Fréttablaðið - 29.11.2012, Page 36
FÓLK|TÍSKA
• Kjólar
• Skokkar
• Mussur
• Toppar
• Peysur
Allar úlpur á 9.990 kr.
(áður 24.990 kr.)
Rýmum fyrir jólavörunni
sem kemur á morgun
Við erum á Facebook
5.000 kr. dagur í dag
Stærðir 40 – 58
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Mikið úrv
al af
kjólum og
tunicum
við öll tæ
kifæri
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING!
AF VINSÆLU KULDASKÓNUM
MEÐ MANNBRODDUNUM
FYRI
R DÖ
MUR
OG H
ERRA
Verð
:24.0
00.-
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Þegar á heildina er litið borga gæðin sig, bæði fyrir fjölskylduna og fyrir umhverfið,“ segir Kristín Björg Jóns-
dóttir, eigandi barnafataverslunarinnar
Polarn O. Pyret á Íslandi en hún rekur
verslanir í Kringlunni og Smáralind.
Það er hluti af hugmyndafræði Polarn
O. Pyret að börn eigi að fá að vera börn
og leika sér. Fötin eru þægileg, litrík og
þola mikinn þvott. Barnafötin frá Polarn O.
Pyret halda sér vel og og sniðin eru þannig
að það er eins og flíkin vaxi með barninu
og endist því lengur.
„Fólk segir mér margoft að börnin þeirra
noti fötin miklu lengur en það gerði ráð
fyrir og í raun lengur en stærðin segir til
um. Sniðin eru einfaldlega þannig,“ segir
Kristín. „Fötin þola mikla notkun og koma
alltaf eins úr þvotti, þau ganga milli barna
og milli fjölskyldna og tryggð viðskiptavina
segir sína sögu. Þeir sem ólust sjálfir upp í
fötum frá Polarn O. Pyret koma og kaupa á
sín eigin börn. Við leggjum áherslu á gæði
og góða þjónustu.“
Polarn O. Pyret býður allan fatnað fyrir
börn, allt frá nærfatnaði til yfirhafna. Allur
bómullarfatnaðurinn er úr mjúkri gæða-
bómull þar sem bómullin er sérvalin með
löngum þráðum og lögð er áhersla á að
fatnaðurinn sé framleiddur á umhverfis-
vænan hátt. Eitt helsta vörumerki Polarn
O. Pyret er bómullarföt með röndum sem
margir þekkja, annars vegar blá og hvít
og hins vegar rauð og hvít. Til viðbótar
við þau býður Polarn O. Pyret fjölbreytt
sérhönnuð munstur og líflega liti í fatnaði
á börn. Þar má meðal annars nefna boli
og samfellur, toppa, buxur, gammósíur,
peysur og sokka, auk hlífðarfatnaðar, húfna
og vettlinga. Ullarfötin eru margs konar og
úr bestu merino-ull.
„Jólafötin í ár eru falleg og litrík. Við
erum með skyrtur fyrir strákana og
skemmtilegar og litríkar slaufur og töffara-
leg axlabönd. Einnig vesti, bæði prjónuð
og ofin, og mjög skemmtilega sixpensara.
Á stelpurnar eigum við yndislega mjúka
velúrkjóla með mikilli vídd í pilsinu. Mjög
fallega köflótta og rósótta kjóla og ekki má
gleyma prjónakjólum sem eru alltaf klass-
ískir. Jólafötin eiga að vera þægileg fyrir
börn og foreldra og þola mikla notkun og
þvott. Við eigum einnig mikið af fallegri
gjafavöru, til dæmis afmælis- og sængur-
gjöfum, og hjá okkur er alltaf hægt að
ganga að fyrirburafötum vísum,“ segir
Kristín.
GÆÐIN BORGA SIG
POLARN O. PYRET KYNNIR Polarn O. Pyret hefur framleitt gæðafatnað fyrir
börn í yfir 35 ár en verslunin hefur verið á Íslandi í 25 ár.
TRYGGÐ VIÐSKIPTA-
VINA SEGIR SITT
Kristín Jónsdóttir,
eigandi Polarn O. Pyret,
segir fólk sem ólst upp
í fötum frá Polarn O.
Pyret koma og kaupa föt
á sín eigin börn.
Skósíðir og bylgjandi kjólar voru áberandi á pöllunum á tísku-viku múslíma í Bishkek en þar
sýndu nokkrir kirgiskir fatahönnuðir
línur sínar. Hönnuðurinn Zhanara
Chyngysheva leitaði í forna
kirgiska munsturhefð og
útsaum en hún sýndi kjóla
úr silki með munstruðum
brjóststykkjum, teknum
saman í mittið með stórum
og áberandi munstruðum
beltum. Þá voru höfuðklút-
arnir einnig bróderaðir.
Fatnaður hönnuðarins
Ukey Murataliyva var
einfaldari í sniðum
og ekki mikið um
útsaum. Ukey
sýndi einnig bux-
ur og yfirhafnir í
hressilegum litum
eins og bleikum og
sægrænum.
LEITAÐ Í FORNA
MUNSTURHEFÐ
TÍSKUVIKA Í BISHKEK Kirgiskir fatahönnuðir sýndu hönnun sína á tískuviku
múslíma í Bishkek, höfuðborg Kirgisistan, á dögunum.
STERKIR LITIR OG
ÚTSAUMUR
Sýningastúlkurnar stik-
uðu pallana í skósíðum
silkikjólum og síðbuxum
á tískuviku múslima í
Kirgisistan í síðustu
viku. Hönnuðurinn
Zhanara Chyng ysh-
eva leitaði í forna
munsturhefð.
Save the Children á Íslandi