Fréttablaðið - 29.11.2012, Síða 8
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Fjórði hver Íslendingur hefur próf-
að hass eða marijúana. Um það bil
tíundi hver hefur gert svo síðasta
hálfa árið. Kannabisneysla hefur
aukist töluvert á síðustu tíu árum,
samkvæmt rannsóknum Helga
Gunnlaugssonar, afbrotafræðings
og prófessors í félagsfræði við
Háskóla Íslands (HÍ), sem hefur
þrisvar mælt hass- og marijúana-
notkun fullorðinna Íslendinga á
aldrinum 18 til 74 ára í samvinnu
við Félagsvísindastofnun HÍ. Fyrsta
rannsóknin var gerð árið 1997, svo
2002 og nú síðast 2012.
„Við mælum neyslu barna mun
oftar en fullorðinna og vitum því
lítið hvernig neysla ungmenna
þróast fram á fullorðinsár,“ segir
Helgi. Hann segir rannsóknir á
vímuefnanotkun fullorðinna vanta
til að fylgja neysluferli ungmenna
eftir.
Neysla eykst meðal fullorðinna
Kannabisneysla fullorðinna Íslend-
inga jókst lítillega á tímabilinu 1997
til 2002, en talsvert á milli síðustu
tíu ára. Þá jókst hlutfall fólks á ald-
ursbilinu 18 til 74 ára sem hefur
prófað gras eða hass töluvert á
milli áranna, úr innan við 20 pró-
sent í 25 prósent. Mest er þó hækk-
unin meðal þeirra sem höfðu reykt
kannabis á síðustu sex mánuðum.
Alls höfðu á bilinu 2 til 3 prósent
neytt kannabiss síðasta hálfa árið
árin 1997 og 2002 en það hlutfall
þrefaldaðist á þessu ári og fór upp
í níu prósent.
Þetta er athyglisvert í ljósi nýj-
ustu niðurstöðu samevrópsku rann-
sóknarinnar European School Sur-
vey Project on Alcohol and Other
Drugs (ESPAD) sem sýnir að vímu-
efnaneysla unglinga sé langminnst
á Íslandi miðað við önnur Evrópu-
lönd. Um fjörutíu prósent íslenskra
unglinga í tíunda bekk hafa aldrei
prófað áfengi, sígarettur, ólögleg
fíkniefni eða aðra vímugjafa.
Nær til allra fíkniefnaneytenda
Kannabis er langalgengasta fíkni-
efnið og því er engin tilviljun að
könnunin nær einungis til þess.
Samkvæmt rannsóknum á fíkni-
efnaneyslu fólks, bæði hér á landi
og erlendis, kemur það nánast
aldrei fyrir að viðkomandi ein-
staklingur hafi aldrei neytt kanna-
bisefna en sé samt virkur notandi
annarra ólöglegra fíkniefna. Með
öðrum orðum; ef manneskja hefur
ekki prófað kannabis eru allar líkur
á því að hún hafi látið önnur ólög-
leg efni í friði. Helgi bendir á að því
megi segja að um 90 prósent Íslend-
inga noti ekki ólögleg fíkniefni.
Flestir vaxa upp úr reykingum
Gras- og hassreykingar fólks eru
oftast bundnar við ákveðið afmark-
að tímabil og langflestir virðast
vaxa upp úr þeim þegar þeir eld-
ast. Það sést mest á aldursskiptingu
neytendahópsins, en notkunin er
mun meiri hjá yngri aldursflokkn-
um, 18 til 40 ára. Kannabisreyking-
ar hjá fólki yfir fimmtugu eru afar
sjaldgæfar.
