Fréttablaðið - 29.11.2012, Síða 66
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
MYNDLIST ★★★ ★★
Hugleikir og fingraflakk
Stiklur úr starfsævi
Ragnheiðar Jónsdóttur
Sýningarstjóri: Eiríkur Þorláksson
KJARVALSSTAÐIR
Sýningin Hugleikir og fingraflakk
– Stiklur úr starfsævi Ragnheið-
ar Jónsdóttur er tvískipt. Í öðrum
helmingi salarins eru frjálslegar
óhlutbundnar teikningar listakon-
unnar en í hinum er hin agaða og
frásagnarlega grafík. Þessi tví-
skipting er líka mjög skýr á ferli
Ragnheiðar, enda hætti hún um
1990 að vinna í grafík, og sneri sér
að þessum stórum teikningum og
hefur einkum unnið að þeim síðan.
Það sem vekur athygli við skoð-
un sýningarinnar er að þessi
umskipti listamannsins frá grafík
yfir í teikningu virðast ekki hafa
snúist eingöngu um miðilinn, held-
ur er hér um að ræða skref sem
listamaðurinn tekur úr helsi yfir
í frelsi, ef svo má að orði komast.
Til að undirstrika þetta segir
Ragnheiður þegar hún er spurð
um það í sýningarskrá hvort hún
myndi þrykkja myndir í sömu
stærð og teikningarnar, ef hún gæti
það. „Svarið var skýrt: Nei, það
myndi ég aldrei gera. Mér finnst ég
alltaf vera í fríi þegar ég teikna. En
aftur á móti í þrælabúðum þegar ég
vinn í grafík.“
Á grafíktímabilinu hefur Ragn-
heiður verið kröfuhörð á sjálfa sig,
bæði tæknilega og hugmyndalega.
Hún er afar flinkur grafíklista-
maður, en vann verk sín samhliða
því að reka stórt heimili og ala upp
hóp af börnum. Þessi hversdags-
leiki fær að birtast í verkunum
sjálfum og þannig er það ekki bara
tæknin sem er krefjandi heldur
umfjöllunarefnin líka. Verkin eru
full af vangaveltum, heilabrotum,
samfélags- og sjálfsskoðun. Tákn-
myndir eins og rimlar, bækur,
blóm og kjólar standa fyrir þau
ýmsu hugðarefni sem listamaður-
inn tókst á við í sínu daglega lífi og
varð vitni að í umhverfi sínu. Þarna
má nefna kvenfrelsishreyfinguna í
samfélaginu sem Ragnheiður túlk-
ar í verkum sínum meðal annars.
Í teikningunum er það á hinn
bóginn hin sjálfsprottna óhlut-
bundna sköpun sem ræður ríkjum,
yfir henni ríkir frjáls andi, verkin
eru óbundin af meiningum, hrein
list fyrir skynfærin.
Þegar litið er yfir salinn þá er
það strax áberandi hvað sýningin
hefur svart-hvítt yfirbragð, sem
er auðvitað ekki skrítið. Verkin
eru nær öll í svart-hvítu, rétt eins
og veggirnir í salnum og loftið.
Það sem brýtur upp grátónana er
gult parketið og svo blátt málverk
Ragnheiðar, Vetur, frá árinu 2000,
í einu horni sýningarinnar. Þetta
eina verk í lit gerir heilmikið fyrir
heildina, en að ósekju hefði mátt
brjóta sýninguna svona upp á fleiri
stöðum.
Áhrifamestu teikningar Ragn-
heiðar eru Húmtjöld II–III frá
árinu 1996. Það eru verk sem búa
yfir dulúð og spennu, en þarna er
listrænn þroski Ragnheiðar hugs-
anlega að ná nýjum hæðum.
Af grafíkverkunum er flottur
veggur með bókamyndunum sex
frá 1981, Saga. Textinn sem fylgir
með er einnig kómísk lesning þar
sem Ragnheiður líkir bókum við
konur.
Víða í grafíkhlutanum eru beinar
og óbeinar vísanir í heim kvenna,
líkama þeirra og veruleika, og
þar er nóg að tala um hinar mjög
svo fallegu blómamyndir og svo
myndaröðina með kjólunum. Í vel-
þekktum grafíkmyndum hennar af
konum með kökur á höfðinu, er það
svo aftur hæfileiki Ragnheiðar til
að grípa á lofti hugmynd úr hvers-
deginum og myndgera á gaman-
saman hátt, sem nýtur sín vel.
Þóroddur Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Sýning á verkum
hæfileikaríkrar listakonu, með
tvískiptan feril. Verkin standa flest
vel fyrir sínu, en sýningin bætir engu
nýju við.
Í teikningunum
er það á hinn bóginn
hin sjálfsprottna óhlut-
bundna sköpun sem
ræður ríkjum, yfir henni
ríkir frjáls andi, verkin
eru óbundin af mein-
ingum, hrein list fyrir
skynfærin.
Helsi og frelsi
FINGRAFLAKKIÐ HUGLEIKIÐ Verk Ragnheiðar eru full af vangaveltum, heilabrotum, samfélags- og sjálfsskoðun, segir í dómi
gagnrýnanda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · sími 530 2200 · www.thjodminjasafn.is Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11-17
Aðventan í
þjóðminjasafni
Íslands
Jólasýningin Sérkenni sveinanna á Torginu
Fjölskylduskemmtun 9. desember kl. 14
Munið jólaratleikinn: Hvar er jólakötturinn?
Komdu og hittu jólasveinana 12.- 24. desember kl. 11.00
Jóladagskrá Þjóðminjasafnsins
hefst 1. desember – ókeypis aðgangur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
LEKI
GÖNGUSTAFIR
9.990 kr.
TRAUSTIR OG VANDAÐIR.