Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 30
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 30
Nýtt vopnahlé dugar
skammt þar sem ekki hefur
verið tekið á rót vandans í
Ísrael og Palestínu. Látum
ekki blekkja okkur aftur
með fagurgala og friðar-
pottloki.
Þegar Íslendingar viður-
kenndu Ísrael sem fullvalda
ríki árið 1948 var það okkar
atkvæði sem tryggði sæti
þeirra hjá Sameinuðu þjóð-
unum. Stuðningur okkar
byggði á áætlun alþjóða-
samfélagsins um landamæri árið
1947.
Ísrael hefur svikið samkomulag-
ið og sölsað undir sig nær allt pal-
estínskt land. Palestínufólkinu er
haldið í gíslingu í eigin landi. Ég
sá þetta með eigin augum er ég fór
þarna um í 5 vikna ferðalagi. Horfði
upp á fólkið í hálfgerðum fangabúð-
um. Til að komast milli landshluta
eða bæjarhluta þurfti palestínskur
almenningur að fara um vegatálma
og aðrar hindranir sem stjórnað var
af ísraelskum hrokagikkjum með
vélbyssur í hönd.
Strákar með riffil um öxl
Í víggirtum ísraelskum þorpum í
miðju palestínsku landi biðu skóla-
strákar eftir strætisvagni með riff-
il um öxl. Framámenn þorpanna
voru oftar en ekki aðfluttir mið-
aldra Bandaríkjamenn með skamm-
byssu í belti. Börn snæddu morgun-
mat með sandpoka fyrir gluggum.
Í Hebron höfðu um 100 Ísraels-
menn búið um sig með hervaldi
inni í miðri 100.000 manna palest-
ínskri borg. Sumir muna kannski
eftir ljósmyndasýningu minni í
Perlunni með þessum svipmynd-
um. Þeir sögðust hafa allan rétt til
hertöku þar sem Abraham var þar
fyrir 5.000 árum og væri
grafinn þarna! Rökin eru
álíka öfgafull og ef Norð-
menn hertækju Austurvöll
og nærliggjandi götur til
að troða þar niður 20 fjöl-
skyldum undir hervernd
og skjóta á Íslendinga sem
vilja komast í Alþingishús-
ið.
Ísrael var byggt á grunni
hryðjuverka m.a. í King
David hótelinu í Jerúsalem
þar sem nær 100 manns
létu lífið, helmingurinn Bretar en
þá fóru Bretar með yfirráðin. Ísra-
elsmenn urðu fyrstir til að beita
hryðjuverkum til að knýja fram
Ísraelsríki og kenndu þannig öðrum
íbúum hryðjuverk. Síðan hefur Ísra-
el sölsað undir sig meira og meira
land með ofbeldi þannig að nú er
Palestína að þurrkast út af kortinu.
Vorum við Íslendingar að styðja
og greiða fyrir áframhaldandi
ofbeldi, hryðjuverkum og stríðs-
glæpum með því að viðurkenna
Ísrael sem sjálfstætt ríki? Líklegra
er að viðurkenningin hafi átt að
greiða fyrir því að áætlun Samein-
uðu þjóðanna frá 1947 næði fram
að ganga.
Ábyrgð Íslendinga
Íslendingar bera mikla ábyrgð í
þessu máli. Eins og staðan er núna
höfum við svikið íbúa Palestínu og
lagt til aðstoð við ólöglega landtöku
sem hrakið hefur fólk af heimilum
sínum. Nú þarf frumkvæði héðan
að þrýsta á Ísrael að standa við upp-
runalega samkomulagið um land-
skiptingu sem er eini raunhæfi
byrjunarreiturinn fyrir varanlegan
frið. Sambandsríki eða eitt sameig-
inlegt lýðræðisríki sem sumir hafa
velt fyrir sér gæti hugsanlega þró-
ast frá þessum byrjunarreit.
Forseti Íslands á að beita sér í
þessu máli og boða Ísrael til frið-
arfundar í Reykjavík til lausn-
ar á deilunni. Jafnframt þarf að
gera Ísrael, S.Þ. og heimsbyggð-
inni grein fyrir því að íslenska
þjóðin geti ekki viðurkennt ríki
sem þanið hefur verið út með her-
valdi á kostnað barna og annarra
saklausra borgara sem þannig er
haldið áratugum saman í angist og
gíslingu. Slíkt ástand ógni heims-
friðnum. Ísrael í dag er eitthvað allt
annað en Íslendingar studdu 1948.
Þess vegna neyðast Íslendingar til
að draga þennan stuðning sinn til
baka a.m.k. tímabundið.
Innflutningsbann
Á meðan hernaðarástandið varir
er óhjákvæmilegt annað en Ísland
setji innflutningsbann á vörur frá
Ísrael. Ísland á að koma fram á
alþjóðasviðið með áskorun á aðrar
þjóðir að fylgja þessu fordæmi með
kröfu um endanlegt friðarsam-
komulag. Ísrael afhendi stjórn-
völdum í Palestínu það land sem
Ísrael hefur hernumið á kostnað
flóttamanna. Landamærin verði
færð til baka til áætlunar Samein-
uðu þjóðanna frá 1947. Byggingar á
herteknu svæðunum verði afhentar
Palestínufólkinu sem skaðabætur
frá Ísrael. Með þessu getur Ísrael
sýnt raunverulegan friðarvilja og
þá fyrst verið tekið aftur í sátt sem
fullvalda ríki.