„Hlutfall þeirra sem hafa notað
kannabis síðasta hálfa árið er klár-
lega á milli 20 og 30 prósent meðal
yngri hópsins,“ segir Helgi. „En það
er einungis lítill hluti sem heldur
áfram að reykja fram á fullorðins-
ár. Flestir vilja bara prófa og nota
þetta í félagslegum tilgangi.“
Mjög margt bendi til þess að
menn vaxi upp úr neyslunni eftir
því sem samfélagslegar skyldur
hlaðast upp. Í alþjóðlegu samhengi
hefur kannabisneysla Íslendinga
alltaf verið lítil og vel undir meðal-
lagi.
ASKÝRING | 8
KANNABISNEYSLA FULLORÐINNA ÍSLENDINGA
Tískustraumar og breytt viðhorf
Aukninguna í kannabisneyslu meðal fullorðinna Íslendinga segir Helgi
mega skýra af fernu:
1. Heimaræktun
Aðgengi er orðið meira, eins og sést á þeirri miklu fjölgun kannabis-
ræktana sem upprættar eru nánast í viku hverri af lögreglu á landinu öllu.
Framleiðsla á kannabisplöntum hefur aukist mikið á síðustu árum og hið
mikla framboð á vörunni virðist einnig hafa haldið verðlagi á henni niðri.
Götuverð á marijúana hefur til að mynda ekki hækkað að sama skapi og
verð á áfengi.
2. Breyttu viðhorfi
„Þetta er ekki eins mikið feimnismál og það virðist hafa verið,“ segir
Helgi. „Menn þora kannski meira að viðurkenna þetta núna, þetta var
meira frávik áður.“
3. Hærra áfengisverði
Áfengi á Íslandi hefur hækkað mikið í verði á síðustu árum og því gæti
verið ein útskýring á aukinni kannabisneyslu að neyslan færist til, þar sem
verð á grasi og hassi hefur haldist stöðugt.
4. Tískustraumum
Samkvæmt rannsóknum Helga eru kannabisreykingar afar bundnar
ákveðnu aldursskeiði, vissum tíðaranda, tónlist, fötum og öðru slíku.
„Íslendingar eru nýjungagjarnir og forvitnir. Sú tilhneiging að vilja prófa
eitthvað nýtt er algeng hér á landi, en það eru alltaf færri sem eru reglu-
legir neytendur,“ segir Helgi. „Ýmislegt bendir til þess að kannabis sé í
tísku núna í ákveðnum hópum. En langoftast varir þessi tilraunamennska í
nokkur ár, svo vaxa flestir upp úr þessu þegar þeir fullorðnast.“
4.
hver Íslendingur hefur reykt
hass eða marijúana.
10.
hver Íslendingur hefur reykt
hass eða marijúana síðasta
hálfa árið.
1.300
Íslendingar á aldrinum 18–
74 ára svöruðu könnuninni
árið 2012.
1997
2002
2012
Danmörk Noregur
Svíþjóð Ísland
* Fíkniefnaneysla í samfé-
laginu er bundin við þessi
10%, hún nær því ekki til
þjóðarinnar.
HAFA PRÓFAÐ KANNABIS
30-
33%
10%
10%
25%
Um
20 - 30%
fólks á aldrinum
18 - 40 ára
hafa reykt kannabis síðasta
hálfa árið.
Íslendingar reykja
meira gras en áður
Kannabisneysla Íslendinga yfir átján ára hefur aukist talsvert síðasta áratuginn en
neysla unglinga dregst saman. Neyslan tengist tískustraumum, breyttu viðhorfi og
auknu framboði. Rannsóknum ábótavant, segir afbrotafræðingur.
prófuðu
kannabis.
prófuðu
kannabis.
prófuðu
kannabis.
reyktu kannabis á
síðustu 6 mánuðum.
reyktu kannabis á
síðustu 6 mánuðum.
reyktu kannabis á
síðustu 6 mán. *
2%
3%
10%
18%
20%
25%
Afar óalgengt yfi r
50 ára
90%
Sunna Valgerðardóttir
sunna@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓNAS
Umboðsmenn
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · Hekla Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði