Fréttablaðið - 29.11.2012, Síða 56
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
BAKÞANKAR
Friðriku Benónýs
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Pondus!
Hvar
ertu?
Jokkmokk! Norður-
Svíþjóð! En slappaðu
af! Ég held ég hafi
náð að hrista lögguna
af mér við Umeå!
Vertu viðbúinn... Slæmi
strákurinn
ætlar að gera
eitthvað
slæmt!
Hvað
ætlarðu...
Uss! Ekki
horfa á mig!
Hvað
ætlarðu að
gera?
Ég er að velta fyrir mér að setja
tygg jóið mitt undir bekkinn!
NÍRH!
Þetta er Jói, hann er
lesblindur.
Heimska skjaldbaka! Ég bjargaði lífi
hennar og hún deyr samt?
Ég fékk næstum salmonellu við
að gefa henni munn við munn!
Skriðdýr eru oft
svo vanþakklát.
Þau geta alveg verið
kurteis þótt þau séu
með kalt blóð!
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
MYNDASÖGUR
Ég sendi henni skilaboð á Facebook fyrir mörgum klukkutímum og hún hefur
enn ekki svarað,“ segir kollega mín ösku-
pirruð þegar talið berst að útsiktuðum við-
mælanda sem hún hefur verið að reyna að
ná í. Við hin dæsum öll og hristum höfuðið
yfir þessum fádæma dónaskap í konunni.
Hver svarar ekki skilaboðum á Facebook
um hæl? Hvurslags er þetta?
ÞESSIR tæknivæddu tímar
gera ekki ráð fyrir einkalífi.
Það á að vera hægt að ná í
þig á stundinni í gegnum
síma eða tölvu, hvort sem
þér líkar það betur eða verr.
Kjósir þú að svara ekki er
það álitinn dónaskapur eða
hroki nema hvort tveggja sé.
Með því að nýta þér sam-
skiptatæki yfir höfuð virð-
ist þú hafa skrifað undir
samning þess efnis að allir
eigi að geta náð í þig þegar
þeim hentar hvernig sem
á stendur fyrir þér. Þú átt
ekki tíma þinn, tæknin á
hann og þú virðist ekki
hafa atkvæðisrétt í málinu.
VERANDI sú skástífa sem
ég er hef ég tekið upp þann
sið að svara ekki í síma utan
vinnutíma, vinum mínum
til mikillar gremju. Þau
eru ófá skilaboðin sem berast á Facebook
þar sem ásökunum um eigingirni, dóna-
skap og lélega vináttu rignir yfir mig. Ég
svara eftir dúk og disk, bið forláts, ég hafi
mikið að gera og þeim fáu klukkustundum
sólarhringsins sem ekki fari í vinnu vilji ég
gjarnan fá að ráðstafa sjálf. Ekki þykir það
gild afsökun og næstu skilaboð eru gjarn-
an enn harðorðari en þau fyrstu. Hvernig
dirfist ég að kalla það að sinna ekki vinum
mínum ráðstöfun eigin tíma? Og var ég
ekki að segja frá því á Facebook að ég hefði
farið út að borða? Aldeilis ekki vinnan sem
heldur mér frá samskiptum greinilega, ég
er bara eigingjörn tík.
AÐ TAKA eigin félagsskap fram yfir
félagsskap annarra er ekki viðurkenndur
möguleiki. Nei, það hlýtur að liggja eitt-
hvað annað og grunsamlegra að baki. Sam-
særiskenningar blossa upp og vinkonur
eiga löng símtöl sín á milli þar sem önnur
yfirheyrir hina um hvort ég sé eitthvað
móðguð út í sig. Hin hummar og jæjar og
segir já og kannski og þegar ég hugsa út í
það … Og snjóboltinn hleður utan á sig með
ógnarhraða. Útskýringar mínar eru ekki
skóbótar virði og áður en hendi er veifað
er búið að skipa í lið í vinahópnum; með
og á móti. Svona verða stríðin til. Skila-
boðin í innboxinu skiptast nú í tvo flokka;
svívirðingar eða stuðningsyfirlýsingar. Og
allt sem ég braut af mér var að svara ekki í
síma. Ég held ég hætti bara alfarið að lesa
skilaboð á Facebook líka.
Svaraðu manneskja!LÁRÉTT2. skipalægi, 6. tveir eins, 8. rá, 9. farfa,
11. æst, 12. nasl, 14. raup, 16. kúgun,
17. púka, 18. slunginn, 20. í röð, 21.
treysta.
LÓÐRÉTT
1. loðfeldur, 3. mannþvaga, 4. óglatt,
5. lík, 7. helber, 10. hald, 13. bar, 15.
skordýr, 16. margsinnis, 19. ullarflóki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. höfn, 6. ee, 8. slá, 9. lit, 11.
ör, 12. snakk, 14. skrum, 16. ok, 17.
ára, 18. fær, 20. tu, 21. trúa.
LÓÐRÉTT: 1. pels, 3. ös, 4. flökurt, 5.
nár, 7. einskær, 10. tak, 13. krá, 15.
maur, 16. oft, 19. rú.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða!
Miðasala í
fullum gangi!
Sýnt í Borgarleikhúsinu
í október, nóvember og desember.
Sýningar í Hofi á Akureyri í nóvember.