Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 70
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
Rekstrarvörur
- vinna með þér
TÓNNINN
GEFINN
Trausti Júlíusson
Í spilaranum
Brian Eno er einn af frumkvöðlunum í popptónlist síðustu áratuga.
Hann var m.a. einn af þeim fyrstu til að búa til ambient-tónlist, sem
á íslensku er yfirleitt kölluð sveimtónlist, en hefur líka verið kölluð
hughrifatónlist.
Fyrstu sveimtónlistarlög
Enos voru á plötunum No Pussy-
footing sem hann gerði með
Robert Fripp og kom út 1973
og á þriðju sólóplötunni hans
Another Green World (1975).
Fyrsta sólóplatan hans sem ein-
göngu var með sveimtónlist var
Discreet Music sem kom út í
árslok 1975. Á henni voru fjögur
verk, m.a. eitt rúmlega 30 mín-
útna verk á fyrri hliðinni. Eno
bjó svo til röð platna sem höfðu
yfirheitið Ambient. Þar á meðal
voru Music for Airports (1978)
og On Land (1982).
Hinn 12. nóvember sl. kom
út ný Eno-plata, hans fyrsta
sólóplata síðan 2005. Hún heitir
Lux og var unnin upp úr tónlist
sem Eno gerði upphaflega fyrir
myndlistarsýningu. Það er Warp-útgáfan í Sheffield sem gefur út.
Tónlistin á Lux er mjög í anda gömlu sveimtónlistarplatnanna.
Platan er 75 mínútur að lengd og á henni eru fjögur verk sem heita
einfaldlega Lux 1–4, en það eru samt engin skil á milli þeirra. Lux
er latína og þýðir ljós og það nafn hæfir tónlistinni mjög vel. Það
er ótrúlega bjartur og fallegur hljómur á plötunni. Tónlistin er lág-
stemmd og sveimkennd og virkar á köflum tilviljanakennd. Þegar
maður hlustar á hana fær umhverfið einhvern veginn annan blæ.
Ég hlustaði fyrst á hana á gönguferð á myrkum nóvembermorgni og
allt í einu fannst mér vera orðið bjart. Í ritdómi á Pitchforkmedia er
tónlistinni á Lux m.a. lýst svona: „Hún breytir hvaða herbergi sem
er í listræna innsetningu þar sem spennandi hlutir geta gerst, eða
ekki …“.
Eno lýsir upp skammdegið
SVEIM Lux er í anda gömlu ambient-
platnanna.
Björk Bastards
Dream Central Station Dream Central Station
Rihanna Unapologetic
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, Tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, Tonlist.is
22.11.2012 ➜ 28.11.2012
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 Jónas Sigurðsson Hafið er svart
3 Retro Stefson Glow
4 Valdimar Sýn
5 Rihanna Diamonds
6 Ragnar Bjarnason /
Jón Jónsson Froðan
7 Adele Skyfall
8 Bruno Mars Locked Out Of Heaven
9 The Lumineers Ho Hay
10 Mumford & Sons I Will Wait
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 Retro Stefson Retro Stefson
3 Raggi Bjarna Dúettar
4 Valdimar Um stund
5 Ýmsir Minningartónleikar
um Elly Vilhjálms
6 Skálmöld Börn Loka
7 Sigurður Guð. & Memfism. Okkar menn í Havana
8 Of Monsters And Men My Head Is An Animal
9 Bjarni Arason Elvis Gospel
10 Jónas Sigurðsson Þar sem himin ber við haf
„Það er langt um liðið og ég er
ekki sú sem ég var áður,“ segir í
upphafslínum fyrsta lagsins á Girl
On Fire, nýútkominni breiðskífu
söngkonunnar Aliciu Keys. Platan
er sú fimmta í röðinni frá Keys,
sem vakti fyrst athygli aðeins tví-
tug að aldri árið 2001 með frum-
burðinum Songs in A Minor. Sú
plata seldist í bílförmum, hefur
selst í alls um tólf milljónum
eintökum í dag, vann til fimm
Grammy-verðlauna og skartaði
meðal annars metsölulaginu
Fallin‘ sem lifað hefur góðu lífi
síðustu tæpu tólf árin.
Í kjölfar útkomu Songs in A
Minor fylgdu þrjár breið skífur,
The Diary of Alicia Keys frá 2003,
As I Am frá 2007 og The Element
of Freedom frá 2009. Allar nutu
þær fáheyrðra vinsælda og héldu
söngkonunni í fremstu röð popp-
söngkvenna á heimsvísu, þótt
þeirri síðastnefndu hafi raunar
mistekist að komast á topp vin-
sældalista í Bandaríkjunum eins
og fyrirrennurum hennar. Hún
náði þó öðru sætinu í heimalandi
Keys og efsta sætinu í Bretlandi.
Hagir söngkonunnar breyttust
heilmikið eftir útgáfu The Ele-
ment of Freedom og hefur hún
haft tiltölulega hljótt um sig í
undan fara útgáfu nýju plötunnar,
Girl on Fire, að minnsta kosti sé
miðað við árin á undan þegar hún
þeyttist linnulítið heimshorna á
milli og skammtaði sjálfri sér lít-
inn sem engan frítíma. Undan-
tekningin var þátttaka hennar í
risasmellinum Empire State of
Mind ásamt Jay-Z, einu allra vin-
sælasta lagi ársins 2009 og raunar
síðari ára í heiminum.
Ástæðuna fyrir hlédrægninni
má að stórum hluta rekja til þess
að í kringum útkomu The Element
of Freedom árið 2009 tilkynnti
Keys um trúlofun sína og upp-
tökustjórans Swizz Beatz. Parið
gekk í það heilaga í Suður-Afríku
meðan á Heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu stóð í landinu
sumarið 2010 og fyrsta barn söng-
konunnar, sonurinn Egypt, leit
dagsins ljós nokkrum mánuðum
síðar. Ferðalögum hefur því farið
fækkandi hjá hjónum og barni, en
þess í stað hefur Keys haldið sér í
æfingu með því að leikstýra upp-
færslu á Broadway og stuttmynd,
hanna strigaskólínu fyrir Reebok,
koma fram sem gestasöngvari hjá
ýmsum listamönnum og takast á
hendur einstaka tónleika.
Girl On Fire, sem einkennist
að miklu leyti af lögum í rólegri
kantinum og píanóleik Keys
sjálfrar, var tekin upp í Banda-
ríkjunum, Bretlandi og á Jamaíku
(sem útskýrir hugsanlega reggí-
áhrifin sem sveima yfir nokkrum
laganna), með aðstoð nafntogaðra
upptökustjóra á borð við Dr. Dre
og Babyface. „Þessi plata er trúrri
því sem ég er og sögunni sem ég
er að reyna að segja en áður … Það
er mjög mikilvægt fyrir mig að
lýsa því hvernig mér líður og
hvernig heiminum líður. Heimur-
inn er nýr! Mér líður eins og allt
sé nýtt,“ segir Keys um plötuna,
sem er vissulega ný.
Brennandi Alicia Keys
Bandaríska söngkonan geysivinsæla Alicia Keys hefur sent frá sér fína fi mmtu
breiðskífu, Girl On Fire. Hún segist hafa breyst og líði eins og allt sé nýtt.
DÍVA Alica Keys snýr aftur á plötunni Girl on Fire, hennar fimmtu breiðskífu. NORDICPHOTOS/AFP