Fréttablaðið - 29.11.2012, Page 46
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 20126
SÉRKENNILEGUR MATUR TIL SÝNIS
Ýmis skemmtileg og sérkennileg söfn eru til víða um heim sem ein-
blína á mat og matargerð. Ferðavefurinn Lonelyplanet.com birti nýlega
lista yfir sérkennilegustu söfn þeirrar tegundar í heiminum á vef sínum.
Þar má meðal annars finna Evrópska aspassafnið sem er í bænum
Schrobenhausen í suðurhluta Þýskalands. Safnið inniheldur upplýsingar
um ræktun aspas, næringarupplýsingar og þátt aspas í sögu, menningu
og matargerð landsins.
Edik hefur lengi verið notað til matargerðar víða um heim, þar á meðal
í Japan. Í bænum Handa stendur Su No Sato ediksafnið en bæjarbúar
hafa framleitt edik síðan á fimmtu öld. Upphaflega var edik aukaafurð
frá bruggun hrísgrjónavínsins sake. Á safninu má meðal annars fræðast
um sögu ediksins og hollustu
þess auk þess sem gestum er
sýnt hvernig framleiða
skal gott edik.
Salamipylsan er mið-
depill Salami- og papr-
ikusafnsins í Szeged
í Ungverjalandi. Þótt
mörgum þyki lítið spenn-
andi að fylgjast með pylsu-
gerð eru Ungverjar frægir fyrir
salamipylsurnar sínar. Hægt er
að skoða tæki til pylsugerðar og
áhugaverðar upplýsingar um sögu
og innihald salamipylsunnar. Á efri
hæð safnsins er hægt að fræðast
um paprikuna sem er mikilvæg
uppistaða í ungverskri matargerð.Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Leyndarmál jökla og fegurð
landslags á myndakvöldi FÍ
Næsta myndakvöld Ferða-
félags Íslands er í dag
miðvikudaginn 17. febrúar
í sal Ferðafélagsins í Mörkinni
6 og hefst kl. 20.00 að vanda.
Myndakvöldið er að þessu
sinni í umsjá hjónanna Helga
Björnssonar jöklafræðings sem
sýnir ljósmyndir af íslenskum
jöklum og fjallar um hið sýnilega og ósýnilega landslag sem jöklarnir búa
yfir. Bók Helga, Jöklar á Íslandi sem kom út fyrir síðustu jól hefur hvarvetna
vakið aðdáun enda um stórvirki að ræða. Jöklar á Íslandi fékk hin íslensku
bókmenntaverðlaun í flokki fræðirita.
MYNDAKVÖLD FÍ
Fimmtu gur
29. nóvember kl. 20
Sal FÍ Mörkinni 6
Eitt fjall á viku
myndasýning og kynning
Umsjón:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Aðgangur ókeypis – allir velkomnir
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Líkt og víða annars staðar á landinu er mikið um að vera á aðventunni á Akur eyri. Þar er afar jólalegt um að
litast og nýfallinn snjór yfir öllu, sem hefur
ákveðna kosti í för með sér.
Frábært skíðasvæði opið
Skíðaferð til Akureyrar gæti verið eftir-
minnileg fyrir alla fjölskylduna. Skíða-
svæðið í Hlíðarfjalli var opnað 25. nóvem-
ber síðastliðinn. Þar er nægan snjó að finna,
ólíkt skíðasvæðum á höfuðborgarsvæð-
inu. Í Hlíðarfjalli eru bæði lyftur og brekk-
ur fyrir fullorðna jafnt sem börn, byrjend-
ur og lengra komna.
Jólahús og jólagarður
Lítið fallegt jólahús stendur í Eyjafirðin-
um í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá
miðbæ Akureyrar. Þar snarkar eldur í arni,
jólasöngvar hljóma og jólaangan fyllir
vitin. Húsið lítur út að utan eins og gert sé
úr sætabrauði og innandyra er hægt að fá
ýmsar jólavörur. Við húsið stendur einnig
turn sem hýsir heimsins stærsta jóladaga-
tal. Ekki er ólíklegt að síðustu þrettán dag-
ana fyrir jól megi sjá jólasveini bregða fyrir
og upplagt að hafa með sér heitan drykk
og njóta nestis og næðis í ljósum prýddum
garðinum. Opið er frá 14 til 22 alla daga.
Blómstrandi leiklist á Akureyri
Leikfélag Akureyrar sýnir um þessar mund-
ir jólasýninguna Ef ég væri jólasveinn. Leik-
ritið segir frá ungum dreng í Giljaskóla sem
á sér þann draum heitastan að vera jóla-
sveinn.
Tilvalið er að skella sér í fjölskylduferð í
leikhús eftir skíðaferð í Hlíðarfjalli. Þá er
önnur sýning í Ketilhúsinu fyrir fullorðna
fólkið. Þar fara stórleikararnir Þráinn Karls-
son, Gestur Einar Jónasson og Aðalsteinn
Bergdal á kostum við að leika sjálfa sig;
gamla, bitra, geðilla leikara sem halda að
þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir.
Tónlist og menningarlíf
Nóg er um að vera þegar kemur að tónleika-
haldi og væri nær að tala um tónleikaveislu.
Margir af fremstu tónlistarmönnum lands-
ins munu stíga á stokk á Akureyri. Í menn-
ingarhúsinu Hofi verða reglulega tónleikar
alla aðventuna; KK og Ellen, Frostrósir,
Gospel kór Akureyrar, Stúlknakór Akureyr-
arkirkju, Gissur Páll Gissurarson og marg-
ir f leiri munu koma þar fram. Alla daga í
desember fram að jólum verður svo lifandi
jóladagatal með fjölbreyttri dagskrá. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu Menn-
ingarhússins Hofs, www.menningarhus.is.
Á Græna hattinum verður svo vegleg tón-
leikadagskrá þar sem margir af bestu tón-
listarmönnum landsins munu koma
fram. Helst ber að nefna hljómsveit-
irnar ADHD, Dúkkulísurnar, Jónas
Sig og Ritvélar framtíðarinnar, Hjalta-
lín, Skúla mennska, Magna, Þórunni
Lárusdóttur, Jón Jónsson og fleiri.
Fjöldi annarra viðburða verða á dag-
skrá á Eyjafjarðarsvæðinu á aðvent-
unni. Hægt er að sjá ítarlegt viðburða-
dagatal á heimasíðunni www.visitak-
ureyri.is auk upplýsinga um staði til að
skoða og aðra afþreyingu.
Aðventuferð
til Akureyrar
Akureyri getur verið einstaklega fallegur bær á að líta í
desember. Snjór liggur oftast yfir öllu og ljósadýrðin speglast í
haffletinum. Ótal margt er þar um að vera á aðventunni og nýtur
bærinn þeirrar sérstöðu að stutt er á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli
þar sem nægan snjó er að finna.
Leikfélag Akureyrar sýnir á aðventunni
jólaleikritið Ef ég væri jólasveinn.
Fegurð Eyjafjarðar er óumdeild á stilltum
kvöldum þar sem ljósin speglast í haf-
fletinum. NORDICPHOTOS/GETTY
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað
25. nóvember. NORDICPHOTOS/GETTY
Í jólahúsinu er snarkandi arineldur, upplýstur jólagarður og fallegir jólamunir til sölu.