Fréttablaðið - 29.11.2012, Qupperneq 48
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 20128
Í september opnaði nýtt 600 sæta veitingahús á glæsihótelinu Caesars
Palace í Las Vegas. Veitingasalurinn er allur hinn glæsilegasti, enda
var ekkert sparað. Matreiðslumenn eru framúrskarandi og bjóða ein-
ungis fyrsta flokks mat eldaðan eftir kúnstarinnar reglum. Níu mat-
reiðslustöðvar eru á veitingahúsinu, sem heitir Bacchanal Buffet, og
þar eru bornir fram að minnsta kosti 500 diskar á dag. Allar innrétt-
ingar eru nútímalegar og eftir ströngustu kröfum arkitekta. Hægt er
að borða allra þjóða mat, fínan franskan mat, ekta Mexíkó-götumat,
sushi, ítalskan, allt eftir smekk hvers og eins. Sumir segja að þetta sé
hið fullkomna eldhús þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Máltíð kostar að meðaltali rúmar fimm þúsund krónur á þessu fína
veitingahúsi og flestir eru sammála um að það sé upplifun að prófa
staðinn, hvort sem maður dvelur á hótelinu eða ekki.
Lúxus í Vegas Hótel Caesars Palace í Las Vegas.HJÓLAÐ UM REYKJAVÍK
Mörgum finnst skemmtilegt
að hjóla og gera mikið af því.
Algengt er að fólk hjóli í vinnuna
en það getur verið gaman að
breyta út af venjunni og fara í
skipulagða hjólaferð með fjöl-
skyldu eða vinum um borgina.
Reykjavik Bike Tours býður
upp á ferð sem kallast „Klassísk
Reykjavík“. Í henni er hjólað meðal
annars um Ægisíðuna, að Háskóla
Íslands, Norræna húsinu, Alþingis-
húsinu, niður að höfn, að Tjörn-
inni og um miðbæinn. Ferðin er
sjö kílómetra löng, tekur um tvær
og hálfa klukkustund og þykir
ekki sérstaklega erfið. Í desember
og janúar þarf að panta ferðir sér-
staklega en einnig verður boðið
upp á sérstakar jólaferðir um
hátíðirnar. Þar verður
lögð áhersla
á að skoða
jólaskreyting-
ar og jólaljós í
miðborginni.
AÐVENTUFERÐ Í BÚSTAÐ
Aðventan getur verið annasöm
og það er ýmislegt sem liggur
fyrir. Hví ekki að flýja með verk-
efnin í bústað og leysa þau í ró
og næði?
Margir hafa aðgang að bústað í
fjölskyldunni og svo er víða hægt
að leigja. Það má til dæmis taka
með sér ýmiss konar aðventu-
föndur og útbúa það með börn-
unum. Ef vel tekst til má jafnvel
lauma afrakstrinum í jólapakka.
Það má líka taka með þær gjafir
sem búið er að kaupa og dunda
við að pakka þeim fallega inn og
njóta um leið kyrrðarinnar í kring.
Þá er hægt að skrifa jólakort
við kertaljós og maula eitthvað
sætmeti á meðan.
Það eru nokkrir hlutir sem er
nauðsynlegt að hafa með-
ferðis þegar haldið er í bústað að
vetrarlagi. Þetta eru ullarsokkar,
mjúkar buxur, gæðakaffi og kakó
fyrir börnin.
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT.
ÞÚ KEMST ÞANGAÐ
MEÐ OKKUR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
Alltaf laus sæti.
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
101 Reykjavík
580 5400
Skannaðu strikamerkið með snjallsímanum þínum
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum