðan tvö stig fyrir hvert mark.
Nú eru enn eftir fimm leikir á árinu og
hver veit því hver lokatalan verður á einu
mesta markaári íslensks leikmanns
fyrr og síðar. ooj@frettabladid.is
Tvö tíu marka tímabil á sama árinu
Alfreð Finnbogason hefur raðað inn mörkum á árinu 2012 og hefur náð klassísku takmarki markaskorarans á tveimur stöðum– með
Helsingborg í Svíþjóð og Heerenveen í Hollandi. Fréttablaðið skoðar í dag frammistöðu þessa sjóðheita markaskorara úr Kópavoginum.
10 mörk í 12 leikjum
Mark á 107 mínútna fresti
2. markahæstur eft ir 14 umferðir
Markahæsti leikmaður Heerenveen á tímabilinu
Ágúst
0-0 jafntefl i við AZ Alkmmar
September
2-2 jafntefl i við Ajax
1-3 tap fyrir Den Haag
0-1 tap fyrir Twente
2-0 sigur á Breda
Október
3-3 jafntefl i við Vitesse
3-0 sigur á Groningen
3-6 tap á móti Heracles Almelo
Nóvember
2-1 sigur á Zwolle
1-5 tap fyrir PSV
0-2 tap fyrir Waalwijk
1-1 jafntefl i við VVV-Venlo
➜ Með Helsingborgs IF í Svíþjóð ➜ Með SC Heerenveen í Hollandi
Mark Stoðsending
Staðan í baráttunni um
Gullskó Evrópu
1. Lionel Messi, Barcelona 19 mörk - 38 stig
2. Arturas Rimkevicius, Siauliai (Litháen) 35 mörk - 35 stig
3. Alfreð Finnbogason, Helsingborg/Heerenveen
22 mörk - 27 stig
4. Henrikh Mkhitaryan, Shakhtar Donetsk (Úkraínu)
17 mörk - 25,5 stig
4. Philipp Hosiner, Austria Wien (Austurríki)
17 mörk - 25,5 stig
6. Cristiano Ronaldo, Real Madrid (Spáni) 12 mörk - 24 stig
6. Zlatan Ibrahimovic, Paris Saint-Germain (Frakklandi)
12 mörk - 24 stig
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.
HANDBOLTI Íslenska kvenna-
landsliðið er á leiðinni til Serbíu
þar sem Evrópumeistaramótið
hefst í næstu viku. Fyrsti mót-
herji íslenska landsliðsins er lið
Svartfjallalands en þar er á ferð-
inni silfurliðið frá Ólympíuleikun-
um í London.
Dragan Adzic er þjálfari Svart-
fjallalands og hefur verið það á
síðustu fjórum stórmótum þar
sem lið hans hefur gert frábæra
hluti. Svartfjallaland varð í 6. sæti
á EM 2010 og í 10. sæti á HM 2011
og tók síðan silfrið á sínu fyrstu
Ólympíuleikum frá upphafi.
Adzic þarf hins vegar að glíma
við það núna að þrír af þekkt-
ustu leikmönnum liðsins verða
ekki með á mótinu í Serbíu. Stór-
stjarnan Bojana Popovic hætti
eftir Ólympíuleikana sem og Maja
Savic og þá vill Ana Radovic ekki
spila undir hans stjórn. Adzic
ætlar sér greinilega að passa upp
á það að enginn viti of mikið um
hið nýja lið sitt fyrr en í umrædd-
um fyrsta leik gegn Íslandi.
Hann er eini þjálfarinn á EM
í Serbíu sem lætur lið sitt ekki
spila æfingaleiki fyrir keppnina.
Hann hafði sama háttinn á fyrir
Ólympíuleikana í London þar sem
liðið fór alla leið í úrslitaleikinn
og er kannski búinn að koma á fót
hjátrú innan liðsins. Þetta gerir
það að verkum að enginn verð-
ur búinn að sjá liðið spila þegar
leikur Íslands og Svartfjallalands
hefst í Vrsac þriðjudaginn 4. des-
ember.
„Okkur var boðið á æfingamót
í Úkraínu en ég taldi það miklu
betra fyrir okkur að gefa stelp-
unum nokkurra daga hvíld. Við
fengum ekki fleiri tilboð um leiki
og því ákvað ég bara að hópurinn
myndi einbeita sér að æfingunum
í Podgorica,“ sagði Dragan Adzic í
viðtali við heimasíðu EM og hann
óttast ekki að sínar stelpur mæti
ryðgaðar til leiks.
„Það er mín trú að með mikilli
og góðri vinnu munum við vega
það upp að spila enga æfingaleiki.
Ég tel að við verðum tilbúin í slag-
inn á EM því að í liðinu er mikil
ástríða og gott andrúmsloft sem er
það mikilvægasta af öllu.“
Íslensku stelpurnar eru ekki
alveg ókunnugar stelpunum frá
Svartfjallalandi enda hafa liðin
mæst á báðum stórmótum íslenska
liðsins til þessa. Svartfjallaland
vann 26-23 á EM í Danmörku 2010
og íslensku stelpurnar unnu svo
frábæran 22-21 sigur á HM í Brasi-
líu í fyrra. - óój
Með liðið sitt í felum
Fyrsti mótherji íslenska landsliðsins á EM í Serbíu
fer sérstaka leið í undirbúningi sínum fyrir mótið.
SILFUR Í LONDON Lið Svartfjallalands stóð sig frábærlega á ÓL í London og þá líkt
og nú spilaði liðið enga æfingaleiki fyrir mótið. MYND/AFP