Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 42
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, s. 512-5411 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Þessi fjöldi er þau dýr sem finnast
og eru flutt í sérstakt dýraathvarf
norðarlega á Kanarí. Miklu fleiri
dýr eru skilin eftir sem eru á flæk-
ingi um eyjuna.
Fleiri hundar ganga lausir á
Kanarí en á nokkrum öðrum stað
á Spáni. Í dýraathvarfinu er reynt
að koma dýrunum fyrir á heim-
ilum. Í fyrra tókst að koma um
1.500 köttum og hundum fyrir
hjá fjölskyldum sem óskuðu eftir
að fóstra dýrin.
Dýr sem enginn vill taka að sér
þarf að aflífa eftir nokkrar vikur
í athvarfinu. Það er nauðsynlegt
til að hægt sé að hafa eftirlit með
öllum þessum dýrum, auk þess
finnast sífellt fleiri dýr og pláss-
ið er fljótt að fyllast.
Félag dýralækna í Las Palmas
hefur látið gera heimildarmynd
um athvarfið Bañaderos til að
vekja fólk til umhugsunar um
heimilislausu dýrin og ábyrgð á
dýrahaldi.
Spánverjar af meginlandinu
koma mikið til Kanarí yfir vetrar-
mánuðina og taka þá gæludýrin
með sér. Sömuleiðis kemur fjöldi
manna frá öðrum Evrópuríkjum
og Norðurlöndum.
Samkvæmt reglum EB sem
tóku gildi í janúar á þessu ári
er heimilt að ferðast með gælu-
dýr sem hafa ferðapassa. Dýrið
þarf að hafa gengist undir bólu-
setningar en gæludýravegabréf-
ið staðfestir það.
Kanaríeyjar auglýsa að gælu-
dýr séu velkomin. Eigendur dýr-
anna verða þó að huga að reglum
hótela áður en lagt er af stað
með dýrin í ferðalag. Gæludýra-
vegabréfið er ekki orðið að veru-
leika hér á landi en Helgi Hjörv-
ar alþingismaður hefur lagt fram
frumvarp þess efnis og vonast
til að það verði samþykkt innan
tíðar.
Dýralæknar á Kanaríeyjum hafa útbúið sérstaka heimildarmynd vegna allra þeirra gælu-
dýra sem eru skilin eftir á eyjunni.
Ása María Valdimarsdóttir þekkir feg-urstu leyndardóma heimsins betur en margur enda víðförull fararstjóri
sem byrjaði ferilinn hjá Ingólfi Guðbrands-
syni í Útsýn snemma á níunda áratugnum.
„Ég hef alltaf jafn gaman af fararstjórn
og minn stíll er að leyfa fólki að staldra við,
njóta og horfa í kringum sig. Sumir staðir
eru einfaldlega svo heillandi að maður tímir
helst ekki að kveðja.“
Stærsta skemmtifley heims
Ása María hefur sett saman mýmargar ferð-
ir sem sameina mannlíf og menningu ásamt
starfsfólki Úrvals Útsýnar. Á nýárinu eru
tvær freistandi glæsisiglingar fram undan.
„Þá leggjumst við í f lakk á f lottustu
skemmtiferðaskipum heims. Skipin eru
f ljótandi hótel með öllum lífsins lysti-
semdum um borð og sannkallað lúxuslíf
og dekur. Í febrúar siglum við með glæsi-
fleyinu Oasis of the Seas frá Fort Lauderdale
yfir til Haítí, Jamaíku og Mexíkó. Skipið er
stærsta skemmtiferðaskip heims með 2.000
manna áhöfn og 6.000 farþegum.“
Önnur sigling á ekki síður glæstu skipi
verður farin í apríl.
„Þá f ljúgum við til Dubaí og siglum á
Serenade of the Seas alveg ævintýralega
fallega leið í gegnum Súez-skurðinn með-
fram Egyptalandi og Alexandríu niður til
Barcelona. Fleiri siglingar eru fyrirhugaðar
á nýja árinu og má nefna siglingu um Mið-
jarðarhafið í ágúst; frá Róm til Grikklands
með viðkomu á grísku eyjunum.“
Töfrar Kína
Í júní fer Úrval Útsýn á framandi vit töfra-
landsins Kína.
„Þar heimsækjum við sögufræga staði
sem f lestir vilja upplifa á ferðalagi um
Kína; Peking, Sjanghæ, Terracotta-herinn
og meira að segja Hong Kong. Að nema land
í Kína er eins og að koma í annan heim og
upplifunin ólýsanleg,“ segir Ása María en
fararstjóri verður kínversk stúlka búsett á
Íslandi.
Fegurstu staðir Evrópu
Á teikniborði Ásu Maríu eru sérferðir til
margra af fegurstu stöðum Evrópu.
„Þar má nefna rómantíska vorferð til
Mið-Evrópu þar sem dýrlegt er að sjá nátt-
úruna vakna áður en vorið birtist hér. Við
dveljum í yndislegu þorpi í Ölpunum og
könnum hvort beljurnar með bjöllurnar séu
komnar út og förum að paradísinni Boden-
vatni sem að liggja landamæri Þýskalands,
Austurríkis og Sviss,“ segir Ása María sem
hvarvetna leggur mikið upp úr góðum hót-
elum og aðbúnaði.
„Allt eru þetta sérvaldir áfangastaðir sem
kalla á streitulaust líf og þar sem fólk þráir
að staldra við lengur til að upplifa og njóta
fegurðar og mannlífs.“
Fleiri Evrópuferðir verða farnar á árinu;
meðal annars á vínhátíð í Mósel.
„Vínviður er fiskur Móseldalsins og þar
ætlum við að vera á mjög góðu hóteli í sex
daga og taka þátt í hátíðarhöldunum og
svipast um í nágrenninu.“
Ekki bara Derrick og BMW
Í borgarferðum bætist nú við þýska heims-
borgin München.
„München er ein af mínum uppáhalds-
borgum en þar snýst lífið ekki bara um
bjór, bolta, Derrick og BMW. Borgin geym-
ir mikla sögu og upphaf nasismans, lit-
ríkt mannlíf og stutt er í frægar hallir og
töfrandi áfangastaði,“ segir Ása María sem
heldur einnig upp á Berlín, Dublin og Brig-
hton sem allar eru á lista yfir borgarferðir
Úrvals Útsýnar.
Nánar um allar ferðir Úrvals Útsýnar má
sjá á www.uu.is.
Staldrað við um stund í paradís
Heimurinn er fullur af ómótstæðilegum áfangastöðum. Úrval Útsýn býður upp á fjölbreytta flóru ferða um heimsins höf og til
framandi staða sem allir eiga sameiginlegt að stela hjarta ferðalangsins. Kjörorðin eru mannlíf, menning, slökun og hamingja.
Starfsfólk framleiðslu- og hópadeildar Úrvals Útsýnar, Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir, Ása María Valdimarsdóttir
og Lára Birgisdóttir. MYND/VALLI
Skilja gæludýrin
eftir á Kanarí
4.500 gæludýr voru skilin eftir af eigendum sínum á Kanaríeyjum á síðasta ári.
SKEMMTUN SEM
SKIPTIR MÁLI
Í OPINNI DAGSKRÁ
Á STÖÐ 2
HÉR FÆRÐU RAUÐU NEFIN:
Hagkaup, Bónus, MP banki,
Te og Kaffi, Domino’s.
www.unicef.is