Svíkja Íslendingar Palestínu?
Efra þrep virðisaukaskatts
(VSK) á Íslandi er næst-
hæst í heiminum og bilið á
milli þess efra og neðra er
hvergi meira. Það hvetur til
undanskota og mismunar
atvinnugreinum. Eðlilegt
er að stefna að minni mun
með hækkun neðra þreps-
ins og lækkun þess efra.
Langt er um liðið frá setn-
ingu laga um VSK og tími
kominn til að ráðast í heild-
arendurskoðun á VSK-kerf-
inu með einföldun, jafn-
ræði og skilvirkni að leiðarljósi.
Í nýútkomnu riti Samtaka
atvinnulífsins, „Ræktun eða rán-
yrkja?“, eru stjórnvöld hvött til
að minnka bilið milli þrepa í virð-
isaukaskatti í áföngum á næstu
árum með hækkun lægra þrepsins
og lækkun þess hærra.
VSK var tekinn upp hér á landi
árið 1990 með einu skattþrepi,
24,5%, og skyldi hann vera almenn-
ur og skilvirkur. Sú stefna stóð ekki
lengi því árið 1994 var tekið upp
14% þrep fyrir matvörur, gistiþjón-
ustu, fjölmiðla, bækur og húshitun.
Lægra þrepið var lækkað í 7% árið
2007 og hærra þrepið hækkað í
25,5% árið 2010. Í raun eru þrepin
þrjú þar sem ekki er lagður VSK á
fjórðung einkaneyslunnar.
Mikilvægasti tekjustofninn
VSK er mikilvægasti tekjustofn
ríkissjóðs, skilar 30% skatttekna.
VSK er ekki eins skaðlegur og
flestir aðrir skattar þar sem hann
hefur tiltölulega lítil áhrif á fjár-
festingar og vinnuframboð og þar
með verðmætasköpun. Ríkið þarf
að rækta þennan skattstofn, hafa
hann sem breiðastan, hlutfall-
ið sem lægst og stuðla að stækk-
un hans. VSK hentar hins
vegar afar illa til jöfnunar
lífskjara.
Rannsóknir Hagstofunnar á
útgjöldum heimila sýna að lægra
VSK-þrepið hafi óveruleg áhrif til
lífskjarajöfnunar. Hátekjuheimili
verja þriðjungi hærri fjárhæð til
kaupa á mat- og drykkjarvörum
en lágtekjuheimili, þótt þau síðar-
nefndu verji heldur hærra hlut-
falli tekna sinna til þessara þarfa.
Stuðningur ríkisins við heimilin
gegnum lægra þrep VSK er því
þriðjungi meiri við hátekju- en lág-
tekjuheimili.
Í skattaskýrslu AGS um Ísland
árið 2010 voru stjórnvöld hvött til
þess að taka upp eitt VSK-þrep í
áföngum af hagkvæmniástæðum
og afnema ýmsar undanþágur.
Þótt óumdeilt sé að fleiri en eitt
þrep í VSK mismuni atvinnugrein-
um, sé óskilvirkt og torveldi eft-
irlit, er staðreyndin sú að aðeins
örfá ríki Evrópu hafa eitt skatt-
þrep en flest eru með ýmist tvö
eða þrjú þrep. Óhjákvæmilegt er
að taka mið af þessu hér á landi.
Íslensk verslun og ferðaþjónusta
eru í samkeppni við fyrirtæki í
þessum ríkjum og almannahagur
að samkeppnisstaðan sé sem jöfn-
ust.
Þrep virðisaukaskatts
PALESTÍNA
Ástþór
Magnússon
stofnandi Friðar
2000
SKATTAR
Hannes G.
Sigurðsson
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri SA
➜ Í skattaskýrslu
AGS um Ísland árið
2010 voru stjórnvöld
hvött til þess að taka
upp eitt VSK-þrep
í áföngum af hag-
kvæmniástæðum og
afnema ýmsar undan-
þágur.
➜ Á meðan hern-
aðarástandið varir er óhjá-
kvæmilegt annað en Ísland
setji innfl utningsbann á
vörur frá Ísrael.
Eldvarnarpakki 1
Tilboðsverð í vefverslun
14.668 kr.
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Vefverslun með öryggisvörur á oryggi.is
Tilvalið í bílinn eða
ferðavagninn
Eldvarnarpakki 2
Tilboðsverð í vefverslun
20.937 kr.
Eldvarnarpakki 3
Tilboðsverð í vefverslun
13.398 kr.
Eldvarnarpakki 4
Tilboðsverð í vefverslun
7.205 kr.
Eldvarnarpakki 5
Tilboðsverð í vefverslun
14.177 kr.
Kertaljós og skreytingar þarf
að umgangast með varúð
Tryggið eldvarnir heimilisins, reykskynjarar, slökkvitæki
og eldvarnarpakkar í miklu úrvali.
Listaverð 22.741 kr. Listaverð 32.460 kr. Listaverð 20.772 kr. Listaverð 11.171 kr. Listaverð 21.980 kr.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
23
24
7