Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 64
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
BÆKUR ★★★★ ★
Undantekningin
Auður Ava Ólafsdóttir
BJARTUR
María, sögukona Undantekning-
arinnar, upplifir fremur óvenju-
legt gamlárskvöld í upphafi bók-
arinnar. Flóki, eiginmaður hennar
til ellefu ára, velur þetta kvöld til
þess að koma út úr skápnum og
hann tilkynnir konu sinni jafn-
framt að hann sé ástfanginn af
samstarfsmanni sínum og ætli
sér að flytja til hans. Svo er hann
á bak og burt.
Eins og gefur að skilja er þetta
Maríu töluvert áfall. Hún situr ein
eftir með tvíbura á þriðja ári og
glímir við ótal spurningar á borð
við: „Hvað segir það um mig sem
manneskju að ég skyldi ekki hafa
tekið eftir neinu?“
Flókarnir tveir
(já, ástmaðurinn
heitir sama nafni)
eru sérfræðingar
í óreiðukenning-
unni, en snögg net-
leit segir stærð-
fræðiblindingjum
að sú kenning sé
„formleg aðferð
sem gerir stærð-
fræðingum kleift
að skilja eðli hins
tilviljanakennda,
duttlungafulla
eða ófyrirsjáan-
lega“.
Í þessari sögu
þarf María ein-
mitt að takast á
við óreiðuna sem
fylgir duttlung-
um örlaganna
og hún reynir að
skilja eðli hennar og endurskoða
líf sitt út frá þessari óvæntu vitn-
eskju um eiginmanninn. Og eins
og ekki sé nóg lagt á söguhetjuna,
þá skýtur blóðfaðir hennar upp
kollinum í fyrsta sinn og á erindi
við dóttur sína.
Auk Maríu og hennar nánustu
er Perla, dvergvaxin kona sem
býr í kjallaranum hjá henni, ein af
aðalsöguhetjum Undantekningar-
innar. Perla er bæði eftirminnileg
og skemmtileg persóna. Eins og
stendur á útidyrunum hjá henni
þá er hún „sálgreinir PhD, fjöl-
skyldu- og hjónabandsráðgjafi og
rithöfundur“. Perla reynist Maríu
ráðagóð vinkona og hjálparhella í
erfiðum aðstæðum.
Vangaveltur um skáldskapar-
listina eru áberandi í bókinni, ekki
síst í samræðum þeirra Perlu og
Maríu, en Perla
skrifar glæpa-
sög u r fy r i r
frægan glæpa-
sagnahöfund,
er „ghostwri-
ter“ þó að hún sé
að reyna að losa
sig undan þeirri
k vö ð . M a r í a
verður að aðal-
áhugamáli henn-
ar í staðinn.
Ungur fugla-
áhugamaður í
næsta húsi hefur
ei n n ig m i k ið
dálæti á Maríu,
enda á hún að vera
sláandi fögur. Svo
fögur að það slær hreinlega
þögn á fólk þegar hún gengur inn
á veitingahús og hún er líka góð og
göfug manneskja sem hefur gert
það að ævistarfi að aðstoða fórn-
arlömb stríðsátaka.
Texti Auðar Övu er bæði ljóð-
rænn og fallegur. Persónurnar eru
áhugaverðar sem og framvinda
sögunnar og lesandi fær einlægan
áhuga á því að vita meira um for-
tíð Maríu og Flóka og það hvern-
ig unnið er úr málunum. Nokkur
kunnugleg stef úr fyrri verkum
höfundarins skjóta hér líka upp
kollinum en nú ber að vara sig á
því að segja ekki of mikið.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Fallega skrifuð,
áhuga verð og skemmtileg bók sem
fyllsta ástæða er til að mæla með.
Út er komin bókin Pater Jón Sveins-
son – Nonni hjá bókaútgáfunni
Opnu, en þar skráir Gunnar F. Guð-
mundsson sagnfræðingur ævisögu
Jóns, sem yfirgaf föðurland sitt
1870, gerðist kaþólskur prestur og
kennari meðal Jesúíta og ferðað-
ist um allan heim. Frá unga aldri
skrifaði hann sögur sem urðu að
miklu höfundarverki og bækurnar
um Nonna urðu víðfrægar. Jón lést
í Þýskalandi undir lok seinna stríðs.
Gunnar F. Guðmundsson hefur
unnið að bókinni meðfram öðrum
verkefnum síðan snemma árs 2006
en hafði viðað að sér efni áður.
Hann minnist þess þegar hann las
Nonnabækurnar í æsku og heillað-
ist af sumum þeirra. Síðar kynntist
hann Haraldi Hannessyni, sem var
góður vinur Nonna og hafði tekið
sér fyrir hendur að leita að heim-
ildum um hann eftir að hann dó.
„Þá vissu fáir hvað hafði orðið
um veraldlegar eigur Jóns. Har-
aldur fór á stúfana fljótlega eftir
að stríðinu lauk, fann þessar heim-
ildir og fékk leyfi til að flytja þær
til Íslands. Hann geymdi þessar
heimildir heima hjá sér og bjó um
þær með mikilli prýði. Ég var góður
kunningi Haralds og sá hjá honum
Nonnasafnið og heyrði hann oft
segja frá Nonna, sem var líka til
þess fallið að vekja áhuga minn á
Jóni Sveinssyni.“
Haraldur ætlaði sjálfur að skrifa
ævisögu Nonna. Tími hans fór hins
vegar að mestu í að flokka heim-
ildirnar, skrá þær og búa um þær.
„Hann gerði það af svo mikilli
vandvirkni að ég bjó að því. Har-
aldur á því ekki lítinn þátt í því að
koma ævisögu Nonna á framfæri og
á mikinn heiður skilinn.“
Gunnar lýsir Jóni sem rótlausri
sál sem glímdi við mikla togstreitu.
„Jón var tættur maður á tíma-
bili en þegar hann hann fékk frelsi
til þess að gera það sem hugurinn
stóð til fann hann hamingjuna. Ein
bókin heitir Hvernig Nonni varð
hamingjusamur. Þar gefur Jón í
skyn að hann hafi fundið hamingj-
una þegar hann kynntist kaþólsku
kirkjunni og fór í skóla til Frakk-
lands. Ég held aftur á móti að hann
hafi í raun og veru ekki orðið ham-
ingjusamur fyrr en hann var leyst-
ur undan öllum skyldukvöðum
innan reglunnar og fékk leyfi til
þess að fylgja köllun sinni eftir,
sem var að skrifa. Það gerðist ekki
fyrr en hann var kominn hátt á sex-
tugsaldur.“
Þrátt fyrir farsæld á ýmsum svið-
um var ævi Jóns líka þyrnum stráð.
Gunnar segir það hafa komið sér á
óvart hversu þögull Jón hafi verið
um myrku tímabilin á ævi sinni.
„Hann komst að raun um það
þegar hann las dagbækur föður
síns að bernskuár sín hefðu alls
ekki verið sólrík og björt heldur
þvert á móti.
Lífið var endalaust basl, harð-
ræði og veikindi. Hann minnist
hins vegar aldrei á það í Nonnabók-
unum og ekki heldur frá því mótlæti
hann varð fyrir síðar á ævinni. Það
átti allt að vera svo bjart og fagurt í
Nonnabókunum, það var í samræmi
við þann boðskap sem hann vildi að
bækur sínar flyttu öðru fólki. Það
er óhætt að segja að Jón bar harm
sinni í hljóði.“ bergsteinn@frettabladid.is
Rótlaus sál sem bar
harm sinn í hljóði
Flestir Íslendingar þekkja Nonnabækurnar eft ir Jón Sveinsson. Jón var einn
þekktasti Íslendingur síns tíma og bækur hans þýddar á tugi tungumála. En
þrátt fyrir ævintýralegt lífshlaup hefur saga hans ekki verið sögð fyrr en nú.
GUNNAR F. GUÐMUNDSSON Kom á
óvart hvað Jón var þögull um mótlætið
í sínu lífi.
Þegar Flóki
kom út úr skápnum
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
123
4
0
8
JÓN SVEINSSON Flutti utan 1870 og sneri ekki aftur til Íslands nema sem gestur, í síðara skiptið árið 1930 þar sem hann var
viðstaddur Alþingishátíðina. Hér sést hann á bát við Viðey. MYND/MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI– NONNASAFN
MENNING