Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 49
KYNNING − AUGLÝSING Námskeið í jólapakkann29. NÓVEMBER 2012 FIMMTUDAGUR 3
Vínskólinn býður upp á gjafabréf á hin ýmsu vín-smökkunarnámskeið sem
eru tilvalin jólagjöf. Námskeiðin
eru fyrir alla þá sem hafa áhuga
á að fræðast um vín og vínmenn-
ingu. „Flest námskeiðin eru al-
menns eðlis og reynt er að halda
þeim á aðgengilegum nótum,“
segir Dominique Plédel Jónsson,
vínsérfræðingur hjá Vínskólanum.
„Fróðleikur, fagmennska, aðgengi
og leiðsögn um vínheiminn eru
kjörorðin hjá okkur. Námskeiðin
eru fyrir alla, almenning, fagfólk
og starfsmannafélög. Það hefur
verið mikið að gera hjá okkur þessi
síðastliðnu sjö ár sem ég hef verið
að kenna í Vínskólanum.“
Dominique segir vinsælustu
námskeiðin vera tvö, byrjenda-
námskeið sem kallast Listin að
smakka og annað sem kallað er
Matur og vín. „Listin að smakka er
grunnnámskeið um hvernig best
er að nálgast vínin og námskeið-
ið Matur og vín fjallar um það
hvernig para á saman mat og vín.
Ég mæli með þessum námskeið-
um í jólapakkann en þau eru frek-
ar ódýr, kosta þrjú þúsund krónur
fyrir manninn.“
Vínskólinn býður einnig upp á
námskeið í samstarfi við Ostabúð-
ina þar sem samsetning matar og
víns verður í fyrirrúmi. „Það verð-
ur alltaf aðalmarkmiðið þegar
maður kaupir eina flösku af víni
að hafa mat með, hvort sem það
er snarl, ostabakki eða heil mál-
tíð. Við bjóðum upp á námskeið
í Ostabúðinni þar sem eitthvað
ákveðið þema í matargerð er tekið
fyrir og vín valið með matnum. Á
þessum námskeiðum er boðið
upp á þrjá smárétti, einn aðalrétt
og fjórar til fimm tegundir af víni,“
segir Dominique.
Hún hefur sjálf mikla reynslu
úr þessum bransa en hún hefur
kennt vínfræði hér á landi und-
anfarin tíu ár. Auk þess hefur hún
verið vínrýnir fyrir tímaritið Gest-
gjafann. „ Ég er frönsk að uppruna
og hef ferðast um vínslóðir um
allt Frakkland. Þar hef ég smátt
og smátt viðað að mér þekkingu
og hafa vín og vínmenning verið
mín aðaláhugamál öll mín full-
orðinsár. Það eru í raun forréttindi
að geta unnið við áhugamálið sitt.“
Nánari upplýsingar um nám-
skeið Vínskólans má finna á
heimasíðu hans, Vinskolinn.is.
Vinsæl gjöf fyrir
vínáhugamanninn
Gjafabréf á vínsmökkunarnámskeið hjá Vínskólanum er spennandi gjöf fyrir
alla sælkera. Það hefur verið vinsæl jólagjöf undanfarin ár.
Dominique Plédel Jónsson,
vínsérfræðingur hjá Vínskól-
anum, mælir með gjafabréfi á
vínnámskeið í jólagjöf.
Dansinn er bráðhollur fyrir fólk á öllum aldri,“ segir Edgar Konráð Gapunay,
skólastjóri Dansskóla Sigurðar Há-
konarsonar. Dansskólinn býður
upp á mikið úrval dansnámskeiða
fyrir fólk á öllum aldri og segir
Edgar gjafabréf frá skólanum vera
mjög vinsæla jólagjöf en bæði er
hægt að gefa inneign á námskeið
eða heil námskeið í jólagjöf. „Við
erum með margs konar námskeið
fyrir unga sem aldna. Það má til
dæmis nefna Zumba sem er það
heitasta og nýjasta í boði í dansi á
Íslandi í dag. Zumba er fín hreyfing
og rosalega skemmtileg fyrir fólk á
öllum aldri enda blanda af dansi og
leikfimi. Einnig bjóðum við upp á
margs konar dansnámskeið fyrir
fullorðna, allt frá einstaklingstím-
um í gömlu góðu samkvæmisdans-
ana.“ Dansskólinn býður einnig
upp á mikið úrval námskeiða fyrir
börn og unglinga, til dæmis breik-
dans og samkvæmisdansa.
Edgar segir öll námskeið skól-
ans vera skemmtileg enda sé dans
í eðli sínu mjög skemmtilegur.
„Dansinn er bæði bráðhollur og
fjörugur. Það er algengt að börn
slái saman í gjafakort fyrir for-
eldra sína og síðan hafa karlmenn
mikið gefið kærustum sínum gjafa-
kort sem hefur heldur betur sleg-
ið í gegn hjá stúlkunum. Þannig er
auðvelt að vinna sér inn gott prik
hjá frúnni. Síðan er líka vinsælt að
gefa nokkra staka tíma sem henta
vel fyrir upprifjun bæði fyrir ein-
staklinga og pör.“
Edgar bendir einnig á að dans
sé eitthvað það heilbrigðasta sem
fólk getur stundað, til dæmis fyrir
þá sem eru hjartveikir. Dansinn sé
alhliða hreyfing sem reynir ekki
síður á heilabúið en vöðvana. „Það
má líka nefna að gamli góði sam-
kvæmisdansinn er alltaf klassísk-
ur og breytist aldrei. Fólk vill að
samkvæmisdansinn sé tiltölulega
óbreyttur og hægt sé að ganga að
honum vísum.“
Dansskóli Sigurðar er einn elsti
dansskóli landsins. „Við héldum
upp á 30 ára afmæli okkar fyrir
ekki löngu síðan. Sigurður stofnaði
og rak skólann lengi vel. Við erum
með öll námskeið okkar í húsnæði
skólans við Auðbrekku 17 í Kópa-
vogi. Síðan kennum við í mörg-
um grunnskólum í Kópavogi og í
Garðabæ en þá komum við inn í
dægradvölina og erum hluti af
starfi grunnskólanna þar sem við
kennum ungum krökkum dans.“
Dans er góð hreyfing
Fjölmörg spennandi og skemmtileg námskeið eru í boði í vetur hjá Dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar. Gjafabréf á dansnámskeið er tilvalin jólagjöf.
Fjölmörg námskeið eru í boði fyrir börn og fullorðna hjá Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar. MYND/ÚR EINKASAFNI
Á Íslandi er hverju sinni gnótt áhugaverðra námskeiða í boði og erfitt
að fylgjast með hvar og hvenær námskeið við hæfi eru haldin.
Þá kemur vefsíðan Namskeid.is til bjargar því þar er að finna
flestöll námskeið sem í boði eru á hverjum tíma. Námskeið
eru af öllum toga, til að mynda saumanámskeið, dansnám-
skeið, jóganámskeið, nuddnámskeið, hestanámskeið, öku-
námskeið, matreiðslunámskeið, listanámskeið og fleira og
fleira.
Flestir kannast við að sjá eða heyra auglýsingu um námskeið
sem heillar en gleyma síðan uppruna hennar og vita ekki
hvar á að leita. Á Namskeid.is eru námskeið flokkuð á að-
gengilegan máta og því leikur einn að leita að draumanám-
skeiðinu.
Skráning á namskeid.is er ókeypis. Með því að ger-
ast meðlimur geta námskeiðshaldarar skráð
ótakmarkaðan fjölda námskeiða inn á síð-
una og með því komist nær þeim sem
leita sér að námskeiði hverju sinni.
Á vefsíðunni er einnig ýmis
önnur þjónustua, eins og
upplýsingar um styrki og
niðurgreiðslur sveitar- og
stéttarfélaga.
Sjá nánar á www.
namskeid.is.
Öll námskeið aðgengileg
og flokkuð á einum stað
Hestamennska er heillandi sport en krefst kunnáttu sem öðlast má á reiðnámskeiði.
MYND/GVA
MATREIÐS
LUN
ÁM
SK
EI
Ð
.IS M
M
AT
RE
IÐ
SL
UN
ÁM
SK
EIÐ.
IS
M
MATREIÐSLUNÁMSKEIÐ.IS
ALLSKONAR MATREIÐSLUNÁMSKEIÐ
matreidslunamskeid@matreidslunamskeid.is
Matreiðslunámskeið.is
Fjöldi spennandi
nám
nýju ári!
Indverskt
Ítalskt
Thailenskt
Grænmeti
Sushi
Kransakökur
Páskaegg
Sumarnámsk