Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 10
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
1. Að mati Bryndísar er nauðsynlegt að meta áhrif þeirra breytinga sem lagðar eru til á stjórnskipan ríkisins. Hún fagnar því að
Feneyjanefnd Evrópuráðsins meti breytingarnar. „Þetta held ég að sé
algjörlega nauðsynlegt því breytingarnar eru nokkuð viðamiklar. Slíkt
mat hefði líka í för með sér að mögulega gæti náðst meiri sátt um
breytingarnar þannig að stjórnarskráin gæti orðið sá samfélagssátt-
máli sem hún þarf að vera til að standa undir nafni.“
2. Bryndís segir tæpast hægt að tína til öll þau lögfræðilegu og pólitísku álitaefni sem fara þurfi yfir í drögunum. „Ég tel hins
vegar mjög mikilvægt að stjórnmálamenn og þingmenn hefji þá
pólitísku umræðu sem nauðsynlegt er að taka um þessar breytingar.“
Bendir hún á að undir séu viðamiklar breytingar á kosningakerfi, vægi
atkvæða og efnislegum atriðum. „Sú umræða er náttúrlega hafin á
Alþingi og þarf að halda áfram.“
3. „Þriðji þátturinn sem mér finnst skipta miklu máli er að reyna að ná sátt um þessar tillögur. Að horfa lausnamiðað á
það hvernig eigi að fara í gegnum þá vinnu sem fram undan er.“
Í mikilli einföldun segir Bryndís að skipta megi fólki upp í tvær
fylkingar í viðhorfi til stjórnarskrárdraganna. Annars vegar séu
þeir sem segja að ekki þurfi að breyta stjórnarskránni og telja
hana ágæta eins og hún er og svo séu hinir sem vilja taka
upp óbreyttar tillögur frá stjórnlagaráði eftir umfjöllun sér-
fræðinganefndarinnar. „Auðvitað eru svo þarna mitt á milli
einhverjir sem hrifnir eru af sumu og ekki öðru. Ég held líka
að ljóst sé orðið að hvorugum hópnum, hvorum á sínum
kanti, verður að ósk sinni. Það er mjög ólíklegt að þessi
stjórnarskrá verði samþykkt óbreytt í þeirri mynd sem
hún er núna, eða að ekkert verði gert með hana. Krafa
kjósenda um breytingar er það skýr.“ Ekki gangi
hins vegar að afgreiða nýja stjórnarskrá í bullandi
ágreiningi jafnt í stóru sem smáu. „Þingið stendur
núna frammi fyrir því að vera með þessi drög og
skilaboð úr þjóðaratkvæðagreiðslunni. Verkefni
þjóðþingsins er að vinna út úr þessu eitthvað
sem getur orðið sá samfélagssáttmáli sem
stjórnarskráin þarf að vera. Þetta held ég að sé
verkefnið fram undan. Stríðandi fylkingar um
þessa stjórnarskrá verða að mætast einhvers
staðar á miðri leið.“
Plaggið ekki traustvekjandi
Fastanefndir Alþingis hafa nú til umfjöllunar frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga. Sú skoðun var viðruð á málþingi sem háskólar landsins
stóðu að um miðjan mánuðinn að verklag stjórnskipunar sem lagt er upp með í drögunum gengi ekki upp. Óli Kristján Ármannsson spurði
þrjá sérfræðinga, hvern á sínu sviði, hvaða atriði þeim væru efst í huga í tengslum við stjórnarskrárdrögin.
STJÓRNARSKRÁIN Fyrir Alþingi liggur að að móta úr tillögum stjórnlagaráðs nýja
stjórnarskrá sem sátt geti orðið um. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÍTT
Í STÆÐI
1.790 þús. kr.
1.990 þús. kr.
Sparnaðarráð
fyrir heimilið
Mánaðargreiðsla*
Spark LS
22.481kr.
