Fréttablaðið - 29.11.2012, Qupperneq 24
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
S
kuldabréfamarkaðurinn komst í uppnám í fyrradag og
lokað var fyrir viðskipti með íbúðabréf Íbúðalánasjóðs í
Kauphöll Íslands. Ástæðan voru ummæli Sigríðar Ingi-
bjargar Ingadóttur, formanns velferðarnefndar Alþingis,
í viðtali við fréttavef Bloomberg, þar sem hún sagði
nauðsynlegt að endursemja um skilmála íbúðabréfanna þannig að
þau væru uppgreiðanleg og afnema ríkisábyrgð á sjóðnum.
Páll Harðarson, forstjóri
Kauphallarinnar, gagnrýndi
Sigríði harðlega fyrir ummælin.
Þau birtust opinberlega þegar
nokkrir klukkutímar voru í
boðaða tilkynningu stjórnvalda
um aðgerðir til að leysa úr
vanda Íbúðalánasjóðs. Út frá
sjónarmiðum um jafnræði aðila
á markaði og jafnan aðgang þeirra að upplýsingum lokaði Kaup-
höllin fyrir viðskipti með íbúðabréfin.
Sigríður Ingibjörg vill þó ekkert kannast við að ummælin
kunni að hafa verið óheppileg. Hún segir að vandi ÍLS verði ekki
minni þótt hann sé ekki ræddur. Áhættan í rekstri sjóðsins sé
öllum kunn, líka þeim sem stunda viðskipti á markaði.
Þetta er út af fyrir sig hvort tveggja rétt. Og enginn getur
bannað þingmönnum að tjá skoðanir sínar. Viðbrögð þingmanns-
ins benda hins vegar til þess að hún skilji ekki eða vilji ekki skilja
þær sérstöku aðstæður sem voru í þessu máli og hvers vegna
tímasetning ummælanna var alveg fráleit.
Eigendur íbúðabréfa, sem eru til dæmis lífeyrissjóðir og
einstaklingar sem hafa fest sparnað sinn í skuldabréfasjóðum,
þekkja auðvitað vel áhættuna í rekstri ÍLS. Þeim var hins vegar
ekki kunnugt hvernig ríkisstjórnin hygðist bregðast við vand-
anum. Fjárfestar biðu með talsverðri eftirvæntingu eftir boðaðri
tilkynningu um viðbrögð stjórnvalda klukkan tvö í fyrradag.
Þegar formaður velferðarnefndar Alþingis, sem fer með málefni
sjóðsins og menn skyldu ætla að væri inni í málinu, tilgreinir í
alþjóðlegum fjölmiðli hvaða leiðir eigi að fara, er skiljanlegt að
mönnum bregði í brún og telji að þetta hljóti að vera inntakið í
tilkynningunni. Sem það var svo reyndar alls ekki.
Þegar svo bætist við að báðar tillögur Sigríðar Ingibjargar fela
í sér að breyta reglunum eftir á (eins og er að verða eitt helzta
einkenni þessarar ríkisstjórnar í augum fjárfesta), flytja vanda
ÍLS yfir á fjárfesta og gera íbúðabréfin mun síðri fjárfestingar-
kost, er ekkert skrýtið að uppnám hafi orðið á markaðnum.
Þingmenn eru vanir að geta gasprað um hin og þessi mál án
þess að þeir séu nokkurn tímann kallaðir til ábyrgðar. Stundum
vill hins vegar svo til að þeir eru í þannig stöðu, að gasprið hefur
afleiðingar. Þetta er svoleiðis mál.
Nú gerir ekki nokkur maður ráð fyrir að íslenzkur stjórnmála-
maður viðurkenni mistök samdægurs. Það hefur að minnsta kosti
ekki gerzt svo menn muni. Einhvern tímann fljótlega væri samt
sniðugt að nefndarformaðurinn viðurkenndi að henni hafi orðið á
í messunni, ekki sízt svo aðrir geti lært af því.
Páll Harðarson boðar að Kauphöllin fari yfir það með stjórn-
málamönnum að þeir gæti orða sinna þegar þeir fjalla um skráð
verðbréf. Það virðist engin vanþörf á því námskeiði.
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
Þingmaður setur skuldabréfamarkaðinn í uppnám:
Gaspur hefur
afleiðingar
ÍBÚÐALÁNA-
SJÓÐUR
Sigríður
Ingibjörg
Ingadóttir
þingkona Sam-
fylkingarinnar
Síðastliðinn þriðjudag varð nokkurt upp-
nám „á markaði“ vegna ummæla minna
um Íbúðalánasjóð. Eitthvað fór tímasetn-
ingin fyrir brjóstið á stressuðum við-
skipavinum kauphallarinnar, þó innihald
þess sem ég sagði gæfi vart tilefni til upp-
hlaupa og æsings. Ég sagði ekkert annað
en það sem allir „markaðsaðilar“ vita.
Íbúðalánasjóður á í miklum vanda og á
honum þarf að taka til skamms tíma og
til frambúðar. Í ljósi sögunnar þarf þetta
upphlaup þó vart að koma á óvart. Sumir
viðskiptavinir kauphallarinnar virðast
alltaf jafn hissa þegar bent er á augljósa
hluti.
Haustið 2010 þurfti ríkissjóður að
leggja Íbúðalánasjóði til 33 milljarða
króna. Ég samþykkti það framlag á
Alþingi en gerði að skilyrði að fram færi
rannsókn á Íbúðalánasjóði. Niðurstaða
þeirrar rannsóknar er væntanleg innan
tíðar.
Undanfarna mánuði hefur farið fram á
vegum fjármálaráðherra úttekt á stöðu
Íbúðalánasjóðs og nauðsynlegra aðgerða
til að lágmarka tjón ríkissjóðs og þar
með almennings á Íslandi. IFS greining
vann skýrslu fyrir ráðherra og þar segir
m.a.: „Með kerfisbreytingu sjóðsins hinn
1. júlí 2004 og tilheyrandi skiptiútboði
var lagður grunnur að þeim vanda sem
sjóðurinn hefur átt við að glíma á síðustu
misserum. Frá þeim tíma hefur sjóður-
inn verið með opna vaxtaáhættu/upp-
greiðsluáhættu sem lýsir sér í að skuld-
ir sjóðsins eru óuppgreiðanlegar meðan
útlán sjóðsins eru það ekki. Þessi áhætta
er stærsta áhætta sjóðsins að mati IFS.“
Mér og „markaðnum“ hefur lengi verið
þessi áhætta ljós og lýsti ég þeirri skoð-
un minni á þriðjudaginn að grípa yrði til
aðgerða.
Ríkisstjórnin ákvað sl. þriðjudag að
óska eftir því við Alþingi að stofnfé
Íbúða lánasjóðs yrði aukið um 13 millj-
arða króna á fjárlögum 2013. Þá má búast
við frekari framlögum á næstu árum til
sjóðsins og allt stefnir í að kostnaður rík-
isins vegna hans verði a.m.k. 50 milljarð-
ar þegar upp er staðið. Fyrir þá peninga
væri hægt að reisa nýjan Landspítala.
Alþingsmenn hafa tjáð sig af minna til-
efni!
➜ Ég sagði ekkert annað en það
sem allir „markaðsaðilar“ vita.
Íbúðalánasjóður á í miklum vanda
og á honum þarf að taka til skamms
tíma og til frambúðar. Í ljósi sög-
unnar þarf þetta upphlaup þó vart
að koma á óvart.
Nýju fötin keisarans
JÓLA KAFFI
400 G
KR
PK
Andstaða styður ekki stjórn
Ein af stórfréttum gærdagsins var sú
að þingmaður stjórnarandstöðunnar
ætlaði ekki að styðja fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar. Þingmaðurinn
sem um ræðir, Róbert Marshall, sagði
sig úr þingflokki Samfylkingarinnar
í haust, en sagðist reyndar enn vera
stuðningsmaður stjórnarinnar. Sá
stuðningur er þó hvergi festur
í samkomulag og eðlilega kýs
Róbert eftir eigin sannfæringu.
Staðan í stjórnmálunum er
hins vegar sú að ríkisstjórnin
hefur ekki lengur meirihluta,
31 af 63 þingmönnum
sitja í þingflokkum
stjórnarflokkanna.
Skiptir það máli?
Annað mál er hvort þetta breyti
nokkru. Hefðin er sú að stjórnarand-
staðan kýs ekki gegn fjárlögum
heldur situr hjá. Fjárlög ársins 2012
voru borin upp í mörgum hlutum
og yfirleitt samþykkt með um 30 at-
kvæðum, reyndar allt niður í 26. Hitt
er svo annað mál að ef stjórnarand-
staðan vill blása til kosninga strax
fellir hún fjárlagafrumvarpið,
því þá þarf að rjúfa þing.
Græðarar skráðir
Alþingismönnum er ekkert óviðkom-
andi og lagafrumvörp og þingsálykt-
unartillögur bera vott um það. Tillaga
til þingsályktunar um heildrænar
meðferðir græðara, liggur nú fyrir
þingi, en fyrsti flutningsmaður er
Guðrún Erlingsdóttir úr Samfylk-
ingunni. Þar er lagt til að Bandalag
íslenskra græðara eigi fulltrúa í
starfshópi og komið sé á fót frjálsu
skráningarkerfi græðara, en græðarar
eru þeir sem veita „þjónustu
sem einkum tíðkast utan
hinnar almennu
heilbrigðisþjónustu
og byggist á hefð og
reynslu.“
kolbeinn@frettabladid.is