Fréttablaðið - 29.11.2012, Qupperneq 6
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
SAMSKIPTI Alaska getur lært margt
af Íslandi, enda svipar aðstæðum
hér á landi að mörgu leyti til þess
sem gerist í Alaska. Þrjátíu manna
sendinefnd frá þessu stærsta, en
um leið fámennasta, ríki Banda-
ríkjanna er stödd hér á landi á
vegum sjálfseignarstofnunarinnar
Institute of the North til að kynna
sér ýmis málefni, allt frá orkumál-
um til efnahagsmála og viðskipta.
Hugh Short, formaður iðnaðar-
og útflutningsráðs Alaska, er á
meðal þeirra sem eru í föruneyt-
inu, en þar má meðal annars finna
fræðimenn, fjárfesta og þingmenn
frá ríkisþingi Alaska. Þeir hafa
gert víðreist hér á landi og heim-
sótt ráðuneyti, fyrirtæki og stofn-
anir. Meðal annars fóru þeir að
Kárahnjúkavirkjun og hittu orku-
málastjóra á fundi í gær.
„Aðalmarkmiðið með komu
okkar er að mynda tengsl við aðila
hér á Íslandi. Þessi tvö svæði eiga
margt sameiginlegt þar sem við
búum til dæmis bæði við land-
fræðilega einangrun og strjálbýli
og glímum þess vegna við margs
konar álíka áskoranir,“ segir
Short.
Short segir að helstu áherslumál
Alaskabúa um þessar mundir séu
málefni Norðurslóða, bráðnun haf-
íss og opnun siglingaleiða. Þar séu
Ísland og Alaska í lykilstöðu hvað
varðar landfræðilega stöðu og geti
í krafti þess skipst á hugmyndum
og fjárfestingum.
Spurður hvað Ísland hafi helst
að bjóða segir Short að það sé á
sviði orkumála.
„Við í Alaska erum of háð jarð-
efnaeldsneyti eins og dísilolíu,
sem er afar óstöðug í verði. Því er
það mikilvægasta sem við getum
lært af Íslandi á sviði orkumála og
hvernig við getum nýtt þá tækni
sem þið Íslendingar hafið þróað til
að beisla vatnsafl og jarðvarma.
Þið eruð í fremstu röð á heimsvísu
hvað varðar tækni til jarðvarma-
nýtingar, en hafið líka nýtt ykkur
vatnsaflsorku til að laða að iðnað
og skapa störf, auk þess að lækka
raforkukostnað til heimila.“
Short bætir því við að í Alaska
og víðar í Bandaríkjunum séu
fjölmargir fjárfestar sem horfa
áhugasamir til margvíslegra verk-
efna hér á landi.
„Þessi heimsókn gæti því verið
fyrsta skrefið í löngu og farsælu
samstarfi milli Íslands og Alaska,“
segir Hugh Short.
thorgils@frettabladid.is
Við í
Alaska erum
of háð jarð-
efnaeldsneyti
eins og
dísilolíu sem
er afar
óstöðug í verði.
Hugh Short, formaður iðnaðar- og
útflutningsráðs Alaska.
ÍslandAlaska
Allt frá fjöru til fjalla
lÍs en kus
Faxafeni 8 // 108 Reykjavík // Sími 534 2727 // www.alparnir.is
Frá kr. 169.900
Kr. 169.900
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Roque Nublo í 27 nætur. Sértilboð 2. – 29. janúar.
Janúarferð
fyrir eldri borgara til Kanarí
2. janúar í 27 nætur
Heimsferðir bjóða einstakt tilboð í ferð fyrir eldri borgara í janúar til Kanaríeyja.
Við bjóðum fjölbreytt úrval gististaða. Janúar er svo sannarlega frábær tími á
þessum einstaka áfangastað. Mikil dagskrá í boði í fylgd reyndra fararstjóra.
Hlýnun setur Alaska
og Ísland í lykilstöðu
Fjölmenn sendinefnd frá Alaska-ríki er stödd hér á landi til að kynna sér margs
konar málefni, enda sé margt sameiginlegt með svæðunum. Telja sig geta lært
mikið af Íslendingum, sérstaklega í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.
1. Hvað eru mörg dýr í íslenska
geitastofninum?
2. Hvað heitir ný plata
hljómsveitarinnar Hjaltalín?
3. Hver er rektor Háskólans í Reykjavík?
SVÖR
Á svipuðum slóðum
Ísland og Alaska liggja
álíka norðarlega og
kljást því við svipaðar
áskoranir, en búa líka
við marga sömu kostina.
Íbúafj öldi
723
þúsund - 0,5 íbúar/km²
Íbúafj öldi
320
þúsund -
3,1 íbúi/km²
MANNRÉTTINDI Palestínski mann-
réttindafrömuðurinn dr. Mustafa
Barghouthi heldur erindi á
opnum fundi Alþjóðamálastofn-
unar Háskóla Íslands, Félagsins
Íslands-Palestínu og utanríkis-
ráðuneytisins í dag.
Heimsókn dr. Barghouthis er í
tilefni þess að eitt ár er liðið síðan
Alþingi viðurkenndi ríki Palestínu,
fyrst vestrænna ríkja, en búast má
við að hann ræði meðal annars um
framtíð Palestínu og stöðu Palest-
ínu gagnvart Sameinuðu þjóðun-
um.
Sveinn Rúnar
Hauksson, for-
maður félags-
ins Ísland-Pal-
estína, segir
Barghouti einna
fremstan meðal
jafningja í for-
ystuhópi Pal-
estínu en hann
standi þó utan
við deilurnar
sem geisa milli Hamas á Gasa-
ströndinni og Fatah-hreyfingar-
innar á Vesturbakkanum.
„Hann hefur verið gagnrýn-
inn á hreyfingarnar tvær og
unnið ötullega að því að ná sátt-
um þeirra á milli,“ segir Sveinn
Rúnar og bætir við að núverandi
staða komi í veg fyrir framþróun,
til dæmis að kosningar geti farið
fram í Palestínu.
Fundurinn fer fram í hátíða-
sal HÍ og hefst klukkan 17, en
klukkan 20 í kvöld heldur Félagið
Ísland-Palestína afmælis- og
samstöðuhátíð á Hótel Borg í til-
efni af 25 ára afmæli félagsins.
- þj
Mannréttindafrömuðurinn Mustafa Barghouthi heldur erindi í dag:
Hefur unnið ötullega að sáttum
MUSTAFA
BARGHOUTHI
EFNAHAGSMÁL Vísitala neysluverðs
hækkaði um 0,32% í nóvember.
Tólf mánaða verðbólga hækkaði
þar með úr 4,2% í 4,5%. Opin-
berar spár höfðu gert ráð fyrir allt
frá óbreyttri vísitölu til 0,3 pró-
sentustiga hækkun. Hækkunina
á verðbólgu má einna helst rekja
til hækkana á verði matvöru og á
verði flugfargjalda. Samkvæmt
nýjustu spá Seðlabankans verður
verðbólga 4,4% að meðaltali á
fjórða ársfjórðungi ársins en fer
lækkandi eftir áramót. - mþl
Vísitala neysluverðs:
Verðbólga
hækkaði í 4,5%
SKIPULAGSMÁL Nýr eigandi Lýsis-
lóðarinnar svokölluðu að Granda-
vegi 44 vill byggja þar 99 íbúða
fjölbýlishús. Fyrirspurn um
málið hefur verið send til borg-
aryfirvalda.
Fyrirtækið Þingvangur keypti
lóðina fyrir skemmstu af Land-
ey hf., dótturfélagi Arion banka.
Þingvangur vill byggja níu hæða
fjölbýlishús við sjóinn, þar sem
níunda hæðin yrði inndregin.
Lýsishúsið var rifið fyrir sex
árum og hefur lóðin verið auð
síðan þá. Samkvæmt núgildandi
deiliskipulagi má byggja allt
að hundrað íbúða fjölbýlishús á
framanverðri lóðinni, sem snýr
að sjónum. Húsið má samkvæmt
skipulaginu vera sjö til tíu hæða
hátt.
Í hinum enda lóðarinnar gerir
skipulag ráð fyrir hjúkrunar-
heimili sem Reykjavíkurborg
og Seltjarnarnesbær ætluðu að
byggja fyrir hrun. Seltjarnar-
nesbær dró sig út úr þeim áætl-
unum fyrir nokkrum árum og
samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg eru engin
áform uppi um byggingu hjúkr-
unarheimilis á lóðinni sem stend-
ur. - þeb
Nýr eigandi Lýsislóðarinnar hefur spurst fyrir hjá borginni:
Vilja 99 íbúða hús á Grandaveg
LÝSISLÓÐIN Þegar höfuðstöðvar Lýsis voru rifnar árið 2006 stóð til að byggja þar
fjölbýlishús og hjúkrunarheimili. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Meðalhiti stærstu borga á ári: Anchorage: 2,2° | Reykjavík: 5,4°
1. Um 800 dýr. 2. Enter 4.
3. Ari Kristinn Jónsson.
VEISTU SVARIÐ?