Verið velkomin í kaffi og reynsluakstur
1. „Í fyrsta lagi er plaggið sjálft ekki traustvekjandi vegna þess-hvernig það er undirbúið. Rökstuðning vantar með mörgum af
þeim hlutum sem lagðir eru til og samráðsferlið hefur verið með
eindæmum lélegt,“ segir Gunnar Helgi og telur vinnuna ekki stuðla
að samstöðu um nýja stjórnarskrá. „Þvert á móti virðist ferlið ein-
kennast af tilraun til að þagga niður umræðu.“
2. „Í öðru lagi er lagt til í þessu plaggi að breyta hér stjórnarfyrir-komulagi í grundvallaratriðum. Lagt er til að hverfa að einhverri
útgáfu af beinu lýðræði sem hvergi er við lýði í heiminum.“ Með
þessu segir Gunnar Helgi horfið frá fyrirkomulagi í stjórnskipun sem
almennt ríki á Norðurlöndum og lagt upp í óvissuferð. „Þetta birtist
meðal annars í því að tekið er upp mjög róttækt fyrirkomulag á
þjóðaratkvæðagreiðslum sem er án hliðstæðu í nokkru þingræðis-
ríki.“ Fordæmis sé mögulega að leita þar sem ekki er þingræði,
líkt og í Sviss eða einstökum ríkjum Bandaríkjanna. „En vilji
fólk fara út í þá vegferð að finna og prófa sérviskulegasta
stjórnkerfi sem hægt er að finna í heiminum þá væri kannski
æskilegt að rannsaka það betur fyrst.“
3. Þá bendir Gunnar Helgi á að hvergi sé í gögnum um stjórnarskrárdrögin að finna mat á heildaráhrifum plaggs-
ins. „Þarna er að finna gríðarlegan fjölda af tillögum sem
fullkomin óvissa ríkir um hvernig muni virka. Dembt er inn
ákvæðum um þjóðaratkvæðagreiðslu, mjög róttækri útgáfu af
persónukjöri, ekki er leyst úr óvissu um hlutverk forsetans og lagt
til nýtt fyrirkomulag við stjórnarmyndanir og vantraust á þingi.
Hvert þessara atriða um sig er flókið úrlausnarefni, en þegar
þessu er öllu dembt saman í eitt plagg fæst útkoma
sem slíkri óvissu er háð að varla er ásættanlegt.“
Ágúst Þór Árnason,
heimspekingur og deildar-
formaður lagadeildar
Háskólans á Akureyri,
hefur alvarlegar efasemdir
um verklag við gerð nýrrar
stjórnarskrár og telur
útkomuna tæpast geta
orðið til góðs.
Bryndís Hlöðversdóttir,
lögfræðingur og rektor
háskólans á Bifröst, vill
horfa til næstu skrefa og
telur ljóst að stríðandi
fylkingar þurfi að mætast
á miðri leið. „Það er verk-
efni þjóðþingsins að vinna
út úr þessu eitthvað sem
getur orðið sá samfélags-
sáttmáli sem stjórnarskrá
á að vera.“
Gunnar Helgi Kristins-
son, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla
Íslands, segist líta á drög
að nýrri stjórnarskrá
sem óskalista. „Í þessari
ákvarðanatökuaðferð er
engin leið til að hreinsa
út óskir. Allt nær inn í
stjórnarskrána og það er
ekki farsæl aðferð,“ segir
hann.
1. Í fyrsta lagi segir Ágúst ranga nálgun viðhafða við endurskoðun stjórnarskrárinnar. „Í stað
þess að gildandi stjórnarskrá hafi verið látin njóta
vafans er byrjað með hreint borð. Meint tilefni er
fjármálahrunið 2008 en í raun var það þó stjórn-
skipunin sem kom í veg fyrir pólitíska kreppu og
hefur tryggt að Íslendingar hafa tekið skref til að
komast á réttan kjöl,“ segir hann og kveður hafa
verið látið í veðri vaka að alltaf hafi átt að ýta
gildandi stjórnarskrá til hliðar og byrja með hreint
borð. Sú hugmynd standist hins vegar illa skoðun.
2. Þá segir hann drögin fela í sér óljósa fram-tíðarsýn. „Ákvæði um stjórnskipun munu
klárlega ekki virka,“ segir Ágúst. Tillögur um
helstu stofnanir og um þjóðaratkvæða-
greiðslur, ásamt nýjum kafla um mann-
réttindi, séu vanhugsaðar. „Og þegar
loksins er ákveðið að fram fari ein-
hvers konar faglegt mat er það falið
útlendingum. Í stað þess að leitast
sé við að ráða bót á tilteknum
göllum íslenskrar stjórnskipunar er
haldið út í óvissuna.“
3. Vegna þessa kunni þróunin því að vera til hins verra. „Að því
marki sem við sjáum fyrir hver hin nýja
stjórnskipun verður er vandséð að hún
geti verið til góðs. Áhyggjur hljóta
að vakna af veikri stöðu þingsins,
afskræmdu forsetaembætti og
þróun stjórnmálamenn-
ingar. Hugmyndir
stjórnlagaráðs
virðast ýta undir
lýðhyggju,
óskilvirkni og
átakastjórn-
mál,“ segir
Ágúst.